Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 19. mars 2013.
Mál nr. S-67/2013:
Ákæruvaldið
(Katrín Ólöf Einarsdóttir fulltrúi)
gegn
X
(Reynir Logi Ólafsson hdl)
Útdráttur
.
X
(Reynir Logi Ólafsson hdl.) Mál þetta, sem dómtekið var föstudaginn 15. mars 2013, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 29. janúar 2013, á hendur X, kt. […], […], Reykjavík, fyrir eftirtalin brot framin í Reykjavík á árinu 2012 nema annað sé tekið fram:
I.
Líkamsárás með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 9. október 2011 innandyra í verslun […] við [..], slegið A, kt. […] einu hnefahöggi í andlit svo að hann féll aftur fyrir sig, allt með þeim afleiðingum að hann hlaut brot í neðri kjálka.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981.
II.
Umferðarlagabrot, með því að hafa:
- Aðfaranótt föstudagsins 3. febrúar, ekið bifreiðinni […] óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 65 ng/ml og MDMA 30 ng/ml) vestur Suðurlandsbraut, uns aksturinn var stöðvaður af lögreglu á móts við Suðurlandsbraut 20.
- Aðfaranótt föstudagsins 2. mars, ekið bifreiðinni […] undir áhrifum áfengis (vínandamagn í útöndunarlofti var 0,29 mg/l) austur Hverfisgötu, uns aksturinn var stöðvaður af lögreglu á Hverfisgötu við Barónsstíg.
- Aðfaranótt sunnudagsins 17. júní, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 1,29‰) og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 85 ng/ml, kókaín 35 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 0,9 ng/ml) austur Vesturlandsveg, uns aksturinn var stöðvaður af lögreglu við bensínstöðina N1 í Ártúnsbrekku.
Telst brot í 1. ákærulið varða við 1. og 2. mgr. 45. gr. a., brot í 2. ákærulið við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. og brot í 3. ákærulið við 1. mgr., sbr. 3. mgr., 45. gr., 1. og 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt saman sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. gr. laga nr. 48/1997, 5. gr. laga nr. 66/2006.
III.
Fyrir fíkniefnalagabrot, með því hafa, aðfaranótt fimmtudagsins 17. maí, innandyra á veitingastaðnum […] við Austurstræti […], haft í vörslum sínum samtals 1,25 g af amfetamíni, 1,59 g af MDMA (ecstasy) og 2,86 g af kókaíni, sem ákærði framvísaði til lögreglu.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. og 6. gr. að því er varðar meðferð ákærða á vímuefnunum MDMA og kókaíni, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. og 26. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006. Jafnframt að ofangreind fíkniefni, 1,25 g af amfetamíni, 1,59 g af MDMA og 2,86 g af kókaíni sem hald var lagt á, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Af hálfu A, kt. […], er þess krafist að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaða- og miskabóta, samtals að fjárhæð 1.067.175 krónur, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 11. október 2011, en dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 6. gr. sömu laga frá því mánuður er liðinn frá dagsetningu skaðabótakröfu til greiðsludags.
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í […]1982. Samkvæmt sakavottorði sætti hann fjórum sinnum refsingu á árunum 2005 til 2007 vegna ávana- og fíkniefnalagabrota. Hann hefur gengist greiðlega við brotum sínum. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði er sviptur ökurétti í 15 mánuði frá 2. mars 2012 að telja.
Af hálfu A er krafist skaðabóta að fjárhæð 1.067.175 krónur auk vaxta, sem sundurliðast þannig:
| Sjúkrakostnaður | 60.000 krónur | |||
| Tímabundið atvinnutjón | 300.000 krónur | |||
| Miskabætur | 800.000 krónur | |||
| Lögmannskostnaður m/vsk | 112.400 krónur |
Krafa um útlagðan sjúkrakostnað er studd viðhlítandi gögnum og verður hún dæmd eins og hún er fram sett. Þá á brotaþoli rétt á miskabótum samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, sem þykja hæfilega ákveðnar 400.000 krónur. Samkvæmt vottorði vinnuveitanda var brotaþoli frá vinnu í 14 daga og nam launatap hans 224.747 krónum. Verður ákærði dæmdur til greiðslu bóta að þeirri fjárhæð. Þá á brotaþoli rétt á bótum vegna kostnaðar við gerð bótakröfu og verður krafa um bætur vegna lögmannskostnaðar dæmd eins og hún er fram sett.Verður ákærði dæmdur til greiðslu skaðabóta samtals að fjárhæð 797.147 krónur, sem beri vexti sem í dómsorði greinir. Þá verður ákærði dæmdur til að greiða 50.200 krónur í málskostnað, vegna lögmannskostnaðar við meðferð málsins fyrir dómi, að meðtöldum virðisaukaskatti.
Upptæk eru dæmd 1,25 g af amfetamíni, 1,59 g af MDMA og 2,86 g af kókaíni, samkvæmt lagaákvæðum sem í ákæru greinir.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Reynis Loga Ólafssonar héraðsdómslögmanns, 112.950 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Ákærði greiði 311.560 krónur í annan sakarkostnað.
| aðstoðarsaksóknari. | Af | hálfu ákæruvaldsins flutti málið Anna Barbara Andradóttir |
|---|---|---|
| Ragnheiður Harðardóttir héraðsdómari kveður upp dóminn. | ||
| D ó m s o r ð : |
Ákærði, X, sæti fangelsi í þrjá mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði er sviptur ökurétti í 15 mánuði frá 2. mars 2012 að telja.
Ákærði greiði A 797.147 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 9. október 2011 til 25. mars 2013, en dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags og 50.200 krónur í málskostnað.
Upptæk eru dæmd 1,25 g af amfetamíni, 1,59 g af MDMA og 2,86 g af kókaíni.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Reynis Loga Ólafssonar héraðsdómslögmanns, 112.950 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Ákærði greiði 311.560 krónur í annan sakarkostnað.
Ragnheiður Harðardóttir