Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 7. apríl 2011.
Mál nr. S-681/2010:
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir innherjasvik í opinberu starfi.
fyrir innherjasvik í opinberu starfi sem ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, með því að hafa 17. og 18. september 2008, selt öll hlutabréf sín í Landsbanka Íslands hf., alls 9.059.809 hluti fyrir samtals 192.658.716 krónur, þrátt fyrir að hafa þá búið yfir innherjaupplýsingum um bankann sem hann varð áskynja um í starfi sínu sem ráðuneytisstjóri, einkum í tengslum við setu sína í samráðshópi fulltrúa forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, viðskiptaráðuneytis, Fjármálaeftirlits og Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleika og viðbúnað. Um var að ræða eftirgreindar innherjaupplýsingar, sem komu til umræðu á sex fundum samráðshópsins, sem haldnir voru á tímabilinu 22. júlí 2008 til 16. september 2008, fundi með bankastjórum Landsbanka Íslands hf. þann 13. ágúst 2008 og fundi með fjármálaráðherra Bretlands þann 2. september 2008, og voru líklegar til að hafa marktæk áhrif á markaðsverð hlutabréfa í bankanum, yrðu þær opinberar:
1) Upplýsingar um þá kröfu breska fjármálaeftirlitsins að innstæður á Icesavereikningum útibús Landsbanka Íslands hf. í Bretlandi yrðu fluttar í breskt dótturfélag ásamt hluta af eignum bankans og upplýsingar um erfiðleika Landsbanka Íslands hf. við að verða við kröfu breska fjármálaeftirlitsins. Þessar upplýsingar voru til umfjöllunar á fundum samráðshóps um fjármálastöðugleika og viðbúnað, 22. júlí til 16. september 2008.
2) Upplýsingar um þá ákvörðun breska fjármálaeftirlitsins að setja fimm milljarða sterlingspunda hámark á samtölu innstæðna á Icesave-reikningum Landsbanka Íslands hf. sem og tilmæli breska fjármálaeftirlitsins til bankans um að haga vaxtakjörum reikninganna þannig að drægi úr vexti innstæðna á þeim. Jafnframt upplýsingar um tilraunir breska fjármálaeftirlitsins til að takmarka markaðssetningu Landsbanka Íslands hf. á Icesave reikningum með auglýsingum. Þessi atriði voru til umfjöllunar á fundum samráðshóps um fjármálastöðugleika og viðbúnað á tímabilinu 22. júlí 2008 til 16. september 2008 sem og fundi með bankastjórum Landsbanka Íslands hf. 13. ágúst 2008.
3) Upplýsingar sem fram komu á fundi samráðshóps um fjármálastöðugleika og viðbúnað 31. júlí 2008, um slæma stöðu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta samkvæmt lögum nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta og áhyggjur íslenskra og breskra stjórnvalda af stöðu hans og getu til að tryggja innstæður á Icesave reikningum.
4) Upplýsingar um að seðlabanki Hollands hygðist stöðva frekari innlán á Icesave reikninga í Hollandi sem kynntar voru á fundi samráðshóps um fjármálastöðugleika og viðbúnað 4. september 2008.
5) Upplýsingar sem fram komu á fundi sem ákærði sat með fjármálaráðherra Bretlands 2. september 2008 um að bresk stjórnvöld héldu fast við kröfur breska fjármálaeftirlitins í viðræðum við íslensk stjórnvöld. Fjármálaráðherrann gat þess að bresk stjórnvöld myndu ábyrgjast innistæður á Icesave reikningum að fullu og innti eftir því hverjum ætti að senda reikninginn.
6) Upplýsingar sem fram komu á fundi samráðshóps um fjármálastöðugleika og viðbúnað 16. september 2008 um efni fundar ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis með forsætisráðherra og utanríkisráðherra um viðbragðsáætlanir ef stór banki færi í greiðsluþrot og umfjöllun um að stjórnvöld myndu styðja stærstu bankana þrjá en að líklegt væri að þeir kæmust allir í vanda ef einn færi í þrot. Meðal annars var rætt um í hve ríkum mæli skyldi tryggja innstæður í bönkunum og að ekki væri ætlunin að bjarga hluthöfum.
Innherjasvik ákærða er fólust í að hagnýta sér ofangreindar upplýsingar, fyrir eigin reikning, teljast varða við 1. tl. 1. mgr. 123. gr., sbr. 146. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, sbr. 138. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar, sbr. 216. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, sbr. 218. gr. sömu laga. Þá er þess krafist, með vísan til 2. mgr. 147. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 og 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, að ákærða verði gert að sæta upptöku á 192.658.716 krónum sem eru innstæður á bankareikningum ákærða í Arion banka hf., 100.144.000 krónum á reikningi nr. 0301-22-893 og 92.514.716 krónum á reikningi nr. 0334-18-640932 sem kyrrsettar voru þann 13. nóvember 2009.
Röksemdir sem málsóknin er byggð á, sbr. d. lið 152. gr. laga nr. 88/2008 Ótvírætt er að ákærði hafði réttarstöðu innherja, þ.e. var annar innherji í skilningi 3. tl. 121. gr. laga nr. 108/2007, þar sem hann hafði vegna starfa sinna sem ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins innherjaupplýsingar er féllu að hugtaksskilyrðum 120. gr. laga nr. 108/2007. Upplýsingar þessar fékk ákærði einkum á sex fundum fulltrúa samráðshóps forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, viðskiptaráðuneytis, Fjármálaeftirlits og Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleika og viðbúnað á tímabilinu 22. júlí 2008 til 16. september 2008, á fundi með bankastjórum Landsbanka Íslands hf. þann 13. ágúst 2008 og á fundi viðskiptaráðherra Íslands með fjármálaráðherra Bretlands, þann 2. september 2008.
Af hálfu ákæruvaldsins er á því byggt að upplýsingarnar sem ákærði bjó yfir samkvæmt töluliðum 1 – 6 í ákæru falli að hugtaksskilyrðum innherjaupplýsinga og ákærði hafi verið í stöðu innherja er hann hagnýtti sér þær með ólögmætum hætti og gerðist þar með sekur um innherjasvik. Hvert þessara tilvika sem talin eru í nefndum töluliðum nægir eitt og sér í þeim efnum. Réttarstaða innherja í skilningi 3. tl. 121. gr. laga nr. 108/2007 er ekki háð formlegri skráningu eða tilkynningu heldur tekur til efnislegrar vitneskju um innherjaupplýsingar.
Öllum hugtaksskilyrðum innherjaupplýsinga í skilningi 120. gr. laga nr. 108/2007, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 630/2007 er fullnægt. Innherjaupplýsingar þessar eru nægjanlega tilgreindar og afmarkaðar en auk þess var mikils trúnaðar krafist um þær og þær þannig ekki gerðar opinberar. Upplýsingarnar vörðuðu Landsbanka Íslands hf. beint en brot ákærða fólst í sölu á hlutabréfum hans í bankanum. Líklegt er að þau hlutabréf hefðu lækkað marktækt í verði ef komið hefði til fjöldaúttekta af Icesave reikningum Landsbankans í Bretlandi og Hollandi. Slíkar fjöldaúttektir voru raunhæft vandamál sem óttast var að gæti átt sér stað ef innstæðueigendum hefðu orðið ljósar áhyggjur þarlendra eftirlitsaðila og breskra stjórnvalda af getu Landsbankans til að efna skuldbindingar sínar gagnvart innstæðueigendum. Sem og vangetu tryggingasjóðs innstæðueigenda samkvæmt lögum nr. 98/1999, um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, til að sinna hlutverki sínu ef á myndi reyna. Öllum þessum upplýsingum bjó ákærði yfir.
Að sama skapi er líklegt að það hefði haft marktæk áhrif á verð hlutabréfa Landsbankans ef vitnast hefði að íslensk stjórnvöld teldu þrjá stærstu bankana í vanda ef einn þeirra kæmist í greiðsluþrot og uppvíst yrði að rætt væri um aðgerðir sem fælu í sér viðbrögð við slíku greiðsluþroti banka, meðal annars í hve ríkum mæli skyldi tryggja innstæður í bönkunum og að ekki væri ætlunin að bjarga hluthöfum. Þetta var til umræðu á fundi samráðshóps forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, viðskiptaráðuneytis, Fjármálaeftirlits og Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleika 16. september 2008, sem ákærði sat. Á næstu tveimur dögum seldi ákærði hlutabréf sín í Landsbanka Íslands hf. Þessar innherjaupplýsingar voru nægjanlega tilgreindar í skilningi 120. gr. laga nr. 108/2007 og í þeim birtist rökstutt vantraust nefndra eftirlitsaðila og stjórnvalda á getu Landsbankans til að standa við skuldbindingar sínar. Fjöldaúttektir og eða greiðsluþrot hefðu að öllum líkindum leitt til þess að hlutabréf í Landsbanka Íslands hf. hefðu lækkað verulega eða orðið verðlaus. Vænta má að upplýstur fjárfestir hefði lagt þessar upplýsingar til grundvallar og byggt ákvarðanir um viðskipti með hlutabréf í Landsbanka Íslands hf. á þeim ef þær hefðu verið honum aðgengilegar.
Ákærði sótti tilgreinda fundi í krafti embættis síns sem ráðuneytisstjóri og fellur sem slíkur ótvírætt undir hugtaksskilgreiningu 141. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem opinber starfsmaður. Innherjasvik af hálfu ákærða fela í sér misnotkun á stöðu hans sem opinbers starfsmanns er hann hagnýtti innherjaupplýsingar sem hann bjó yfir vegna starfa sinna í eigin þágu með því að ráðstafa fjármálagerningum, hlutabréfum, með beinum hætti, fyrir eigin reikning en andvirðið lagði ákærði inn á bankareikning.“
Verjandi ákærða krefst aðallega sýknu og að upptökukröfu verði vísað frá dómi en til vara að upptökukröfunni verði hafnað. Þess er krafist að allur sakarkostnaður, þar með talin málsvarnarlaun, verði greidd úr ríkissjóði að mati dómsins.
Ákærði seldi hlutabréf sín í Landsbanka Íslands hf. 17. og 18. september 2008. Síðar um haustið hóf Fjármálaeftirlitið (FME) athugun á sölu hlutabréfanna og því hvort ákærði hefði við sölu þeirra búið yfir innherjaupplýsingum. Bréfleg samskipti FME og ákærða liggja fyrir um þetta. FME lauk skoðun sinni og sendi ákærða bréf þar um, dags. 7. maí 2009. Í niðurlagi bréfsins áskildi FME sér rétt til að taka málið upp að nýju ef ný gögn eða upplýsingar kæmu fram. Það var gert með bréfi FME til ákærða, dags. 9. júlí 2009. Leiddi það til rannsóknar málsins og útgáfu ákæru. Fjallað var um þennan þátt málsins fyrir aðalmeðferðina og á rannsóknarstigi og sætti sumt kæru til Hæstaréttar. Ekki þykir ástæða til að reifa þetta frekar hér.
Nú verður rakinn framburður ákærða og vitnisburður fyrir dómi.
Ákæra málsins er á því reist að ákærði hafi búið yfir innherjaupplýsingum er hann seldi hlutabréf sín í Landsbanka Íslands hf. og að hann hafi orðið upplýsinganna áskynja í starfi sínu sem ráðuneytisstjóri, einkum í tengslum við setu sína í samráðshópnum svo sem lýst er í ákærunni. Fundargerðir samráðshópsins eru ekki undirritaðar og staðfestar og í greinargerð verjandans er á því byggt að hin óstaðfestu drög fundargerða séu ekki tæk sönnunargögn í skilningi 1. mgr. 111. gr. sakamálalaga nr. 88/2008. Meðlimir í samráðshópnum komu allir fyrir dóm. Það sem fram fór á fundum samráðshópsins og upplýsingar sem ákærði fékk með setu sinni í hópnum er hryggjarstykkið í ákærunni. Verður ekki hjá því komist að reifa ítarlega vitnisburð hvers og eins nefndarmanna svo unnt sé að taka afstöðu til einstakra ákæruliða. Þetta hefur hins vegar í för með sér nokkra endurtekningu þar sem vitni bera að mestu á sama veg um það sem fram fór a fundunum. En vegna mikilvægis vitnisburðarins er vitnisburður hvers um sig rakinn en vitnin báru þess utan hvert með sínum hætti um annað eins og rakið verður.
Ákærði neitar sök. Hann kvaðst hafa starfað sem lögmaður í tuttugu ár og á þeim tíma hafi hann verið einn af stofnendum og fyrsti stjórnarformaður Hlutabréfamarkaðarins sem stofnaður var árið 1985 en hafið störf í fjármálaráðuneytinu á árinu 2000 og verið ráðuneytisstjóri þar á þeim tíma sem í ákæru greinir. Hann lýsti aðdraganda stofnunar samráðshóps fulltrúa forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, viðskiptaráðuneytis, fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleika (hér á eftir nefndur samráðshópurinn). Ákærði lýsti tilgangi samráðshópsins og vinnu hans. Aðspurður hvort ekki hafi ríkt trúnaður um það sem fram fór á fundum samráðshópsins kvað ákærði það leiða af eðli máls að seta í hópi sem þeim er hér um ræðir hefði það í för með sér að ekki sé haft hátt um þau mál sem væru til umræðu, eins og ákærði orðaði það. Hins vegar hafi ekki verið trúnaður um ástandið á almennum fjármálamörkuðum á þessum tíma og lýsti ákærði því nánar. Ráðuneytisstjórinn í forsætisráðuneytinu hefði leitt starf samráðshópsins. Tryggvi Pálsson hefði skráð fundargerðir sem nefndar voru drög. Fundargerðum hefði verið dreift og meðlimum hópsins gefinn kostur á því að gera athugasemdir og taldi ákærði mögulegt að hann hefði gert athugasemd í eitt eða tvö skipti snemma á starfstíma samráðshópsins. Spurður um áreiðanleika fundargerðanna kvaðst ákærði telja að í grófum dráttum væri greint frá því sem rætt var á fundum samráðshópsins þótt ekki væri þar ritað nákvæmlega eða orðrétt eftir fundarmönnum.
Ákærði kvað rétta lýsingu ákærunnar um sölu hans á hlutabréfum í Landsbanka Íslands hf. eins og þar er lýst, en mótmælti lýsingu ákærunnar um að hann hefði búið yfir innherjaupplýsingum á þeim tíma.
Í ákærunni er ákærða gefið að sök að hafa búið yfir innherjaupplýsingum um Landsbanka Íslands sem hann varð áskynja í starfi sínu sem ráðuneytisstjóri, einkum í tengslum við setu í samráðshópnum og á fundi með bankastjórum hinn 13. ágúst 2008 og á fundi með fjármálaráðherra Bretlands 2. september 2008, eins og lýst er í ákærunni. Verður nú vikið að hverju og einu þessara atriði og framburður ákærða og vitnisburður rakinn um hvern ákærulið fyrir sig á þann hátt sem lýst var að framan.
- Ákærði mótmælti því að hafa búið yfir upplýsingum um Landsbanka Íslands sem hér um ræðir og þá á þeim grunni eins og málið er lagt upp í ákærunni. Hann kvað Landsbanka Íslands hafa haft frumkvæði að því veturinn 2008 að ræða við breska fjármálaeftirlitið (FSA) um að innstæður á Icesave í Bretlandi yrðu fluttar yfir í þarlent dótturfélag. Aðspurður hvort hann hafi vitað um tregðu Landsbanka Íslands við að verða við kröfum FSA kvað ákærði viðræður hafa verið í gangi og verið að finna lausn á málinu og mótmælti ákærði þannig orðalagi ákærunnar að um erfiðleika hafi verið að ræða. Þá mótmælti ákærði því sem ákæran byggi, þ.e. að þessar upplýsingar væru innherjaupplýsingar.
Á fundi samráðshópsins 22. júlí 2008 er bókað eftir Ingimundi Friðrikssyni að FSA hafi hvatt Landsbanka Íslands til að flytja innlánasafn sitt í þarlent dótturfélag og að Landsbanki Íslands virtist þessu mótdrægur. Þá er bókað um slæma stöðu Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta (hér á eftir nefndur tryggingasjóður) að ekki væri hægt að standa við lágmarkstryggingar um innstæðuvernd. Þá er haft eftir Jónasi Friðriki Jónssyni að sjóðurinn gæti staðið við skuldbindingar ef Sparisjóður Mýrasýslu færi, en um leið tæmdist sjóðurinn.
Aðspurður hvort þessar upplýsingar hefðu komið fram á fundinum kvaðst ákærði ekki hafa ástæðu til að efast um það. Rædd hafi verið staða tryggingasjóðsins og viðræður um að flytja starfsemi Landsbanka Íslands í Bretlandi í dótturfélag.
Á fundi samráðshópsins 31. júlí 2008 greindi Ingimundur Friðriksson frá fimm milljarða sterlingspunda hámarki á Icesave reikninga Landsbanka Íslands í Bretlandi fram að yfirfærslu í dótturfélag. Þá kom fram hjá Jónasi Friðriki að FSA hefði sett fram nýjar kröfur af mikilli hörku og í framhaldinu var yfirfærslan rædd. Ákærði spurði á fundinum hvenær tilkynnt hefði verið um fimm milljarða hámarkið og í framhaldi hefði Ingimundur Friðriksson minnt á mikilvægi þess að gæta vel að trúnaðarupplýsingum sem þessum. Þá er haft eftir ákærða að hann telji það geta orðið banabita fyrir bankana ef umræða um veikleika tryggingasjóðsins færi af stað. Þá kemur fram að Ingimundur Friðriksson hafi greint frá því að Seðlabankinn setji þrýsting á Landsbanka Íslands um að klára yfirfærsluna. Þá er bókað á fundinum að Jónas Friðrik hafi farið yfir áhyggjur FSA um veikleika tryggingasjóðsins íslenska og skýrði hann það nánar.
Aðspurður hvort ákærði kannaðist við að þessar upplýsingar hefðu komið fram, kvaðst hann ekki hafa talið að búið hafi verið að taka ákvörðun um fimm milljarða punda hámarkið og tók hann þá mið af því sem eftir fór og viðræður um yfirfærsluna. Aðspurður hvort hann hefði látið þau orð falla um tryggingasjóðinn sem rakin voru kvaðst ákærði ekki geta staðfest hvort orðalagið í fundargerðinni væri rétt, en ákærði kveðst hafa verið að vísa til þess sem gerðist um vorið og umræðurnar í Bretlandi og munarins sem væri á innstæðutryggingakerfi í útibúi og móðurfélagi. Hann skýrði þetta nánar. Ákærði kvað opinbera vitneskju hafa verið fyrir hendi um stöðu tryggingasjóðsins. Ársreikningur hans hafi verið aðgengilegur á heimasíðu sjóðsins. Ákærði kvaðst hafa byggt umræðuna á opinberum upplýsingum og atburðum sem hefðu gerst með umræðu um þetta í Bretlandi og vísaði ákærði um þetta til gagna sem liggja fyrir í málinu, m.a. fjölmiðlaumfjöllunar í Bretlandi.
Á fundi samráðshópsins 12. ágúst 2008 var samkvæmt drögum að fundargerð fjallað um kröfur FSA og ákærði spurði hvort komið væri samkomulag í grundvallaratriðum þótt enn væru lausir endar. Jónas Friðrik greindi frá vendingum í málinu og að FSA hefði komið fram með nýjar kröfur. Þá kom fram hjá Jónasi Friðriki að komið væri að þolmörkum Landsbanka Íslands um það hversu langt bankinn gæti teygt sig vegna krafna frá FSA. Fleira var rætt um þessi mál og bókað á fundinum. Þá er haft eftir ákærða að Landsbanki Íslands gæti lent í þeirri aðstöðu að ganga að óásættanlegum kröfum við yfirfærslu innlána í dótturfélag, eða að halda þeim áfram í útibúi sem væri erfitt fyrir íslensk stjórnvöld. Þá var haft eftir Ingimundi Friðrikssyni að FSA hefði fundist Landsbankinn ganga of hart fram í vaxtaboðum og auglýsingum. Þá voru umræður á fundinum um tryggingasjóðinn og innstæðuvernd. Þá er haft eftir ákærða að hann hefði spurt hvaða úrræði íslensk stjórnvöld hefðu til að ýta lánum í dótturfélag erlendis og að þetta væri stórt áhyggjuefni, ekki aðeins vegna Landsbankans. Í umræðu um tryggingasjóðinn er haft eftir Jónasi Friðriki að sjóðurinn gæti tæmst ef meðalstór sparisjóður gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar. Á fundinum er haft eftir Ingimundi Friðrikssyni að sú tímasprengja sem hættulegust væri núna væru innlánin erlendis.
Ákærði skýrði fyrir dóminum umræður á fundinum sem lutu að þessu og hættu á áhlaupi á Landsbanka Ísland í Bretlandi, en að það þýddi ekki að efnisleg innstæða væri fyrir áhlaupinu og skýrði hann það nánar út frá stöðu Landsbanka Íslands.
Spurður hvort ákærði kannaðist við að upplýsingarnar sem raktar voru hefðu komið fram á fundinum 12. ágúst staðfesti ákærði það þótt hann teldi hluta þess sem rakið var ekki upplýsingar heldur fremur skoðanaskipti. Ákærði tók fram að ummæli sín á fundinum um erfiðleika Landsbanka Íslands hafi verið mögulegir erfiðleikar, en sú staða hafi ekki verið komin upp.
Á fundi samráðshópsins, 20. ágúst 2008, er samkvæmt drögum að fundargerð í upphafi vikið að fundi Jónasar Friðriks Jónssonar, forstjóra FME, og Jóns Sigurðssonar, stjórnarformanns FME, með stjórnendum FSA í London 18. sama mánaðar. Þar er gerð grein fyrir áhyggjum FSA að innlánsáhlaupi á Landsbanka Íslands og áhyggjum FSA af auglýsingaherferð Landsbankans og þá segir að bankinn hafi ekki verið samvinnuþýður. Þá kom fram að FSA telji aðgerðir sínar standast Evrópurétt, en víða í gögnum málsins er fjallað um heimildir FSA til inngripa eins og þeirra sem hér er einkum rætt um. Þá er greint frá fundi forstjóra Landsbankans með FSA 19. ágúst 2008 og þar meðal annars rætt um að skilaboð FSA um yfirfærsluna væru skýr. Jónas Friðrik greindi frá því að kröfur FSA stigmagnist og gerð væri krafa til þess að Landsbanki Íslands samþykkti yfirfærsluna án skilyrða. Á fundinum spurði ákærði um tímafresti FSA og hver vandkvæði Landsbankans væru við stöðuna. Þá er haft eftir Bolla Þór Bollasyni varðandi kröfur FSA að hann sjái ekki að Landsbankinn sé í nokkurri stöðu til að andmæla og að auðvelt sé að setja sig í spor breskra yfirvalda um þetta.
Fyrir dóminum kvaðst ákærði gefa sér að umræðurnar sem raktar eru hafi átt sér stað þótt hann geri fyrirvara um orðalag og hvernig fært er til bókar í einstökum tilvikum. Ákærði kvað fleira í þessari fundargerð sýna að ekki hafi verið búið að leiða málið um yfirfærsluna til lykta og hafnaði ákærði því sem lýst er í 1. lið ákæru um erfiðleika Landsbanka Íslands við að verða við kröfu FSA. Samningum um yfirfærsluna hafi ekki verið lokið.
Á fundi samráðshópsins, 4. september 2008, er í upphafi rætt um stöðuna og horfur á fjármálamarkaði og að Hollendingar ætli að stöðva innlánasöfnun Landsbanka Íslands í Hollandi og þá er haft eftir Bolla Þór Bollasyni að það séu efnislega sömu kröfur og kröfur FSA í Bretlandi. Í áframhaldi eru umræður um þetta og haft eftir ákærða að ljóst sé að FSA gefi hvergi eftir. Þá var á fundinum farið yfir fund viðskiptaráðherra með Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands. Haft var eftir Darling að bresk yfirvöld myndu ábyrgjast innstæður að fullu og hann hafi spurt hvert ætti að senda reikninginn. Þá er haft eftir Bolla Þór að Landsbankamenn þráist enn við að skilja alvöruþunga breskra og hollenskra stjórnvalda.
Fyrir dóminum kannaðist ákærði við umræðurnar sem hér voru raktar. Þetta væri í stórum dráttum það sem rætt var á fundinum. Á fundinum kom fram að rætt hefði verið um það að Landsbankamenn í London áttuðu sig ekki fyllilega á stöðunni. Aðspurður hvað átt væri við kvað ákærði þessi ummæli vera til komin eftir heimsókn í útibú Landsbankans í London og viðræður við útibússtjóra bankans þar en ekki við bankastjóra bankans.
Á fundi samráðshópsins, 9. september 2008 voru enn rædd erindi FSA og málefni tryggingasjóðsins. Jónas Friðrik lýsti því að Landsbankinn væri langstærsti höfuðverkurinn og spurningin væri hvort lánardrottnar gerðu kröfu vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu. Þá vísaði Jónas Friðrik til fundar Seðlabankastjóra í Basel og í framhaldinu að litið væri á fjármálakerfið á Íslandi sem veikan kanarífugl í námunni, eins og það er bókað í fundargerðinni.
Fyrir dóminum staðfesti ákærði að umræðurnar um íslenska fjármálakerfið, og áhyggjur sem uppi voru um það, hafi verið mjög til umræðu í fjölmiðlum á þessum tíma. Þá nefndi ákærði að ummælin á fundinum og umræður sýni að hugsanlega væri í sjónmáli lausn á þeim vanda sem um var rætt varðandi yfirfærsluna.
Á fundi samráðshópsins, 16. september 2008, var í upphafi rætt um gjaldþrot Lehman bankans og ákærði greindi frá lækkunarhrinu á mörkuðum í Evrópu í kjölfarið. Þá greindi Jónas Friðrik frá því á fundinum að stjórnendur FSA sætu fund um málefni Landsbankans. Þá voru ræddar viðbragðsáætlanir við falli banka. Þar hafi Bolli Þór Bollason greint frá því að hann hefði fundað með forsætis- og utanríkisráðherra og ráðherrarnir hafi rætt um hverjum ætti að bjarga kæmi til falls bankanna og komið hefði fram að ekki væri ætlunin að bjarga hluthöfum.
Fyrir dómi kannaðist ákærði við þessar umræður á fundinum en tók fram að horfa þyrfti á málið allt í samhengi. Ákærði tók fram að fundur Bolla Þórs með ráðherrunum hafi ekki verið ,,krísufundur“ heldur hafi hann verið hluti af ferli sem hafði verið í gangi mánuðum saman. Viðfangsefnið hefði verið að setja saman möguleg viðbrögð við falli banka. Ákærði var spurður hvort eitthvað hefði komið fram á þessum fundi um að yfirfærslumálið og kröfur FSA væru að leysast. Hann kvað forstjóra FME hafa greint frá fundinum ytra um málefni Landsbankans eins og rakið var. Þá hefði Jónas Friðrik sagt frá því að FSA hefði verið ánægt með fund um málefni Landsbankans nokkru fyrr og hafi talið að samkomulagsflötur væri að finnast. Spurður hvort þetta væru nýjar upplýsingar kvað ákærði málinu ekki hafa verið lokið á þessum tíma, en það hafi verið að komast á ,,lygnan sjó“. Ákærði kvað hafa komið fram hjá Jónasi Friðriki að eftir fund hans með FSA hafi hann trúað því að verið væri að lenda málinu um yfirfærsluna og að FSA myndi samþykkja tillögur sem lagðar voru fram til lausnar málsins. Niðurstaða hafi hins vegar ekki verið komin.
Ákærði kvaðst hafa setið fund með bankastjórum Landsbanka Íslands hinn 13. ágúst 2008. Tilefni fundarins hafi verið það að bankastjórar Landsbankans hafi viljað upplýsa um viðræðurnar við FSA varðandi yfirfærsluna. Ákærði lýsti gögnum sem afhent voru á fundinum, en fram kom hjá honum að hluti þeirra gagna hefðu áður komið fram á fundum samráðshópsins. Ákærði kvað ekkert sem einhverja þýðingu hafði hafa komið fram á þessum fundi sem ekki hefði komið fram á fundum samráðshópsins. Ákærði kvað bankanum hafa komið á óvart er FSA tók málið upp á ný eftir samkomulag sem bankinn taldi hafa komist á í maí 2008. Þá hefði komið fram að vaxtakjör reikninganna sem í þessum ákærulið greinir hafi verið í um það bil tíunda sæti á lista sem sýndur var um vaxtakjör innlánsreikninga á þessum tíma. Ákærði kvað ekki hafa verið rætt á fundinum að upplýsingar sem þar komu fram væru innherjaupplýsingar sem þyrfti að tilkynna.
Ákærði sat ásamt fleirum fund viðskiptaráðherra og Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, 2. september 2008. Umræðuefnið var yfirfærslan sem fjallað hefur verið um hér að framan. Breski fjármálaráðherrann hefði tekið undir skilning þess að þannig þyrfti að standa að málum varðandi yfirfærsluna að Landsbankinn kæmi ekki verr frá henni. Ákærði kvað breska fjármálaráðherrann hafa viðhaft ummælin sem lýst er í ákærulið 5. Ummælin hefðu verið viðhöfð í umræðum um tryggingasjóðinn. Breski ráðherrann hefði sagt að ef bresk stjórnvöld myndu greiða út lágmarksinnstæðutryggingu, hvert ætti þá að senda reikninginn.
Meðal gagna málsins er bréf ákærða til FME, dagsett 18. nóvember 2008. Í sama bréfi er svofelldur kafli. ,,Þegar hér var komið sögu taldi ég ekkert vera því lengur til fyrirstöðu að hrinda í framkvæmd þeim áformum að selja hlutabréf mín í Landsbankanum þar sem ég hefði nú örugglega enga verðmyndandi vitneskju sem markaðurinn hefði ekki.“ Spurður hvort ákærði hefði talið að hann hafi einhvern tímann á þeim tíma sem hér um ræðir talið sig búa yfir verðmyndandi upplýsingum, kvað ákærði svo ekki vera. Hann kvaðst hafa viljað fara ,,rosalega varlega“ og ,,alveg extra varlega í ljósi viðkvæmrar stöðu“. Spurður um það hvað hafi gert það að verkum að þessi tími var valinn til sölu hlutabréfanna og hvort eitthvað hafi breyst kvað ákærði margt koma þar við sögu. Eitt af því hefði verið að hann taldi að FSA og Landsbankinn væru að ná saman. Það hefði verið eitt af mörgu sem hafði áhrif á ákvörðun hans um að selja hlutabréfin á þessum tíma. Þetta undirstrikaði í hans huga að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur af þeim þætti en hann tók fram að hann hafi ekki talið sig hafa búið yfir innherjaupplýsingum. Hann kvað sér hafa liðið betur við að vita að umhverfið var eins slétt og það gat verið. Sér hafi liðið ,,extra vel“ að vita að málin virtust vera í eins miklu jafnvægi og þau gátu verið og skýrði ákærði þetta nánar. Þá kvað ákærði það styrkja álit sitt um að hann hefði ekki búið yfir innherjaupplýsingum vegna umræðunnar um yfirfærsluna að Landsbanki Íslands hefði ekki tilkynnt sig sem innherja.
Fram kom í ofangreindu bréfi ákærða og við skýrslutöku af ákærða hjá lögreglu að hann hefði greint Bolla Þór Bollasyni, formanni samráðshópsins, frá sölu hlutabréfanna fyrir fram, en hann hafi ekki verið að leita samþykkis Bolla Þórs. Hann hafi farið yfir þetta með Bolla Þór og hvernig ákærði upplifði fundinn í samráðshópnum 16. september og eftir það komist að þeirri niðurstöðu að hann gæti selt hlutabréfin. Ákærði kvaðst standa við þetta. Haldi Bolli Þór öðru fram kvaðst ákærði ekki efst um að hann hefði þá upplifað orð ákærða svo að hann hefði þegar selt hlutabréfin. Þetta gæti byggst á misskilningi og hvernig hann hefði látið orð falla.
Ákærði kvað aldrei hafa komið til umræðu í samráðshópnum að nefndarmenn yrðu tilkynntir sem tímabundnir innherjar í fjármálafyrirtækjum sem hópurinn var með upplýsingar um. Ákærði kvaðst ekki hafa lagt sérfræðilegt mat á það hvort FSA hafði að lögum heimild til þess að skipa einhliða yfirfærslu innlánsreikninga Landsbankans í breskt dótturfélag. Hins vegar kvaðst hann vita að Landsbankinn hefði leitað lögfræðiálits um þetta álitaefni og það álit hneig í þá átt að FSA hefði ekki heimildir til að fyrirskipa þetta einhliða. Þessir hlutir hafi verið ræddir í samráðshópnum, einkum hjá forstjóra FME. Ákærði kvað hvorki að hann sjálfur né samráðshópurinn hefðu metið getu Landsbankans til að færa innlánin yfir í dótturfélag. Hann kvaðst hvorki sjálfur né hafi samráðshópurinn haft forsendur til þess. Ákærði kvað aldrei á þeim tíma sem hér um ræðir og til 16. september 2008 hafa komið fram endanlega afstöðu FSA til tímamarka yfirfærslunnar eða eitthvað varðandi viðurlög.
- Ákærði mótmælti þessum lið ákærunnar á sömu forsendu og lið 1. Þá mótmælti ákærði því að fyrir hafi legið ákvörðun FSA um fimm milljarða sterlingspunda hámark innstæðna, enda hafi m.a. verið deilt um það hvort FSA væri bært til að taka slíka ákvörðun. Þetta hefði verið eitt af því sem rætt var og verið í viðræðuferli að sögn ákærða. Þá kvað ákærði ekki hafa legið fyrir neinar endanlegar ákvarðanir um annað sem nefnt er í þessum ákærulið, svo sem vaxtakjör til að draga úr vexti innstæðna á reikningunum, en litið var svo á að FSA gæti ekki einhliða tekið ákvarðanir sem að þessu lúta. Þá hafi legið fyrir að Landsbankinn hafi ekki fallist á að þeir höguðu þessum málum öðruvísi en þeir töldu samrýmast eðlilegum sjónarmiðum sínum varðandi bankarekstur.
- Aðspurður hvort ákærði mótmælti því að hafa búið yfir upplýsingum sem hér um ræðir tók hann fram að ekki hefði þurft annað en að lesa dagblöð frá þessum tíma til að fá þessar upplýsingar sem hafi þannig verið opinberar og ekki hafi leikið vafi á því hvert fjárhagslegt bolmagn íslenska innstæðutryggingasjóðsins var.
- Aðspurður hvort ákærði hefði búið yfir þessum upplýsingum sem fram hafi komið á fundi samráðshópsins 4. september 2008, eins og lýst er í ákærunni, kvaðst ákærði mótmæla að hafa komist að upplýsingunum með þeim hætti sem í ákæru greinir. Hann kvað hið sama eiga við um þetta og áhyggjur FSA um stöðu íslenska innlánakerfisins. Þá var talað um að finna aðra tilhögun á innlánasöfnum Landsbankans í Hollandi. Ákærði kvað hafa verið farið yfir það mál á fundi samráðshópsins 4. september 2008. Forstjóri FME greindi frá fundi sínum við bankastjóra Seðlabanka Hollands. Ákærði hefði skilið þá frásögn svo að svipuð sjónarmið Hollendinga væru varðandi stöðu innstæðutrygginga í útibúum og staða tryggingasjóðsins væri þannig að það væri ,,áhættufactor“ sem hollenska Seðlabankanum hafi fundist óþægilegur og þeir talið æskilega aðra tilhögun á innlánssöfnun. Ekki hefði staðið til að breyta fyrirkomulaginu með einhliða inngripi, en þeir hefðu viljað koma starfsemi Landsbankans í Hollandi yfir í dótturfélög. Hann kvaðst hafa talið að þetta mál yrði tekið til umfjöllunar ,,í næstu framtíð“ en á fundi samráðshópsins 4. september kom fram að FME og hollenski Seðlabankinn ætluðu að funda um þetta síðar. Ekkert kom fram um þetta eftir þetta.
- Aðspurður hvort þessar upplýsingar hefðu komið fram á fundinum 2. september, eins og lýst er í ákærunni, kvað ákærði það ekki hafa verið í því samhengi sem lýst er í ákærunni. Ákærði kvaðst ekki kannast við að fyrir hefðu legið kröfur FSA á hendur íslenskum stjórnvöldum. Ákærði kvað ákæruefninu stillt þannig upp að breski fjármálaráðherrann hefði verið að kveða upp dóm yfir Landsbanka Íslands sem sé alls ekki rétt. Það sem hafi legið fyrir hafi verið að vegna umræðna um stöðu innlánakerfisins og stöðu tryggingasjóðsins hafi ráðherrann nefnt á fundinum að ef til áfalla kæmi á fjármálamarkaði og Bretar myndu sjálfir greiða lágmarkstryggingu innstæðna, sem Íslendingar ættu formlega séð að standa skil á, hvert ætti þá að senda reikninginn. Þetta hefði verið til að undirstrika stöðu tryggingasjóðsins. Ákærði kvað engar nýjar upplýsingar hafa komið fram á fundinum 2. september og engar kröfur af hálfu Breta.
- Aðspurður hvort ákærði hefði búið yfir þessum upplýsingum er hann seldi hlutabréf sín í Landsbanka Íslands og að upplýsingarnar sem lýst er í ákærunni hafi komið fram á fundi samráðshópsins 16. september 2008 kvað ákærði þetta hafa verið til umfjöllunar vikum og mánuðum saman. Í samráðshópnum voru rædd viðbrögð við fjármálakreppu. Viðbrögð, ef til kæmu, hefðu ekki tekið á sig endanlega mynd. Ákærði fór yfir það sem rætt var á fundinum en ekkert nýtt hefði komið fram að hans sögn og engar endanlegar tillögur verið kynntar. Ekkert hefði legið fyrir um hver vernd innstæðna yrði ef til fjármálaáfalls kæmi, þótt ljóst væri að tryggingin yrði hærri en sem næmi lágmarkinu. Þá var rætt að stóru bankarnir þrír væru mikilvægastir og að komið yrði þeim til aðstoðar ef til kæmi. Legið hafi fyrir, að sögn ákærða, að kæmist einn stóru bankanna í þrot yrðu áhrifin keðjuverkandi á hina tvo stóru bankana. Þá hefði legið fyrir að ekki hefði staðið til að bjarga hluthöfum ef illa færi. Ákærði kvað það þekkt viðbrögð og lýsti hann því.
Vitnið Jónína Sigrún Lárusdóttir var ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu á þeim tíma sem um ræðir í ákæru. Hún kvaðst hafa hafið störf á ný 1. ágúst 2008 eftir fæðingarorlof og frá þeim tíma sat hún í samráðshópnum uns hún hætti störfum í ráðuneytinu. Hún lýsti samkomulagi sem hópurinn byggði á. Hún lýsti tilhögun funda, en Tryggvi Pálsson hefði skráð fundargerðir. Á þeim tíma sem hér um ræðir komu fram upplýsingar um erfiðleika banka. Samráðshópurinn hafði áhyggjur af stöðunni í heild en málefni Landsbankans hefðu komið sérstaklega til umfjöllunar. Hún kvaðst hafa fengið drög að fundargerð í tölvuskeyti og hún hefði stundum gert athugasemdir við það sem að eftir henni var haft. Eftir það hefðu verið send út ný drög. Fundardrögin virki ítarleg en ekki komi allt þar fram sem rætt var á fundunum. Jónína Sigrún lýsti því að meðferð gagna frá samráðshópnum og fundargerðardrögin hefðu verið trúnaðarupplýsingar. Hjá lögreglu greindi hún svo frá að hún teldi upplýsingarnar sem hér um ræðir svo viðkvæmar að hætta væri á áhlaupi á bankana yrðu þær opinberar. Hún staðfesti þetta fyrir dóminum. Hún kvað það ekki hafa komið til tals á fundum samráðshópsins að meðlimir hans yrðu tilkynntir sem tímabundnir innherjar hjá fjármálafyrirtækjunum sem hópurinn fjallaði um. Jónína Sigrún kvað samráðshópinn ekki hafa metið getu Landsbankans til að færa innstæðurnar úr útibúi í breskt dótturfélag. Hún kannaðist við umræður á árinu 2008 um fjárhagslegt bolmagn íslenska innstæðutryggingasjóðsins og upplýsingar um stöðu hans voru opinberar. Hún kvað engan vafa hafa leikið á stöðu sjóðsins sem ekki var góð. Hún mundi ekki hvort til umræðu kom á fundum samráðshópsins hvort almenningi væri ljós staða tryggingasjóðsins, en hópurinn hefði haft áhyggjur af stöðunni í heild og að áhlaup á banka gæti orðið ef ,,þessi balance færi að hnikast til“ og umræða færi af stað um tryggingasjóðinn.
Jónína Sigrún sat fund samráðshópsins 12. ágúst 2008. Á fundinum var ræddur erindisrekstur FSA, sem lýst hefur verið að framan, og að ákærði hefði spurt á fundinum hvort samkomulag væri komið í grundvallaratriðum og Jónas Friðrik hefði greint frá vendingum í málinu og lýsti hann því nánar. Þá er bókað eftir ákærða að Landsbankinn gæti lent í þeirri aðstöðu að ganga að óásættanlegum kröfum varðandi yfirfærsluna og er því nánar lýst í bókuninni og var farið yfir það með Jónínu. Þá komu fram upplýsingar um að FSA hefði fundist Landsbankinn ganga of hart fram í vaxtaboðum og auglýsingum. Þá voru rædd málefni tryggingasjóðsins um innstæðuvernd og ákærði hefði spurt um möguleika íslenskra stjórnvalda til að ýta innlánum í dótturfélag erlendis og að þetta væri mikið áhyggjuefni. Málefni sjóðsins voru rædd frekar meðal annars að hann gæti tæmst ef meðalstór sparisjóður gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar. Þá kemur fram í fundargerðinni að Ingimundur Friðriksson hafi greint frá því að sú tímasprengja sem hættulegust væri væru innlán erlendis.
Fyrir dóminum kannaðist Jónína Sigrún við að upplýsingarnar sem raktar voru úr fundargerðinni hefðu komið fram á fundinum 12. ágúst 2008 og verið ræddar þar.
Jónína Sigrún sat fund samráðshópsins 20. ágúst 2008. Á fundinum var í upphafi gerð grein fyrir áhyggjum FSA af innlánsáhlaupi á Landsbankann og áhyggjur FSA af auglýsingaherferð Landsbankans og að bankinn væri ekki samvinnuþýður. Þá var greint frá því að FSA stæði fast á því að aðgerðir þeirra stæðust Evrópurétt. Greint var frá fundi FSA með Landsbankanum og skýr skilaboð FSA um yfirfærsluna. Jónas Friðrik hefði sagt að kröfur FSA færu stigmagnandi og nú væri gerð krafa um yfirfærslu án skilyrða. Ákærði hefði á fundinum spurt um tímafresti Landsbankans og var það rætt í kjölfarið. Þá er bókað að Bolli Þór Bollason hefði sagt auðvelt að setja sig í spor breskra yfirvalda og að hann sæi ekki að Landsbankinn væri í nokkurri aðstöðu til að andmæla.
Fyrir dóminum kannaðist Jónína Sigrún við að upplýsingarnar sem raktar voru úr fundargerðinni hefðu komið fram á fundinum 20. ágúst 2008 og verið ræddar þar. Hún kvaðst ekki muna eftir einstökum umræðuefnum en mundi eftir fundargerðinni og að hafa lesið hana yfir.
Jónína Sigrún sat fund samráðshópsins 4. september 2008. Á fundinum hafi verið greint frá því að Hollendingar ætli að stöðva Landsbankann í að auka innlán í Hollandi. Þar segir að Bolli Þór hafi greint frá því að þetta væri sama krafa og krafa FSA varðandi Bretland. Þá er haft eftir Jónínu og ákærða í fundargerðinni að Landsbankamenn, sem rætt var við í London, átti sig ekki fyllilega á stöðunni. Þá er því lýst að vitnið hafi á fundinum farið yfir fundinn með breska fjármálaráðherranum sem hefði greint frá því að hann gerði ráð fyrir því að bresk yfirvöld myndu ábyrgjast innstæður að fullu og síðan spurt hvert ætti að senda reikninginn. Þá er haft eftir Bolla Þór að Landsbankamenn þráist enn við að skilja alvöruþunga breskra og hollenskra stjórnvalda.
Fyrir dóminum kannaðist Jónína Sigrún við upplýsingarnar sem raktar voru úr fundargerðinni og rétt sé eftir henni haft. Í fundargerðinni er því lýst að viðmælendur Jónasar Friðriks í Hollandi hefðu lýst því að stjórna þyrfti niðurbrennslunni í Hollandi. Hún mundi ekki eftir þessu sérstaklega en mundi eftir áhyggjum af þessum málum í heild.
Jónína Sigrún sat fund samráðshópsins 9. september 2008. Á fundinum er haft eftir Jónasi Friðriki að mál Landsbanka Íslands sé langstærsti höfuðverkurinn og spurningin væri hvort lánardrottnar gerðu kröfu vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu.
Fyrir dóminum kvað hún þetta hafa verið í umræðunni á þessum tíma almennt séð.
Jónína Sigrún sat fund samráðshópsins 16. september 2008. Þar hafi enn verið rædd staða Landsbankans og samskiptin við FSA og greindi Jónas Friðrik frá því að stjórnendur FSA sætu þá fund um málið. Þá greindi Bolli Þór frá fundi sínum með ráðherrum þar sem hafi verið rætt um hverjum ætti að bjarga kæmi til fjármálaáfalls. Á fundinum hafi komið fram upplýsingar um forgangsröðunina og að ekki stæði til að bjarga hluthöfum bankanna og að það væri hið eina endanlega sem fram kom á fundinum.
Fyrir dóminum kvaðst hún muna eftir ummælum Bolla Þórs. Hún kvaðst eiga erfitt með að muna nú, löngu síðar, umræður og það sem haft var eftir öðrum á fundunum, svo sem frásögn Jónasar Friðriks um fundinn um málefni Landsbankans sem rakinn var. Aðspurð kvað Jónína Sigrún ekkert hafa komið fram á fundinum 16. september sem gaf til kynna að þáttaskil væru í samskiptum Landsbankans og FSA varðandi yfirfærsluna. Niðurstaðan hafi ekki verið fengin á þessum tíma og hún mundi ekki til þess að fram hefði komið að niðurstaða væri að nást í málinu.
Jónína Sigrún sat ásamt ákærða fund með bankastjórum Landsbanka Íslands 13. ágúst 2008, en bankinn boðaði til fundarins. Hún kvaðst hafa komið til starfa 1. ágúst 2008 eftir leyfi og bankinn hefði viljað kynna henni kröfur FSA og samskiptin milli bankans og FSA. Á fundinum voru kröfur FSA ræddar varðandi stöðu Landsbankans og að flytja innstæður í dótturfélag ytra og að þetta væri erfitt úrlausnarefni fyrir Landsbankann sem þurfti að færa eignir á móti. Hún lýsti erfiðleikum Landsbankans við að verða við kröfum FSA og samskiptum bankans við FSA. Hún mundi ekki hvort upplýsingarnar hefðu komið fram á fundunum um fimm milljarða punda hámarkið sem lýst er í ákærulið 2.
Jónína Sigrún sat ásamt fleirum fund með Alistair Darling 2. september 2008. Fundurinn hefði verið að frumkvæði viðskiptaráðherra. Henni hefði verið greint frá því að Landsbankinn hefði átt hugmyndina um að óska eftir fundinum. Tilgangur fundarins var sá að freista þess að setja pólitískan þrýsting á það að gefið yrði svigrún varðandi yfirfærsluna. Hún kvað stjórnvöld hafa viljað fyrir alla muni að innstæðurnar sem hér um ræðir færu yfir í dótturfélag til að létta ábyrgðinni af tryggingasjóði innstæðueigenda. Stjórnvöld hefðu því viljað gera sitt til að svigrúm yrði gefið í tíma varðandi flutninginn á eignum á móti þannig að innstæðurnar í Bretlandi gætu farið yfir í dótturfélag sem fyrst. Hún mundi ekki eftir því að neinar nýjar upplýsingar hefðu komið fram á þessum fundi. Hins vegar hafi hún fengið það á tilfinninguna að breski ráðherrann væri vel upplýstur um málið og hún mundi vel eftir ummælum hans um það hvert ætti að senda reikninginn. Þetta hefði verið nefnt í tengslum við það ef illa færi og Bretar greiddu innstæðueigendum. Fram kom skilningur á því að veita eitthvert tímasvigrún varðandi flutning skuldbindinga á móti innlánum.
Vitnið Jónas Friðrik Jónsson var forstjóri Fjármálaeftirlitsins á þeim tíma sem hér um ræðir og sat í samráðshópnum stöðu sinnar vegna. Hann lýsti starfi hópsins og að lögð hafi verið rík áhersla á trúnað innan hans. Tryggvi Pálsson skráði fundargerðir sem hafi að mestu leyti verið áreiðanlegar um það sem fram fór á fundum. Hann lýsti athugasemdum sem hann gerði tíðum við fundargerðir eftir að hafa fengið uppkast sent í tölvupósti. Ekki hefði komið til tals í hópnum að meðlimir hans yrðu tilkynntir sem tímabundnir innherjar í fjármálastofnunum sem þeir fjölluðu um. Hann kvað engan vafa hafa verið um stöðu tryggingasjóðsins á þessum tíma. Um hann gildi lög og rakti hann þetta nánar.
Jónas Friðrik sat fund samráðshópsins 22. júlí 2008. Þá var meðal annars farið yfir slæma stöðu tryggingasjóðsins og rætt um það að eins og staðan væri, væri ekki hægt að standa við lágmarksskuldbindingar um innstæðuvernd og Jónas Friðrik greindi frá því að sjóðurinn gæti staðið við skuldbindingar ef Sparisjóður Mýrasýslu færi, en um leið tæmdist sjóðurinn.
Fyrir dóminum kannaðist hann við þessar umræður og kvað þetta hafa verið staðreynd og kvað alla tryggingasjóði í Evrópu hafa verið þannig setta að þeir gætu ekki ráðið við að tryggja nema innstæður í einum meðalstórum banka.
Jónas Friðrik sat fund samráðshópsins 31. júlí 2008. Þar hafi Ingimundur Friðriksson upplýst um fimm milljarða punda hámark á Icesave innstæður fram að yfirfærslu í breskt dótturfélag. Þá er haft eftir Jónasi Friðriki á fundinum að FSA hefði sett fram kröfur í síðustu viku af mikilli hörku. Jónas Friðrik hafi greint frá því að undirbúa yrði slíkt vel og auglýsa opinberlega. Fram kemur á fundinum að ákærði hefði spurt hvenær tilkynnt hefði verið um fimm milljarða punda hámarkið. Þá hefði Ingimundur minnst á mikilvægi þess að gæta vel að trúnaðarupplýsingum sem þessum. Þá hefði ákærði nefnt á fundinum að það gæti orðið banabiti fyrir íslensku bankana ef umræðan um veika stöðu tryggingasjóðsins færi af stað. Fram kom að Ingimundur hefði sagt að Seðlabankinn setti þrýsting á Landsbanka Íslands um að ljúka yfirfærslunni. Jónas Friðrik fór yfir áhyggjur FSA af íslenska trygginga-sjóðnum.
Fyrir dómi kvað Jónas Friðrik allt það sem rakið var hafa verið rætt á fundinum. Hann kvað mestar áhyggjur hafa verið af því að umræða um innlánsreikningana gæti kallað fram áhlaup á bankann.
Jónas Friðrik sat fund samráðshópsins 12. ágúst 2008. Þar kom fram að ákærði hefði spurt hvort samkomulag um yfirfærsluna væri komið í grundvallaratriðum þótt enn væru lausir endar. Jónas Friðrik lýsti síðan ýmsum vendingum í málinu og að FSA hefði komið fram með nýjar kröfur. Þá hefði Jónas Friðrik lýst höfnun FSA á þeirri hugmynd að leggja fjárhæð umfram fimm milljarða hámarkið á reikning í Seðlabankanum. Þá voru ræddar hugmyndir um efasemdir um lögmæti hámarksþaksins. Jónas Friðrik hefði greint frá því að komið væri að þolmörkum Landsbanka Íslands um það hversu langt bankinn gæti teygt sig. Haft er eftir ákærða að Landsbankinn gæti lent í þeirri aðstöðu að ganga að óásættanlegum kröfum við yfirfærsluna í dótturfélag, eða að halda þeim áfram í útibúi sem væri erfitt fyrir íslensk stjórnvöld. Þá kemur fram að FSA hafi fundist Landsbankinn ganga of hart fram í vaxtaboðum og auglýsingum. Málefni tryggingasjóðsins voru rædd og ákærði hefði spurt hvaða úrræði stjórnvöld hefðu til að ýta lánum í dótturfélag erlendis, þetta væri mikið áhyggjuefni. Haft var eftir Ingimundi Friðrikssyni að sú tímasprengja sem hættulegust væri núna væru innlánin erlendis.
Fyrir dóminum kvað Jónas Friðrik það sem rakið var hafa verið rætt á fundinum. Málið hefði snúist um það að færa innlánin í Bretlandi yfir í dótturfélag, en erfiðleikarnir varðandi það hafi verið þeir að færa hefði þurft eignir á móti og að það kynni að fara í bága við lánaskilmála bankans sem gæti leitt til þess að kröfuhafar bankans myndu bregðast við sem yrði gífurlega erfitt fyrir bankann. Þá nefndi Jónas að vegna þaksins á innstæðurnar gæti orðið erfitt um lausafjárstýringu fyrir Landsbankann en það hún verið mjög erfið á þeim tíma sem hér um ræðir. Hann lýsti því að umræða eða neikvæðar upplýsingar gætu leitt til úttekta í Bretlandi.
Jónas Friðrik sat fund samráðshópsins 20. ágúst 2008. Þar var gerð grein fyrir fundi vitnisins og fleirum með FSA og rætt um áhyggjur FSA um innlánsáhlaup á Landsbankann og að bankinn væri ekki samvinnuþýður. Þá hafi komið fram að FSA héldi fast við að aðgerðir þeirra stæðust Evrópurétt. Gerð var grein fyrir fundi Landsbankans og FSA þar sem skýrar kröfur FSA komi fram. Haft er eftir Jónasi Friðriki á fundinum að kröfur FSA fari stigmagnandi og gerð væri krafa um yfirfærslu án skilyrða. Bolli Þór hefði sagst skilja afstöðu breskra stjórnvalda og að hann sæi ekki að Landsbankinn væri í nokkurri aðstöðu til að andmæla.
Fyrir dóminum kvað Jónas Friðrik það sem rakið var hafa komið fram á fundinum. Spurður um yfirfærsluna án skilyrða kvaðst hann ekki muna bréfaskriftir nákvæmlega. Hins vegar hafi kröfur FSA til Landsbankans harðnað og tíminn til yfirfærslu hafi styst.
Jónas Friðrik sat fund samráðshópsins 4. september 2008. Þar voru áfram rædd málefni tryggingasjóðsins og kröfur FSA. Rætt var um að Hollendingar hygðust stöðva innlánasöfnun Landsbanka þar í landi. Bolli Þór hefði greint frá því að þær kröfur væru efnislega hinar sömu og kröfur FSA. Haft er eftir ákærða að ljóst væri að FSA gæfi hvergi eftir. Þá var farið yfir það á fundinum að Alistair Darling hefði greint frá því að bresk yfirvöld myndu ábyrgjast innstæður að fullu og ráðherrann hefði spurt hvert ætti að senda reikninginn. Þá er haft eftir Bolla Þór að Landsbankamenn þráist enn við að skilja alvöruþunga breskra og hollenskra stjórnvalda. Jónas Friðrik lýsti samskiptum sínum við Hollendinga varðandi söfnun innlána þar í landi og að Hollendingar hafi fallist á það að stjórna yrði niðurbremsunni. Hann lýsti þessu nánar og að markmiðið hafi verið að stöðva söfnun innlána en hann lýsti hættunni sem því fylgdi ef innlánasöfnun yrði stöðvuð skyndilega, það kynni að valda áhlaupi á bankann.
Fyrir dóminum staðfesti Jónas Friðrik að umræðurnar sem raktar voru hefðu farið fram á fundinum. Enn var verið að ræða yfirfærsluna sem fjallað hefur verið um að framan.
Jónas Friðrik sat fund samráðshópsins 9. september 2008. Þar er haft eftir honum að mál Landsbankans sé stærsti höfuðverkurinn og spurt hvort lánardrottnar geri kröfur vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu.
Fyrir dóminum staðfesti Jónas Friðrik að þessi umræða hefði farið fram á fundinum og kvað málefni Landsbankans hafa hvílt þyngst á samráðshópnum á þessum tíma.
Jónas Friðrik sat fund samráðshópsins 16. september 2008. Málefni tryggingasjóðsins voru rædd og greint frá því að stjórnendur FSA sætu þá fund um málefni Landsbankans. Bolli Þór hafi greint frá því að ráðherrarnir sem hann hitti á fundi hafi rætt um það hverjum ætti að bjarga og að komið hafi fram að ekki væri ætlunin að bjarga hluthöfum kæmi til fjármálaáfalls.
Fyrir dóminum staðfesti Jónas Friðrik að þetta hefði komið fram og kvað hann þetta hafa komið fram snemma, þ.e. að ef einhverjum þyrfti að bjarga yrði hluthöfum bankanna ekki bjargað. Aðspurður kvað Jónas Friðrik ekkert hafa komið fram á þessum fundi sem benti til þess að Landsbankinn væri að ná landi í viðræðum sínum við FSA um yfirfærsluna. Fundurinn 16. september hefði ekki markað nein þáttaskil í þessu. Hann kvað ekkert bindandi samkomulag hafa legið fyrir á þessum tíma, þ.e. 16. september 2008. Á þessum tíma hafi verið fjármálaórói. Meðal annars af þeim sökum hafi hópurinn rætt möguleg viðbrögð ef fjármálaáfall yrði hér á landi. Það sem mest var óttast sumarið 2008 var að neikvæðar umræður gætu orðið til þess að áhlaup yrði gert á banka. Hann lýsti því að uppgjör Landsbankans um mitt ár 2008 hafi ,,litið vel út“ og rakti hann það í tölum. Hins vegar hafi alltaf verið til staðar ótti um að bankinn kynni að verða fyrir áhlaupi sem ekki yrði við ráðið.
Vitnið Bolli Þór Bollason var ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu á þeim tíma sem hér um ræðir. Hann kvað samráðshópinn stofnaðan í febrúar 2006 og var Bolli formaður hópsins sem ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu. Fyrir stofnun hópsins hafi verið í gangi óformlegar viðræður milli stofnana og ráðuneytanna sem síðar áttu fulltrúa í hópnum, en hópurinn var stofnaður í því skyni að setja upp viðbúnaðaráætlun til að bregðast við hugsanlegu áfalli á fjármálamarkaði. Hann kvaðst hafa litið svo á að ákærði væri staðgengill sinn sem formaður samráðshópsins. Bolli Þór kvað Tryggva Pálsson hafa skrifað fundargerðir sem hafi verið sendar í tölvupósti og fundarmenn gerðu athugasemdir ef þeir óskuðu. Fundargerðirnar hafi verið áreiðanlegar um það sem fram fór á fundum samráðshópsins að hans mati og voru ítarlegar á köflum. Fundargerðirnar hafi verið trúnaðarmál, enda hafi hópurinn fjallað um mál og leiðir til að verjast fjármálaáfalli og nefndarmenn ræddu opið um stöðu banka og annarra og því hafi verið litið á umræðurnar sem trúnaðarmál. Bolli lýsti því að frá því í mars 2006 hafi verið farið reglulega yfir stöðu á fjármálamarkaði og nefndarmenn hafi reglulega fengið upplýsingar um þetta og rætt á fundunum.
Bolli Þór sat fund samráðshópsins 22. júlí 2008. Þar kemur fram að Ingimundur Friðriksson hafi greint frá hvatningu FSA til Landsbankans að flytja innlánasafn sitt í Bretlandi í þarlent dótturfélag. Þá var rædd slæm staða tryggingasjóðsins og að ekki væri hægt að standa við lágmarkstryggingar um innstæðuvernd og Jónas Friðrik hefði sagt að sjóðurinn gæti staðið við skuldbindingar ef Sparisjóður Mýrasýslu færi, en þá tæmdist sjóðurinn.
Fyrir dómi staðfesti Bolli Þór að þessar upplýsingar hefðu komið fram á fundinum. Hann kvað öllum meðlimum samráðshópsins hafa verið ljós slæm staða tryggingasjóðsins. Fjárhæð á reikningi sjóðsins hafi verið lág miðað við skuldbindingar hans.
Bolli Þór sat fund samráðshópsins 31, júlí 2008. Á fundinum var fyrst getið kröfu FSA um fimm milljarða punda hámark á Icesave innlán þar til yfirfærslan færi fram. Þá var bókað að Ingimundur Friðriksson hefði minnt á mikilvægi þess að gæta vel að trúnaðarupplýsingum sem þessum. Þá var rætt um að FSA hefði sett fram nýjar kröfur í síðustu viku af mikilli hörku og að Jónas Friðrik hefði sagt að slíkt þyrfti að undirbúa vel. Þá er bókað eftir ákærða að það gæti orðið banabiti fyrir bankana ef umræðan færi af stað um veikleika tryggingasjóðsins. Þá greindi Ingimundur frá því að Seðlabankinn setti þrýsting á Landsbankann til að klára yfirfærslurnar. Þá fór Jónas Friðrik yfir áhyggjur FSA af íslenska tryggingasjóðnum.
Fyrir dómi staðfesti Bolli Þór að það sem rakið var hefði verið til umræðu á fundinum.
Bolli Þór sat fund samráðshópsins 12. ágúst 2008. Þar var áfram ræddur erindisrekstur FSA og ákærði hefði spurt hvort komið væri samkomulag í grundvallaratriðum þótt enn væru lausir endar. Jónas Friðrik hefði greint frá vendingum í málinu, meðal annars höfnun FSA á hugmynd Landsbankans um að leggja það innlánsfé sem kynni að fara yfir fimm milljarða hámarkið inn í Seðlabanka. Þá var fjallað um lögmæti innlánaþaksins og Jónas Friðrik hefði sagt að komið væri að þolmörkum Landsbanka Íslands varðandi það hversu langt þeir gætu teygt sig. Þá var bókað eftir ákærða að Landsbankinn gæti lent í því að ganga að óásættanlegum kröfum við yfirfærslu innlána í dótturfélag eða að halda þeim áfram í útibúi, sem væri erfitt fyrir íslensk stjórnvöld. Þá hafi Ingimundur Friðriksson greint frá því á fundinum að FSA hefði fundist Landsbankinn ganga of hart fram í vaxtaboðum og auglýsingum. Ákærði hefði spurt hvaða úrræði íslensk stjórnvöld hefðu til að ýta innlánum í dótturfélag erlendis, hann hafi sagt þetta mikið áhyggjuefni og ástæðu til að skoða möguleikana í heild. Áfram var rætt um að tryggingasjóðurinn kynni að tæmast ef meðalstór sparisjóður gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar. Þá hafi Ingimundur Friðriksson talið að sú tímasprengja sem nú væri hættulegust væri innlánin erlendis. Fyrir dóminum staðfesti Bolli Þór að umræðurnar sem raktar voru að ofan hefðu farið fram.
Bolli Þór sat fund samráðshópsins 20. ágúst 2008. Þar var gerð grein fyrir fundi Jónasar Friðriks og Jóns Sigurðssonar með FSA og gerð grein fyrir áhyggjum FSA af innlánsáhlaupi á Landsbankann og áhyggjur FSA af auglýsingaherferð Landsbankans sem ekki hafi verið talinn samvinnuþýður, auk þess sem FSA hafi staðið fast við að aðgerðir þeirra stæðust Evrópurétt. Þá var greint frá skýrum skilaboðum um kröfur FSA sem komið hafi fram á fundi FSA með Landsbankanum 19. ágúst 2008. Þá er haft eftir Jónasi Friðriki að kröfur FSA fari stigmagnandi og að nú væri gerð krafa um að Landsbankinn samþykkti yfirfærslu án skilyrða. Þá er haft eftir Bolla Þór að hann skilji afstöðu breskra stjórnvalda og að hann sjái ekki að Landsbankinn sé í nokkurri aðstöðu til að andmæla. Þá hafi ákærði spurt um vandkvæði Landsbankans í þessari stöðu, auk þess að spyrja um tímafresti FSA. Jónas Friðrik hafi greint frá því að líkur væru á samskiptum hollenskra og breskra stjórnvalda um þennan vanda.
Fyrir dóminum kvað Bolli Þór allt sem rakið var hafa komið fram og verið rætt á fundinum. Aðspurður kvaðst hann telja FSA hafi ekki haft lagaheimild til að knýja Landsbankann einhliða til að yfirfæra innlánin í dótturfélag. Þetta hafi verið hluti vandans að hans mati.
Bolli Þór sat fund samráðshópsins 4. september 2008. Sömu mál voru rædd á þessum fundi og öðrum sem raktir hafa verið að framan. Á fundinum hafi verið rædd viðbrögð Hollendinga og komið hafi fram að Hollendingar hefðu fallist á að stjórna þyrfti niðurbremsuninni varðandi minnkun innlána. Þetta hafi verið sama viðfangsefnið í Hollandi og Bretlandi. Á fundinum er haft eftir ákærða að ljóst sé að FSA gefi hvergi eftir. Þá er haft eftir Jónínu Sigrúnu og ákærða að eftir heimsókn í Landsbankann í London að hafi verið ljóst að Landsbankamenn áttuðu sig ekki fyllilega á stöðunni. Þá var farið yfir fundinn 2. september með Alistair Darling og haft eftir Jónínu Sigrúnu að Darling hefði gert ráð fyrir því að bresk stjórnvöld myndu ábyrgjast innstæður að fullu og spurt hvert ætti að senda reikninginn. Jónas Friðrik hefði greint frá því að ef tiltekinn misskilningur varðandi stöðu tryggingasjóðsins yrði leiðréttur opinberlega kynni það eitt og sér að valda útstreymi innlána frá íslensku bönkunum. Þá er haft eftir Bolla Þór að Landsbankamenn þráist enn við að skilja alvöruþunga breskra og hollenskra stjórnvalda.
Bolli Þór staðfesti fyrir dóminum að það sem rakið var hefði komið fram og verið rætt á fundinum. Varðandi það að Landsbankamenn þráist við kvaðst Bolli Þór hafa átt við það að ítrekað hafi komið fram í þessum samskiptum að Landsbankamenn hafi notað hvert tækifæri til að draga málið á langinn og tefja það. Þeir hafi svarað bréfum frá FSA seint og illa að hans sögn. Þá hafi verið ljóst að Landsbankamenn hafi ekki verið mjög fúsir að ganga til samstarfsins, enda, eins og fram kom í þessu ferli, að hefðu innlánsreikningarnir erlendis verið til að fjármagna slæma stöðu bankans hér á landi. Samningar um að breyta fyrirkomulagi bankans í Bretlandi hefðu þýtt að bankinn gæti ekki nýtt sér þessa fjármögnunarleið nema að mjög litlu leyti. Gæti bankinn ekki sótt þetta fé myndi hann hrynja og skýrði Bolli Þór þetta nánar. Hann taldi þetta öllum ljóst í samráðshópnum.
Bolli Þór sat fund samráðshópsins 9. september 2008. Á fundinum hefði Jónas Friðrik sagt málefni Landsbankans langstærsta höfuðverkinn á þessum tíma og spurning hvort lánardrottnar gerðu kröfur vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu. Þá hafi Jónas Friðrik sagt að erlendis væri litið á íslenska fjármálakerfið sem veikan kanarífugl í námunni, eins og það var bókað.
Bolli Þór staðfesti fyrir dóminum að það sem hér var rakið hefði komið fram á fundinum.
Bolli Þór sat fund samráðshópsins 16. september 2008. Rædd voru málefni tryggingasjóðsins eftir gjaldþrot Lehman og fleira rætt. Bolli Þór hefði spurt um stöðuna á samskiptum FSA og Landsbankans. Jónas Friðrik hefði þá greind frá fundi FSA sama dag um málefni bankans. Farið var yfir ,,ólystuga matseðilinn“. Þá hafi Bolli Þór greint frá fundi sínum með forsætisráðherra og utanríkisráðherra þar sem rætt hefði verið um hverjum ætti að bjarga kæmi til fjármálaáfalls. Þar hefði komið fram að ekki væri ætlunin að bjarga hluthöfum banka við slíkar aðstæður.
Bolli Þór staðfesti að það sem rakið var hefði komið fram og verið rætt á fundinum. Aðspurður hvort um ,,krísufund“ með ráðherrunum hafi verið að ræða kvað hann svar sitt velta á því hvernig krísa sé skilgreind á þessum tíma. Hins vegar hafi á fundinum verið horft á mikinn óróleika og 16. september hafi Lehman bankinn farið í þrot og þá hafi staðan hér verið orðin ansi erfið þótt menn hafi ekki séð fram á fall íslensku bankana eftir tvær til þrjár vikur. Hins vegar hefðu menn verið svartsýnni í september en þeir voru í júlí og ágúst. Spurður um það hvenær hafi verið tekin ákvörðun um að hluthöfum banka yrði ekki bjargað kæmist banki í þrot kvað hann þetta ekki hafa verið beina ákvörðun. Hins vegar hafi þessu verið lýst á fundi hans með ráðherrunum. Bolli Þór var spurður hvort eitthvað hefði komið fram á fundi samráðshópsins 16. september um að verið væri að ná landi varðandi kröfur FSA um yfirfærsluna. Hann kvaðst ekki muna eftir því en taldi líklegt að hann myndi það hefði eitthvað því líkt komið fram. Niðurstaða hefði aldrei fengist í það mál sem endalaust hefði dregist á langinn.
Bolli Þór kvað ákærða hafa greint sér frá sölu hlutabréfa sinna í bankanum í símtali eftir sölu bréfanna. Bolli Þór kvaðst ekki muna hvenær þetta gerðist en kvaðst viss um að sér hefði verið greint frá þessu eftir söluna. Hann kvaðst muna þetta vel þar sem hann hefði lagst gegn sölu hlutbréfanna hefði sér verið greint frá henni fyrir fram. Hann kvaðst hafa metið stöðu sína þannig, verandi í embættinu sem hann gegndi og með setu í samráðshópnum og með aðgang að miklum óskilgreindum upplýsingum um stöðu fjármálafyrirtækja, að hann gæti ekki, ef ekki lagalega þá siðferðislega, selt hlutabréf sín í bönkunum. Sjálfur kvaðst Bolli Þór hafa átt hlutabréf í bankanum sem hann taldi sig ekki geta selt vegna upplýsinganna sem hann bjó yfir. Sú staða hefði verið uppi alveg frá því að samráðshópurinn var settur á legg. Frá árinu 2006 hafi verið ljóst að íslenska bankakerfið myndi verða undir smásjánni. Eftir að hafa tekið setu í samráðshópnum var ljóst að ekki var mögulegt að eiga viðskipti með hlutabréf í bönkunum. Hann kvað ekki hafa verið rætt í samráðshópnum að tilkynna meðlimi hópsins sem tímabundna innherja. Aðspurður um slæma stöðu bankanna á þeim tíma sem hér um ræðir kvað hann hafa verið ljóst að bankarnir, þar með talinn Landsbankinn, myndi ekki þola áhlaup. Það hafi verið áhætta varðandi bankana og ástæðan fyrir því að erfitt hafi verið fyrir stjórnvöld að grípa til aðgerða og þá vegna þess að þær aðgerðir sem gera þyrfti kynnu að leiða til áhlaups sem felldu bankana. Þetta hafi verið staða íslensks fjármálalífs frá því í byrjun árs 2008 þar til bankarnir féllu.
Bolli Þór kvað hafa legið fyrir að staða tryggingasjóðs hafi verið slík að hann gæti ekki ráðið við fall eins af stærri sparisjóðum landsins hvað þá eins þriggja stærstu bankanna.
Vitnið Áslaug Árnadóttir var settur ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu frá miðjum desember 2007 til 31. júlí 2008 og sat í samráðshópnum þann tíma sem fulltrúi viðskiptaráðuneytisins. Tryggvi Pálsson ritaði fundargerðir sem hafi verið stuttar og hnitmiðaðar þar sem því helsta sem fram fór á fundinum var lýst.
Áslaug sat á fundi samráðshópsins 22. júlí 2008. Þar er bókað að Ingimundur Friðriksson hafi vikið að móttöku innlána í útibú Landsbanka erlendis og að FSA hafi hvatt Landsbankann til að flytja innlánasafn sitt í þarlent dótturfélag. Fram kom að Landsbankinn virtist þessu mótdrægur. Þá var farið yfir slæma stöðu tryggingasjóðs innstæðueigenda.
Fyrir dóminum kannaðist Áslaug við að þessar umræður hefðu farið fram á fundinum.
Áslaug sat fund samráðshópsins 31. júlí 2008. Þar kemur fram að Ingimundur Friðriksson hafi upplýst um fimm milljarða hámark innlána fram að yfirfærslu og að Ingimundur hefði minnt á það að mikilvægt væri að gæta að trúnaðarupplýsingum sem þessum. Þá hafi verið rætt um það að FSA hefði sett fram nýjar kröfur í síðustu viku af mikilli hörku. Þá hafi ákærði greint frá því að það gæti orðið banabiti fyrir íslensku bankana ef umræða færi af stað um veikleika tryggingasjóðsins. Ingimundur hefði greint frá því að Seðlabankinn setti þrýsting á Landsbankann um að klára yfirfærsluna og að Jónas Friðrik hafi gert grein fyrir áhyggjum FSA af íslenska tryggingasjóðnum.
Áslaug staðfesti fyrir dóminum að þessar upplýsingar hefðu komið fram á fundinum. Aðspurð um áhyggjur FSA kvaðst hún þarna hafa séð í fyrsta sinn bréfaskriftir milli Landsbankans og FSA um yfirfærsluna. Áhyggjur hafi verið um það að nauðsynlegt væri að Landsbankinn fengi lengri tíma til að flytja eignir til Bretlands á móti innstæðunum. Hún lýsti því að Landsbankinn ætti mjög erfitt að verða við þessu.
Áslaug var formaður stjórnar tryggingasjóðs innstæðueigenda á þessum tíma. Aðspurð hvort upplýsingar um erfiðleika sjóðsins og slæma stöðu hans hefðu verið opinberar kvað hún hvern sem er hafa getað reiknað út stöðu sjóðsins sem hefði upplýsingar um heildarinnlán íslenskra fjármálafyrirtækja. Þær upplýsingar hefðu hins vegar ekki legið á lausu en voru lagðar fram á fundi samráðshópsins og kvaðst hún ekki vita til þess að þær hefðu legið fyrir annars staðar, en heildarinnlán hafi aukist gríðarlega á árinu 2008 og upplýsingar þar um hefðu ekki verið opinberan. Hún kvað ársreikning sjóðsins hafa legið fyrir á vefsíðu sjóðsins og verið opinberar og þar komið fram upplýsingar um eignir sjóðsins. Hún kvað veika stöðu sjóðsins hafa verið í umræðu öðru hverju erlendis á þessum tíma án þess að hún myndi einstök tilvik.
Áslaug sat fund með Alistair Darling 2. september 2008. Tilgangur fundarins hafi verið sá að fá Breta til að slaka á kröfum um tíma sem Landsbankanum var gefinn til yfirfærslunnar. Hún kvaðst muna eftir því að breski ráðherrann spurði á fundinum hvort íslenskir þátttakendur gerðu sé ekki grein fyrir alvarleika málsins.
Vitnið Ingimundur Friðriksson sat í bankastjórn Seðlabankans þann tíma sem hér um ræðir. Hann lýsti setu sinni í samráðshópnum sem fulltrúi Seðlabankans og lýsti hann starfi og tilgangi hópsins, en Bolli Þór Bollason hefði leitt starf hópsins. Ingimundur lýsti tilhögun fundargerða sem ekki voru staðfestar af meðlimum samráðshópsins heldur hafi fundargerðum verið dreift eftir fundi og fundarmönnum gefinn kostur á að gera athugasemdir sæju þeir ástæðu til. Fundargerðirnar hafi hins vegar ekki verið undirritaðar, en þær voru stutt lýsing á því sem fram fór og þar sé skráð það mikilvægasta sem fram kom á fundunum.
Ingimundur sat fund hópsins 22. júlí 2008. Þar er greint frá því í fyrsta sinn að komið hafi fram hvatning frá FSA til Landsbankans um að flytja innlánasafn sitt í Bretlandi í dótturfélag. Þá var á fundinum farið yfir stöðu tryggingasjóðsins og að ekki væri hægt að standa við lágmarkstryggingar um innstæðuvernd eins og staðan væri.
Ingimundur kvaðst ekki draga í efa að það sem rakið var hefði komið fram. Ella hefði það ekki verið skráð.
Ingimundur sat fund samráðshópsins 31. júlí 2008. Þar er í upphafi bókað að Ingimundur hafi upplýst um ákvörðun um fimm milljarða punda hámark á Icesave fram að yfirfærslu. Jónas Friðrik hefði greint frá því að FSA hefði sett fram nýjar kröfur í síðustu viku og af mikilli hörku. Þá er bókað að ákærði hefði spurt hvenær tilkynnt hefði verið um fimm milljarða punda hámarkið. Þá er bókað eftir Ingimundi sem minnti á að gæta þyrfti að trúnaðarupplýsingum sem þessum. Þá er bókað eftir ákærða að það geti orðið banabiti fyrir íslensku bankana ef umræða um veikleika tryggingasjóðsins færi af stað.
Aðspurður fyrir dómi kvaðst Ingimundur ekki telja að neitt meira hefði komið fram á fundinum um stöðu tryggingasjóðsins en það sem ráða mátti af opinberum gögnum, til dæmis þeim sem tiltæk voru á netinu.
Þá greindi hann frá því á fundinum að Seðlabankinn setti þrýsting á Landsbanka Íslands um að klára yfirfærsluna. Þá hafi Jónas Friðrik gert nánari grein fyrir áhyggjum FSA.
Fyrir dómi kvaðst Ingimundur ekki efa að þessar upplýsingar hefðu komið fram á fundinum. Aðspurður um fimm milljarða punda hámarkið kvaðst Ingimundur ekki muna hvernig hann fékk upplýsingar um það. Spurður hvort hámarkið hafi verið komið á kvaðst hann ekki muna þetta nákvæmlega en ásetningur breskra stjórnvalda um hámarkið hafi verið eindreginn þótt hann muni ekki hvernig þetta var orðað í gögnum sem hann sá um þetta.
Við skýrslutöku hjá lögreglunni greindi Ingimundur svo frá að ef upplýsingar um þetta hefðu hvissast út hefði það getað haft þau áhrif í London að menn tækju innstæður sínar í bankanum út þar og það gæti haft miklar afleiðingar. Hann staðfesti þetta fyrir dóminum og að fréttir um að peningar leki úr banka séu alltaf slæmar fréttir.
Ingimundur sat fund samráðshópsins 12. ágúst 2008, þar sem áfram var ræddur erindisrekstur FSA. Þá spurði ákærði hvort komið væri samkomulag í grundvallaratriðum þótt enn væru lausir endar. Jónas Friðrik hefði greint frá nýjum vendingum í málinu, m.a. höfnun FSA um að leggja innlán sem fóru upp fyrir hámarkið í Seðlabankann. Jónas Friðrik hefði greint frá því að komið væri að þolmörkum Landsbankans varðandi hversu langt bankinn gæti teygt sig. Þá er haft eftir ákærða að bankinn gæti lent í því að ganga að óásættanlegum kröfum við yfirfærslu innlána í dótturfélag, eða að halda þeim áfram í útibúi, sem væri erfitt fyrir íslensk stjórnvöld. Þá kom fram á fundinum að FSA hefði fundist Landsbankinn ganga of hart fram í vaxtaboðum og auglýsingum. Síðan voru rædd málefni tryggingasjóðsins, bókað eftir ákærða, sem spurði hvaða úrræði íslensk stjórnvöld hefðu til að ýta innlánum inn í dótturfélag erlendis og lýsti hann því að þetta væri mikið áhyggjuefni. Áfram var farið yfir stöðu tryggingasjóðsins síðan bókað eftir Ingimundi að sú tímasprengja sem hættulegust væri núna væru innlánin erlendis.
Fyrir dómi kvaðst Ingimundur ekki draga í efa að það sem skráð var hefði farið fram á fundinum. Aðspurður um tímasprengjuna, sem hættulegust væri, kvaðst Ingimundur hafa átt við það að mjög erfitt hafi verið fyrir banka að afla sér lausafjár og mikilvægt að halda í það fé sem þeir höfðu. Umræðan um öryggi innlána gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir banka ef útstreymi yrði sem hefði þýtt lausafjárerfiðleika um þá sem þegar voru fyrir hendi hjá Landsbankanum sem öðrum.
Ingimundur sat fund samráðshópsins 20. ágúst 2008. Þar var í upphafi gerð gein fyrir fundi Jónasar Friðriks og Jóns Sigurðssonar með FSA í London 18. ágúst og þar hefðu Bretar greint frá því að þeir teldu mikla hættu á innlánsáhlaupi gangvart Landsbankanum auk þess að greina frá áhyggjum af auglýsingaherferð Landsbankans og nefnt að bankinn væri ekki samvinnuþýður. Þá hafi FSA haldið við það að aðgerðir þeirra stæðust Evrópurétt. Greint var frá fundi Landsbankans og FSA þar sem fram komu skýr skilaboð FSA um kröfur á hendur Landsbankanum. Jónas Friðrik hefði greint frá því að kröfur FSA væru stigmagnandi og nú væri gerð krafa um yfirfærslu án skilyrða. Ákærði hefði spurt hver vandkvæði Landsbankans væru í þessari stöðu, auk þess að spyrja um tímafresti FSA. Þá hafi verið haft eftir Bolla Þór Bollasyni að hann skildi afstöðu breskra yfirvalda og að Landsbankinn væri ekki í nokkurri stöðu til að andmæla. Þá hafi Jónas Friðrik greint frá því að allar líkur væru á samskipum breskra og hollenskra stjórnvalda um þennan vanda.
Ingimundur staðfesti fyrir dóminum að það sem bókað var á fundinum hefði komið þar fram og verið þar rætt.
Ingimundur sat fund samráðshópsins 4. september 2008. Þar kom meðal annars fram að Hollendingar hygðust stöðva innlánasöfnun Landsbanka Íslands þar í landi. Bolli Þór hefði greint frá því að þar væri efnislega það sama og í kröfum FSA. Jónas Friðrik nefndi að ef misskilningur sem uppi var varðandi tryggingasjóðinn yrði leiðréttur opinberlega kynni það eitt og sér að valda útstreymi innlána úr íslenskum bönkum. Þá hafi Jónína og ákærði greint frá því áliti sínu að starfsmenn Landsbankans í London sem þau hittu gerðu sér ekki fyllilega grein fyrir stöðunni. Þá er bókað eftir ákærða að ljóst sé að FSA gefi hvergi eftir. Þá var farið yfir fundinn með Alistair Darling 2. september 2008 og þar haft eftir Jónínu að Darling hefði gert ráð fyrir því að bresk stjórnvöld myndu ábyrgjast innstæður að fullu og spurt hvert ætti að senda reikninginn. Haft er eftir Bolla Þór að Landsbankamenn þráist enn við að skilja alvöruþunga breskra og hollenskra stjórnvalda.
Fyrir dóminum staðfesti Ingimundur að það sem bókað var hefði komið fram á fundinum og verið rætt þar. Aðspurður um ástandið í Hollandi og að þeir hafi haft hug á því að stöðva frekari innlánasöfnun þar í landi kvað Ingimundur engin bein afskipti hafa verið á milli Seðlabankanna í löndunum tveimur. Hann vissi hins vegar af umræðunni um þetta.
Ingimundur sat fund samráðshópsins 9. september 2008. Ákærði hefði nefnt að færa þyrfti yfir miklar eignir til að geta haldið því uppstreymi fjármagns sem eftir yrði. Jónas Friðrik hefði nefnt að mál Landsbankans væri langstærsti höfuðverkurinn. Þá hafi Jónas Friðrik lýst því að litið væri á fjármálakerfið íslenska sem veikan kanarífugl í námunni.
Fyrir dómi staðfesti Ingimundur að það sem bókað var hefði komið fram á fundinum og verið rætt þar. Hann lýsti miklum áhyggjum af Landsbankanum á þessum tíma og að samskipti við FSA hafi verið hafin og kröfur breskra yfirvalda væru skýrar, en einnig hafi verið vilji innan Landsbankans til að færa innlánin í Bretlandi í dótturfélag.
Ingimundur sat fund samráðshópsins 16. september 2008. Í upphafi var rætt um fall Lehman bankans og áhrif þess. Ingimundur kvaðst ekki hafa gert sér grein fyrir því strax við fall bankans hversu víðtæk áhrif fallsins yrðu. Þá voru á fundinum rædd málefni tryggingasjóðsins og greint frá því að stjórnendur FSA sætu þá fund um Landsbankann. Þá hafi verið farið yfir ,,ólystuga matseðilinn“ og Bolli Þór hafði eftir ráðherrum sem hann hitti á fundi að ekki væri ætlunin að bjarga hluthöfum banka kæmi til fjármálaáfalls.
Fyrir dóminum mundi Ingimundur ekki hvort áður hefði verið rætt á fundum samráðshópsins að ekki stæði til að bjarga hluthöfum kæmi til fjármálaáfalls. Hins vegar sé það almennt viðurkennt að hluthafar njóti ekki sérstakrar verndar komist banki í þrot.
Ingimundur kvaðst ekki muna að rætt hafi verið í samráðshópnum að meðlimir hans yrðu tilkynntir sem tímabundnir innherjar í þeim fjármálafyrirtækjum sem hópurinn fjallaði um. Þá minntist hann ekki umræðu um það hvort meðlimir hópsins kynnu að vera innherjar í skilningi 3. tl. 121. gr. laga nr. 108/2007. Ingimundur kvað ljóst að upplýsingar sem fram komu í samráðshópnum hafi verið trúnaðarupplýsingar.
Ingimundur staðfesti að það sem bókað var á fundinum 16. september hefði þar verið rætt. Hann mundi ekki eftir því að neitt hefði komið fram á þessum fundi sem benti til þess að verið væri að ná landi í samskiptum FSA og Landsbankans varðandi yfirfærsluna. Hann kvað samskipti FSA og Landsbankans hafa byrjað sem viðræðuferli og Landsbankinn hefði gert samning við FSA en er leið á sumarið 2008 hafi kröfur FSA aukist í garð Landsbankans. Ingimundur kvað lausafjárstöðu íslensku bankana um miðjan september 2008 hafa verið þrönga, en hálfs árs uppgjör bankanna fyrri hluta árs 2008 hefðu sýnt að bankarnir hefðu staðið allvel á miðju ári. Ingimundur kvað reikning innstæðutryggingasjóðs hafa verið opinberan og lögin skýr um inngreiðslur í sjóðinn. Aðspurður hvort almenningur hafi haft upplýsingar um það hversu miklar innstæður voru á árinu 2008, en þær hafi aukist mjög, kvað hann þá sem áhuga höfðu hafa getað kynnt sér það en kvað erfitt að svara þessu en vísaði í lögin um sjóðinn.
Vitnið Tryggvi Pálsson, var á þeim tíma sem hér um ræðir, og er framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabanka Íslands og var annar tveggja fulltrúa Seðlabankans í samráðshópnum og var ritari hópsins. Hann lýsti stofnun samráðshópsins í febrúar 2006, tilefni og tilgangi. Bolli Þór Bollason leiddi starf hópsins. Tryggvi hefði skráð fundargerðir og sent þær út til meðlima hópsins ásamt fylgiskjölum sem dreift hefði verið á fundunum. Þannig hefði meðlimum hópsins verið gefinn kostur á því að gera athugasemdir við það sem skráð var. Hann lýsti því hvernig tekið var tillit til athugasemda og samskipta sem fóru á milli en allar séu þessar upplýsingar tiltækar í skjalakerfi Seðlabankans. Hann kvaðst hafa reynt að hafa fundargerðirnar eins áreiðanlegar og hann gat. Í upphafi hafi þær verið efnisminni, en eftir því sem ástandið varð alvarlegra urðu fundargerðirnar ítarlegri, auk þess sem það var í samræmi við vilja formanns samráðshópsins og annarra meðlima hans. Tryggvi taldi það sem fram kom á fundinum hafa verið trúnaðarupplýsingar og lýsti hann upplýsingunum sem fram komu bæði frá einstökum stofnunum og ráðuneytum og í umræðu meðal nefndarmanna. Tryggvi kvaðst hafa átt hlutabréf í öllum íslensku bönkunum og kvaðst hann hafa talið að hann gæti ekki átt viðskipti með hlutabréfin meðal annars vegna upplýsinga sem hann fékk með setu sinni í samráðshópnum. Nánar aðspurður, síðar í skýrslutökunni, greindi Tryggvi svo frá að vegna starfs síns í Seðlabanka og vegna setu í samráðshópnum og vegna hluta sem hann yrði áskynja í starfi sínu væru honum mjög miklar takmarkanir settar varðandi viðskipti með hlutabréf.
Tryggvi sat fund samráðshópsins 22. júlí 2008. Þar koma fyrst fram upplýsingar um að FSA hafi hvatt Landsbankann til að flytja innlánasafn sitt í þarlent dótturfélag. Þá hafi verið rædd slæm staða tryggingasjóðsins og rætt að sjóðurinn gæti ekki staðið við lágmarkstryggingu um innstæðuvernd og Jónas Friðrik hefði sagt að sjóðurinn gæti staðið við skuldbindingar ef Sparisjóði Mýrasýslu færi, en um leið tæmdist sjóðurinn.
Tryggvi staðfesti fyrir dóminum að upplýsingarnar sem raktar voru hefðu komið fram á fundinum.
Tryggvi sat fund samráðshópsins 31. júlí 2008. Þar hafi Ingimundur Friðriksson upplýst um fimm milljarða sterlingspunda hámark á Icesave fram að yfirfærslu. Þá kom fram að FSA hefði sett fram kröfur í síðustu viku af mikilli hörku og rædd hafi verið möguleg yfirfærsla. Ákærði hefði spurt hvenær tilkynnt hafi verið um hámarkið. Ingimundur hefði minnst á að gæta þyrfti sérstaklega að trúnaðarupplýsingum sem þessum. Þá er bókað eftir ákærða að hann hefði talið það geta orðið banabita íslensku bankanna ef umræða um veikaleika tryggingasjóðsins færi af stað. Ingimundur hefði upplýst að Seðlabankinn setti þrýsting á Landsbanka Íslands um að klára yfirfærsluna. Þá hafi Jónas Friðrik greint frá áhyggjum FSA af íslenska tryggingasjóðnum.
Tryggvi staðfesti fyrri dóminum að upplýsingarnar sem raktar voru hefðu komið fram á fundinum. Hann kvað upplýsingarnar um fimm milljarða hámarkið hafa borist frá FME og Seðlabankinn hefði þetta ekki frá fyrstu hendi.
Tryggvi sat fund samráðshópsins 12. ágúst 2008. Áfram var ræddur erindisrekstur FSA. Þá spurði ákærði hvort komið væri samkomulag í grundvallaratriðum þótt enn væru lausir endar. Jónas Friðrik hefði greint frá nýjum vendingum í málinu, meðal annars höfnun FSA á hugmynd Landsbankans um að leggja innlán sem fóru upp fyrir hámarkið á reikning í Seðlabanka. Jónas Friðrik hefði greint frá því að komið væri að þolmörkum Landsbankans varðandi það hversu langt bankinn gæti teygt sig. Þá er haft eftir ákærða að Landsbankinn gæti lent í þeirri aðstöðu að ganga að óásættanlegum kröfum við yfirfærslu innlána í dótturfélag, eða að halda þeim áfram í útibúi sem væri erfitt fyrir íslensk stjórnvöld. Þá kom fram á fundinum að FSA hefði fundist Landsbankinn ganga of hart fram í vaxtaboðum og auglýsingum. Þá voru rædd málefni tryggingasjóðsins, bókað eftir ákærða, sem spurði hvaða úrræði íslensk stjórnvöld hefðu til að ýta innlánum yfir í dótturfélag erlendis og lýsti hann því að þetta væri mikið áhyggjuefni og ástæða til að skoða möguleikana í heild. Þá var farið yfir erfiðleika tryggingasjóðsins. Síðan var bókað eftir Ingimundi að sú tímasprengja sem hættulegust væri væru innlánin erlendis.
Tryggvi staðfesti fyrir dóminum að upplýsingarnar sem raktar voru hefðu komið fram á fundinum. Hann kvaðst ekki viss um það hvort á þessum tíma hefðu verið komnar fram upplýsingar um fimm milljarða punda hámakið. Hins vegar hafi áhyggjur FSA verið ljósar og viðleitni þeirra í því að takmarka áhættuna sem uppbygging innstæðnanna gat haft fyrir bresk yfirvöld.
Tryggvi sat fund samráðshópsins 20. ágúst 2008. Á fundinum var í upphafi gerð grein fyrir fundi Jónasar Friðriks og Jóns Sigurðssonar með FSA í London 18. ágúst og þar hefðu Bretarnir greint frá því að þeir teldu mikla hættu á innlánsáhlaupi gagnvart Landsbankanum, auk þess að greina frá áhyggjum af auglýsingaherferð Landsbankans og hefðu þeir nefnt að bankinn væri i ekki samvinnuþýður. Þá hafi FSA haldið við það að aðgerðir þeirra stæðust Evrópurétt. Greint var frá fundi Landsbankans og FSA 19. ágúst þar sem fram komu skýr skilaboð FSA um kröfur á hendur Landsbankanum. Jónas Friðrik hefði greint frá því að kröfur FSA færu stigmagnandi og nú væri gerð krafa um yfirfærslu án skilyrða. Ákærði hefði spurt hver vandkvæði Landsbankans væru í þessari stöðu auk þess að spyrja um tímafresti FSA. Þá er haft eftir Bolla Þór að hann skilji afstöðu breskra yfirvalda og að hann sæi að Landsbankinn væri ekki í nokkurri aðstöðu til að andmæla. Þá hefði Jónas Friðrik greint frá því að allar líkur væru á samskiptum breskra og hollenskra stjórnvalda um þennan vanda.
Tryggvi staðfesti fyrir dóminum að upplýsingarnar sem raktar voru hefðu komið fram á fundinum.
Tryggvi sat fund samráðshópsins 4. september 2008. Þar kom meðal annars fram að Hollendingar hygðust stöðva innlánasöfnun Landsbankans þar í landi. Bolli Þór hefði greint frá því að þær kröfur væru efnislega hinar sömu og kröfur FSA. Jónas Friðrik nefndi að ef misskilningur sem var uppi varðandi tryggingasjóðinn yrði leiðréttur opinberlega kynni það eitt og sér að valda útstreymi innlána úr íslensku bönkunum. Þá hafi Jónína og ákærði greint frá því áliti sínu að starfsmenn Landsbankans í London sem þau hittu áttuðu sig ekki fyllilega á stöðunni. Þá er bókað eftir ákærða að ljóst sé að FSA gæfi hvergi eftir. Þá var farið yfir fundinn með Alistair Darling 2. september 2008 og þar haft eftir Jónínu að Darling hefði gert ráð fyrir því að bresk yfirvöld myndu ábyrgjast innstæðurnar að fullu og spurt hvert ætti að senda reikninginn. Haft er eftir Bolla Þór að Landsbankamenn þráist enn við að skilja alvöruþunga breskra og hollenskra stjórnvalda.
Tryggvi staðfesti fyrir dóminum að upplýsingarnar sem raktar voru hefðu komið fram á fundinum.
Tryggvi sat fund samráðshópsins 9. september 2008. Ákærði hefði nefnt að færa þyrfti yfir miklar eignir til að geta haldið því uppstreymi fjármagns sem eftir yrði. Jónas Friðrik hefði nefnt að mál Landsbankans væri langstærsti höfuðverkurinn og spurt hvort lánardrottnar gerðu kröfur vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu. Þá hafi Jónas lýst því að litið væri á fjármálakerfið íslenska sem veikan kanarífugl í námunni.
Tryggvi staðfesti fyrir dóminum að upplýsingarnar sem raktar voru hefðu komið fram á fundinum.
Tryggvi sat fund samráðshópsins 16. september 2008. Á fundinum voru rædd málefni tryggingasjóðs og greint frá því að stjórnendur FSA sætu þá fund um málefni Landsbankans. Þá var farið yfir ,,ólystuga matseðilinn“. Bolli Þór hafði eftir ráðherrum sem hann hitti á fundi að ekki væri ætlunin að bjarga hluthöfum bankanna, kæmi til fjármálaáfalls.
Tryggvi staðfesti fyrir dóminum að upplýsingarnar sem raktar voru hefðu komið fram á fundinum. Aðspurður kvaðst Tryggvi ekki minnast þess að neitt hefði komið fram á fundinum 16. september sem gaf til kynna að samskipti Landsbankans og FSA væru að ná landi. Hann kvað aldrei hafa verið uppi þá stöðu að samkomulag næðist í samskiptum bankans og FSA. Landsbankinn hefði greint frá gangi þessa frá upphafi og að bakslag hefði komið í samskiptin. Tryggvi mundi eftir frásögn Bolla Þórs af fundi hans með ráðherrunum og lýsti hann umræðunum um þetta, meðal annars viðbrögðum stjórnvalda og að sér hefði fundist athyglisvert það sem Bolli Þór greindi frá um það hvernig tekið yrði á málum kæmi til fjármálaáfalls, því það hafi ekki verið sjálfgefið hvernig tekið yrði á vandanum sem upp kæmi og hvar stjórnvöld vildu draga línur. Við vinnuna að viðbragðsáætlun var tekið mið af aðstæðum sem virtust vera að skapast og vinnan við þetta hefði verið orðin mjög brýn, óháð því hvenær þyrfti að grípa til viðbragðsáætlunarinnar. Tryggvi kvaðst hafa talið að vinna hefði þurft hraðar að þessu og fleiri hafi verið sama sinnis. Tryggvi var spurður hvort hálfs árs uppgjör bankanna hefði gefið til kynna einhverja sérstaka vá fyrir dyrum. Hann lýsti vinnu Seðlabankans í greiningu að þessu leyti og nefndi að allt frá nóvember 2003 hefði aldrei verið sagt að ástandið væri að batna. Hann lýsti áhyggjum Seðlabanka af lausafjárstöðu bankanna og skýrði það nánar. Hann lýsti vinnu samráðshópsins og stofnana sem þar áttu fulltrúa til að undirbúa viðlagaáætlun og þær hafi byggt á því að átakapunkturinn yrði um miðjan október 2008. Aðspurður hvort einhver vafi hefði verið um fjárhagslegt bolmagn tryggingasjóðsins á þeim tíma sem hér um ræðir kvað Tryggvi FME hafa unnið að úttekt á því hvað tryggingasjóðurinn þyrfti að leggja út ef illa færi. Þær niðurstöður hafi verið kynntar á fundum samráðshópsins.
Vitnið Þórður Örlygsson var regluvörður Landsbanka Íslands á þeim tíma sem hér um ræðir. Hann lýsti starfi regluvarðar í bankanum en starf hans fólst meðal annars í því að framfylgja reglum bankans um meðferð innri upplýsinga og viðskipti innherja, frumherja og tímabundinna innherja samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti. Hann hefði fengið sínar upplýsingar frá framkvæmdastjóra lögfræðisviðs bankans. Þórður kvaðst á þeim tíma sem hér um ræðir engar upplýsingar hafa fengið um kröfur FSA um yfirfærslu Icesave í dótturfélag í Bretlandi. Hann kvað augljóst, miðað við upplýsingar sem hann hefði í dag, að sér hefði ekki verið gerð grein fyrir því hversu alvarleg staðan var og átti hann þá við hámark á innstæður á Icesave reikninga í Bretlandi. Hann kvaðst engar upplýsingar hafa haft á þessum tíma um það hvort sett hafi verið hámark á innstæður. Hann kvaðst því ekki hafa haft nægar upplýsingar til að meta hvort um innherjaupplýsingar hafi verið að ræða varðandi það sem rakið var.
Vitnið Gunnar Viðar var forstöðumaður lögfræðiráðgjafar Landsbanka Íslands sumarið og haustið 2008. Hann lýsti samskiptum bankans við FSA, en hann kvaðst hafa annast þau samskipti í samráði við bankastjóra bankans, en mjög fáir innan bankans vissu af samskiptunum við FSA, eða fjórir til fimm starfsmenn að hann taldi. Ástæðan hafi verið sú að upplýsingarnar hafi verið taldar miklar trúnaðarupplýsingar. Hjá lögreglu greindi Gunnar svo frá að ástæða þess að svo fáir vissu af samskiptum við FSA hafi verið sú að menn óttuðust áhlaup á bankann yrðu upplýsingarnar kunnar. Fyrir dóminum lýsti Gunnar því að menn hafi löngum óttast áhlaup á bankann árið 2008 eins og á erlenda banka óháð rekstri og afkomu þeirra, eins og erlend dæmi sýndu að hans sögn. Upplýsingarnar sem hér um ræðir hafi því verið trúnaðarupplýsingar fyrir bankann. Gunnar kvaðst muna óljóst eftir fundi bankastjóra Landsbankans með Jónínu og ákærða 13. ágúst 2008. Hann mundi lítið eftir fundinum og tilefni hans, en taldi sig hafa tekið saman gögn vegna fundarins. Aðspurður hvort eitthvað hafi gerst í samskiptum Landsbankans og FSA um miðjan september 2008 sem gaf til kynna að málið væri að leysast varðandi yfirfærsluna kvaðst hann ekki minnast þess, menn hafi hins vegar stöðugt færst nær lausn. Hann lýsti vinnu sem fram fór innan bankans við yfirfærsluna. Hann kvaðst telja óljósan lagagrundvöll sem FSA hafði uppi í bréfasamskiptum sínum við Landsbankann varðandi takmörkun innlána og yfirfærsluna og fleira og lýsti hann þessu nánar en kvað FSA hins vegar hafa haft mjög víðtækar heimildir. Gunnar kvað samskipti Landsbankans við bankayfirvöld í Hollandi hafa verið óformlegri heldur en samskiptin við FSA. Hann lýsti fundi með Hollendingunum þar sem fram kom beiðni þeirra um að hætta að taka við innlánum í Hollandi. Landsbankinn hafi beðið um að nánari grein yrði gerð fyrir þessari ósk og þá hafi Hollendingarnir lýst almennum áhyggjum af íslensku efnahagslífi. Þessu hafi ekki verið fylgt eftir með valdboði, en fundað hafi verið um þetta, að hann taldi snemma í september 2008.
Vitnið Sigurjón Árnason var annar Landsbankastjóra á þeim tíma sem hér um ræðir. Hann kvað bankastjóra Landsbanka hafa setið fund 13. ágúst 2008, ásamt Jónínu, ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðuneytinu, og ákærða. Hann lýsti aðdraganda fundarins og tilefni, en það hafi tengst fyrirhugaðri ferð viðskiptaráðherra til Bretlands. Erindið til Bretlands var að reyna að fá Bretana til að fallast á að hægt væri að breyta útibúi Landsbankans í Bretlandi í dótturfélag þannig að bankinn gæti gert það en ekki eftir kröfum sem bresk yfirvöld hefðu gert, en þær hefðu verið óleysanlegar að hans sögn. Hann lýsti þessu nánar og að Bretar hefðu verið mjög ósveigjanlegir og því hafi verið talið að málið væri komið á pólitískt stig og því hafi ráðherrann farið út. Sigurjón lýsti samskiptum bankans við Breta og að í lok maí 2008 hefði fundist lausn sem Bretar voru sáttir við. Hann kvað viðhorf Bretanna hafa breyst í júlí 2008 eftir umræður um málið í breska þinginu. Þá hefði málið verið tekið upp að nýju og eftir það hafi Bretar verið mjög ósveigjanlegir og ekki viljað koma til móts við Landsbankann til að ná lausn. Hann lýsti því hvers vegna Landsbankinn gat ekki orðið við kröfum Bretanna. Það var vegna þess að færa þurfti eignir frá móðurfélaginu í dótturfélag í Bretlandi í einu lagi. Þetta hefði ekki verið hægt því þá hefði bankinn brotið gegn ákvæðum í lánasamningum sínum sem hefði getað leitt til uppsagnar með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir bankann. Þessu hefði verið komið á framfæri við FSA, en þeir verið ósveigjanlegir og beðið um framkvæmd sem var ómöguleg að hans sögn. Þetta mál hafi verið rætt á fundinum 13. ágúst 2008 sem getið var um að framan og þar verið kynnt bréfaskipti bankans og FSA. Aðspurður hvort búið hafi verið að leysa málið varðandi yfirfærslurnar um miðjan september 2008 kvað hann málið aldrei hafa leyst. Málið hafi verið fast, eins og lýst var, og engin þáttaskil verið um miðjan september 2008. Aðspurður um fimm milljarða punda hámarkið á Icesave, kvað hann aldrei hafa reynt á það. Aðspurður hvort hámarkið hafi verið komið á formlega, kvað hann það hafa verið rætt og skilgreiningaratriði hvort það hafi verið formlega komið á eða ekki, en kvaðst geta ímyndað sér að FSA hafi talið hámarkið komið á. Borið var undir vitnið bréf FSA, dagsett 5. ágúst 2008 til beggja Landsbankastjóra, þar sem fram komu upplýsingar um fimm milljarða punda hámarkið á Icesave innstæðurnar. Sigurjón lýsti þá afstöðu bankans um hæpnar lagalegar forsendur FSA varðandi þetta, en það hafi verið álitaefni FSA samkvæmt bréfinu hvort hámarkið hafi verið komið á. Hann mundi ekki hvort bankinn hefði samþykkt hámarkið en bankinn hefði ekki verið í aðstöðu til að andmæla FSA þótt lagagrundvöllur FSA væri hæpinn að mati bankans og skýrði Sigurjón þetta nánar.
Vitnið Halldór J. Kristjánsson var annar bankastjóra Landsbankans á þeim tíma sem hér um ræðir. Hann lýsti fundi bankastjóranna og Jónínu Sigrúnar Lárusdóttur, ráðuneytisstjóra viðskiptaráðuneytisins, og ákærða 13. ágúst 2008.
Hann kvaðst telja að tilefni fundarins hafi verið bréfaskipti bankans og FSA í júlí eða ágúst 2008. Eftir að í ljós kom að FSA hafði sent afrit bréfaskiptanna til breska fjármálaeftirlitsins hafi þótt eðlilegt að kynna íslenskum stjórnvöldum málið og stöðu viðræðna við FSA. Á þeim tíma hafi verið hafnar endurnýjaðar viðræður um að dótturfélagavæða starfsemi Icesave-reikninganna í London og um tilhögun um færslu eigna á móti. Halldór lýsti þessu nánar og vandkvæðum Landsbankans við framkvæmdina. Hann lýsti tilraunum Landsbankans við að reyna að fá frest til að framkvæma þetta. Fundurinn hafi verið liður í því að fá stuðning við þessi sjónarmið bankans um að færa eignir í tveimur áföngnum og að fá lengri tíma til verksins. Hann kvað kröfur FSA hafa breyst en áður hafði náðst samkomulag við FSA 29. maí 2008 og þá hafði FSA dregið til baka kröfuna um að færa starfsemi Icesave i dótturfélag. Krafan um dótturfélagavæðinguna hafi síðan komið upp aftur og nýjar kröfur um það komið fram um mánaðamótin júlí/ágúst 2008. Eftir þetta snerust viðræðurnar um hinar nýju og breyttu kröfur. Hann kvað fáa innan bankans hafa vitað af kröfum FSA og starfsmenn voru bundnir trúnaði um þetta. Halldór kvað hafa verið vandasamt fyrir bankann að verða við kröfum FSA um að yfirfærslan færi fram í einu lagi og lýsti hann ástæðunum, m.a. vegna ákvæða í lánasamningum bankans. Hann kvað ýtrustu kröfur Breta hafa komið fram í bréfasamskiptunum og á fundum hafi þeir verið fullir vilja til samvinnu og að finna lausnir og kvað hann sér hafa verið ljóst að Bretarnir myndu ekki knýja fram lausn sem bankinn gæti ekki staðið við. Það hefði verið andstætt þeirra hagsmunum.
Halldór kvað samskiptin við FSA um yfirfærsluna enn hafa verið í viðræðuferli 16. september 2008. Þá höfðu engir úrslitakostir verið gefnir út. Spurður hvort umræður hefðu orðið um að upplýsingarnar um það sem hér um ræðir kynnu að vera innherjaupplýsingar kvaðst Halldór hafa talið að upplýsingarnar væru trúnaðarupplýsingar en hann kvaðst ekki hafa talið að þær væru verðmyndandi. Aðspurður hvort hann hefði talið að upplýsingarnar sem hér um ræðir gætu valdið áhlaupi á bankann spyrðust þær út tók Halldór fram að allur órói í kringum banka og neikvæðar fréttir af banka við aðstæður sem þessar sé eitt af því sem menn forðist með öllum ráðum til að forðast þá áhættu enda áhlaup á banka það alvarlegasta sem fyrir banka geti komið.
Niðurstaða
Ákærði neitar sök og kveðst ekki hafa búið yfir innherjaupplýsingum er hann seldi hlutabréf sín í Landsbanka Íslands hf. 17. og 18. september 2008.
Ákærða eru gefin að sök innherjasvik í opinberu starfi sem ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins með því að hafa selt öll hlutabréf sín í Landsbanka Íslands hf. hinn 17. og 18. september 2008, þrátt fyrir að hafa þá búið yfir innherjaupplýsingum um bankann sem hann varð áskynja í starfi sínu sem ráðuneytisstjóri, einkum í tengslum við setu sína í samráðshópi, eins og lýst er í ákærunni, auk upplýsinga sem fram komu á fundi með bankastjórum Landsbanka Íslands 13. ágúst 2008 og á fundi með fjármálaráðherra Bretlands 2. september 2008. Segir í ákærunni að innherjaupplýsingarnar hafi verið líklegar til að hafa marktæk áhrif á markaðsverð hlutabréfanna í bankanum yrðu þær opinberar.
Í þeim kafla ákæru þar sem brot ákærða eru færð til refsiákvæða segir að innherjasvik hans hafi falist í því að hagnýta sér upplýsingarnar sem um ræðir.
Verjandi ákærða telur að með þessu sé gerður meiri áskilnaður um brotalýsingu en mælt sé fyrir um í 1. tl. 1. mgr. 123. gr. laga nr. 108/2007 sem ákærða er gefið að sök að hafa gerst brotlegur við.
Ætluðu broti ákærða er lýst í upphafskafla ákæru svo, að honum er gefið að sök að hafa selt öll hlutabréf sín í Landsbanka Íslands, þrátt fyrir að hafa búið yfir innherjaupplýsingum eins og nánar er lýst. Þarna er lýst brotinu sjálfu og enginn viðbótaráskilnaður verður skilinn með hinum tilvitnuðu orðum í heimfærslukafla ákærunnar. Kom þetta sjónarmið ákæruvaldsins einnig skýrt fram við flutning málsins.
Eins og rakið var að framan voru fundargerðir samráðshópsins ekki undirritaðar og staðfestar af meðlimum hópsins og hefur verjandi ákærða andmælt sönnunargildi fundargerðanna. Allir sem sátu þá sex fundi samráðshópsins sem vitnað er til í ákæru komu fyrir dóminn undir aðalmeðferð málsins. Öll staðfestu vitnin að það sem skráð er í fundagerðirnar eða drögin hafi komið fram á fundunum. Hið sama á við um vitnisburð bankastjóra Landsbankans sem báru um fundinn 13. september 2008. Vísað er til þess sem um þetta var rakið að framan. Er samkvæmt þessu sannað, með vitnisburði vitna sem báru um hvern og einn fund samráðshópsins sem hér um ræðir og með drögum að fundargerðum og með framburði ákærða að hluta, að fundargerðirnar og upplýsingarnar af fundunum sem í ákæru greinir og eru taldar hafa verið innherjaupplýsingar komu fram á þessum sex fundum samráðshópsins og á fundinum með bankastjóra Landsbankans 13. ágúst 2008 og með fjármálaráðherra Bretlands 2. september 2008.
Að framan var vikið að samráðshópnum, stofnun hans, tilgangi og fleiru. Þeir sem í hópnum sátu þann tíma sem í ákæru greinir lýstu trúnaði sem ríkti og að upplýsingarnar sem fram komu hafi verið trúnaðarupplýsingar og mjög viðkvæmar, yrðu þær opinberar. Reifunin hér að framan hefur að þessu leyti beinst sérstaklega að upplýsingum sem fram komu um Landsbanka Íslands og var mikið af þeim upplýsingum þessu marki brennt og mörg vitni sem báru um þetta og lýstu mikilvægi upplýsinganna að þessu leyti og hversu varlega var farið með þær. Auk þess kom ítrekað fram á fundum samráðshópsins að nefndarmenn voru minntir á mikilvægi þess að gæta trúnaðar um það sem fram fór.
Það er mat dómsins að meðlimir samráðshópsins hafi haft stöðu annars innherja í skilningi 3. tl. 1. mgr. 121. gr. laga nr. 108/2007, er samráðshópurinn fjallaði um upplýsingar sem vörðuðu íslenskar fjármálastofnanir. Á þetta alveg sérstaklega við um upplýsingarnar um Landsbanka Íslands sem mest var til umræðu á fundum samráðshópsins á þeim tíma sem hér um ræðir, en lítið af þeim upplýsingum sem hér skipta máli var opinbert á þessum tíma. Þá var ljóst í mörgum tilvikum hver yrðu líkleg áhrif á markaðsverð hlutabréfa í bankanum yrðu upplýsingarnar opinberar. Allar þessar upplýsingar fékk ákærði með setu sinni í samráðshópnum, en hann sat alla fundi hópsins á tímabilinu 22. júlí 2008 til 16. september 2008. Vegna þessa má vísa til vitnisburðar Bolla Þórs Bollasonar og Tryggva Pálssonar sem hvorugur taldi sig geta selt hlutbréf sín í bönkum eins og rakið var en vitnisburður þeirra um þetta ræður ekki úrslitum um niðurstöðu málsins.
Trúnaðurinn einn nægir ekki til að taka afstöðu til sektar ákærða. Taka verður afstöðu til þess hvort einstök tilvik sem í ákæru greinir uppfylli skilyrði laga um að teljast hafa verið innherjaupplýsingar á hverjum tíma. Á því er byggt í ákæru að ákærði hafi verið annar innherji í skilningi 3. tl. 1. mgr. 121. gr. laga nr. 108/2007. Í lagagreininni segir að annar innherji sé aðili sem hvorki teljist fruminnherji né tímabundinn innherji, en hefur fengið vitneskju um innherjaupplýsingarnar, enda hafi viðkomandi vitað, eða mátt vita, hvers eðlis upplýsingarnar voru. Ákærði, með sína þekkingu, vissi eða mátti vita hvers eðlis upplýsingarnar sem hér um ræðir voru að þessu leyti. Samkvæmt 1. mgr. 120. gr. laga nr. 108/2007 er með innherjaupplýsingum átt við nægjanlega tilgreindar upplýsingar sem ekki hafa verið gerðar opinberar og varða beint eða óbeint útgefendur fjármálagerninga, fjármálagerningana sjálfa eða önnur atriði og eru líklegri til að hafa marktæk áhrif á markaðsverð fjármálagerninganna ef opinberar væru eins og nánar er kveðið á um í 2. gr. reglugerðar nr. 630/2005, er þetta varðar og er svohljóðandi:
,,Með innherjaupplýsingum er átt við nægjanlega tilgreindar upplýsingar sem ekki hafa verið gerðar opinberar og varða beint eða óbeint útgefendur verðbréfa, verðbréfin sjálf eða önnur atriði og eru líklegar til að hafa marktæk áhrif á markaðsverð fjármálagerninganna ef opinberar væru, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 57. gr. laga nr. 33/2003, um verðbréfaviðskipti.
Litið skal svo á að upplýsingar séu nægjanlega tilgreindar ef þær gefa til kynna aðstæður sem eru fyrir hendi eða sem ætla má að verði fyrir hendi eða atburð sem hefur átt sér stað eða sem ætla má að muni eiga sér stað. Upplýsingarnar verða þó að vera nægilega nákvæmar til að unnt sé að draga ályktun um möguleg áhrif þeirra aðstæðna eða atburðar á verð fjármálagerninga eða afleiddra fjármálagerninga sem þeim tengjast.
Innherjaupplýsingar sem væru líklegar til að hafa marktæk áhrif á verð fjármálagerninga eða afleiddra fjármálagerninga sem þeim tengjast, yrðu þær gerðar opinberar, eru þær upplýsingar sem líkur eru á að upplýstur fjárfestir noti sem hluta af þeim grunni sem hann byggir fjárfestingarákvarðanir sínar á.“
Verjandi ákærða telur skorta á skýrleika refsiheimilda í málinu þar sem ekki hafi verið gefin út reglugerð á grundvelli 131. gr. laga nr. 108/2007 eins og mælt er fyrir um í 1. mgr. 120. gr. laganna. Reglugerð nr. 630/2005, sem vísað er til í ákærunni, var sett með heimild í lögum nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti. 120. gr. laga nr. 108/2007 er efnislega samhljóða 57. gr. laga nr. 33/2003, sbr. breytingalög nr. 31/2005. Þegar þannig háttar hefur verið litið svo á í réttarframkvæmd að eldri stjórnvaldsfyrirmæli haldi gildi sínu þar til ný eru sett á grundvelli yngri laga. Samkvæmt þessu þykir hvorki skorta refsiheimildir né skýrleika þeirra að þessu leyti.
Í 2. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 630/2005 er fjallað um það hvenær upplýsingar sem hér um ræðir séu nægjanlega tilgreindar. Ákærði var upplýstur fjárfestir með víðtæka reynslu eftir því sem fram hefur komið undir rekstri málsins. Upplýsingarnar sem um ræðir í ákæruliðum 1-6 voru því að mati dómsins í öllum tilvikum nægjanlega tilgreindar til að ákærði gæti dregið ályktun um möguleg áhrif þeirra aðstæðna og/eða atburða á verð fjármálagerninga, hér hlutabréfanna, eða afleiddra fjármálagerninga sem þeim tengjast eins og lýst er í 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar nr. 630/2005. Það er mat dómsins að þær upplýsingar sem lýst er í liðum 1-6 í ákæru séu slíkar að líkur séu á að upplýstur fjárfestir noti þær sem hluta af þeim grunni sem hann byggir fjárfestingaákvarðanir sínar á, sbr. 3. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar nr. 630/2005, en ákærði var eins rakið var upplýstur fjárfestir.
Í 120. gr. laga nr. 107/2008 er því lýst að upplýsingar sem gerðar hafi verið opinberar verði ekki metnar sem innherjaupplýsingar. Í 120. gr. i.f. segir að upplýsingarnar teljist opinberar þegar útgefandi fjármálagerninga hefur birt almenningi á Evrópska efnahagssvæðinu þær, sbr. 122. og 127. gr. laganna. Í þessum lagagreinum er lýst reglum um birtingu upplýsinga og nánar er kveðið á um sama efni í 3. kafla reglugerðar nr. 707/2008 um upplýsingagjöf og tilkynningaskyldu skv. lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Eins og síðar verður rakið telur dómurinn ósannað að ákvörðun hafi verið tekin um fimm milljarða punda hámarkið sem lýst er í 2. lið ákæru og þá telur dómurinn að upplýsingarnar sem í 3. lið ákæru greinir hafi verið opinberar. Að þessu frátöldu liggur fyrir að ekkert af þeim upplýsingum sem í 1.-6. lið ákæru greinir hafi verið birt opinberlega og er því í öllum tilvikum uppfyllt lagaskilyrðið um að upplýsingarnar hafi ekki verið opinberaðar í skilningi laga.
Verður nú vikið að hverjum og einum tölulið ákærunnar og afstaða tekin til þess hvort upplýsingarnar sem þar er getið um hafi verið innherjaupplýsingar eins og á stóð.
- Sannað er með vitnisburði allra sem sátu fundi samráðshópsins á þeim tíma sem hér um ræðir og vitnisburði bankastjóra Landsbankans og með öðrum gögnum málsins að breska fjármálaeftirlitið gerði þá kröfu til Landsbanka Íslands sem lýst er í þessum ákærulið. Á sama hátt er sannað að Landsbankinn átti í erfiðleikum með að verða við þessum kröfum. Allt kom þetta fram og var rætt á fundum samráðshópsins sem í ákæru greinir en erfiðleikarnir komu einnig fram á fundinum með bankastjórum Landsbankans 13. ágúst 2008. Ákærði sat alla þessa fundi. Ljóst er af því sem rakið var um þennan ákærulið og af sjálfu leiðir að um upplýsingarnar ríkti mikill trúnaður og upplýsingarnar voru viðkvæmar yrðu þær opinberar. Upplýsingarnar sem hér um ræðir voru ítarlega ræddar í samráðshópnum, tímafrestir og fleira, og voru upplýsingarnar nægjanlega tilgreindar og uppfylla þær lagaskilyrði þar um eins og rakið var. Þá er það mat dómsins að ljóst sé að upplýsingarnar voru líklegar til að hafa áhrif á verð hlutabréfa í bankanum yrðu þær opinberar og vísast um það sem rakið var að framan um þetta. Er því sannað með öllu ofanrituðu, gegn neitun ákærða, að upplýsingarnar sem hér um ræðir voru innherjaupplýsingar, sbr. 1. mgr. 120. gr. laga nr. 108/2007.
- Vísað er til alls þess sem rakið var að framan og vitnisburðar um það hvort ákvörðun um fimm milljarða sterlingspunda hámark innstæðna hafi verið tekið af breska fjármálaeftirlitinu á þeim tíma er ákærði seldi hlutabréf sín í Landsbankanum hinn 17. og 18. september 2008. Það er mat dómsins að ósannað sé að þessi ákvörðun hafi verið tekin á þessum tíma og kemur því ekki til þess að meta hvort ákærði hafi búið yfir innherjaupplýsingum um þetta.
Hins vegar er sannað með vitnisburði sem rakinn var um fundi samráðshópsins á því tímabili sem hér um ræðir, og með öðrum gögnum málsins, að tilmæli FSA voru þau sem lýst er í þessum ákærulið og tilraunir sama aðila til að takmarka markaðssetningu Landsbankans á Icesave eins og rakið er. Allt kom þetta fram og var rætt á fundum samráðshópsins á því tímabili sem í ákæru greinir og ákærði sat fundina. Ljóst er á því sem rakið var um þennan ákærulið, og af sjálfu leiðir, að um þessar upplýsingar ríkti mikill trúnaður og upplýsingarnar voru viðkvæmar yrðu þær opinberar. Upplýsingarnar sem hér um ræðir voru ítarlega ræddar af samráðshópnum og voru upplýsingarnar nægjanlega tilgreindar til að uppfylla lagaskilyrði um innherjaupplýsingar. Þá má ráða af öllu því sem rakið hefur verið að framan að upplýsingarnar voru líklegar til að hafa áhrif á verð hlutabréfa í bankanum yrðu þær opinberar. Er því sannað með öllu ofanrituðu, gegn neitun ákærða, að upplýsingarnar sem hér um ræðir voru innherjaupplýsingar, sbr. 1. mgr. 120. gr. laga nr. 108/2007.
- Í lögum nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta er lýst hvernig tryggingasjóðurinn er fjármagnaður. Af lögunum og reikningum sjóðsins, sem eru opinberir og aðgengilegir á netinu, mátti ráða stöðu sjóðsins að hluta. Samkvæmt vitnisburði Ingimundar Friðrikssonar var unnt að afla sér upplýsinga um heildarinnlán banka á þeim tíma sem hér um ræðir, þar með talið Landsbanka Íslands. Þá liggur fyrir samkvæmt gögnum málsins að opinber umræða fór fram á þessum tíma um veika stöðu sjóðsins. Að öllu þessu virtu er það mat dómsins að það sem fram kom á fundum samráðshópsins um stöðu sjóðsins og getu til að tryggja innstæður á Icesave reikningunum hafi ekki verið neitt sem skipti máli umfram það sem opinbert gat talist. Kemur þegar af þessari ástæðu ekki til álita að virða upplýsingarnar sem ákærði komst yfir við setu í samráðshópnum um þetta sem innherjaupplýsingar.
- Vísað er til vitnisburðar þeirra sem sátu fund samráðshópsins 4. september 2008. Er sannað með vitnisburði þeirra og með öðrum gögnum málsins að Seðlabanki Hollands hugðist stöðva frekari innlán á Icesave reikningum í Hollandi. Áður var lýst trúnaði sem gilti um upplýsingar sem fram komu á fundum samráðshópsins. Upplýsingarnar sem hér um ræðir voru mjög viðkvæmar yrðu þær opinberar. Upplýsingarnar um þetta voru ræddar í samráðshópnum og voru nægjanlega tilgreindar til að uppfylla skilyrði laganna um innherjaupplýsingar. Augljóst er að þær voru líklegar til að hafa áhrif á verð hlutabréfa í bankanum yrðu þær opinberar. Er því sannað með öllu ofanrituðu, gegn neitun ákærða, að upplýsingarnar sem hér um ræðir voru innherjaupplýsingar, sbr. 1. mgr. 120. gr. laga nr. 108/2007.
- Vísað er til vitnisburðar þeirra sem sátu fundinn með breska fjármálaráðherranum 2. september 2008 er rakinn var að framan. Er sannað með þeim vitnisburði, og með öðrum gögnum málsins, að upplýsingarnar sem í þessum ákærulið greinir komu fram á fundinum sem hér um ræðir. Upplýsingarnar eru að hluta hinar sömu og komu fram á fundum samráðshópsins á þeim tíma sem hér um ræðir, sbr. ákærulið 1 að framan. Þótt upplýsingarnar hafi þannig ekki verið nýjar var á þeim hnykkt á fundinum með breska fjármálaráðherranum og alvara málsins var ljós eins og vitni báru um. Upplýsingarnar sem ákærði varð áskynja á fundinum voru nægjanlega tilgreindar til að uppfylla skilyrði laganna um innherjaupplýsingar og þær voru ekki opinberar og augljóst að þær voru líklegar til að hafa áhrif á verð hlutabréfa í bankanum yrðu þær opinberar. Með þessu er sannað, gegn neitun ákærða, að upplýsingarnar sem hér um ræðir voru innherjaupplýsingar, sbr. 1. mgr. 120. gr. laga nr. 108/2007.
- Vísað er til vitnisburðar þeirra sem sátu fund samráðshópsins 16. september 2008, en vitnisburðurinn var rakinn að framan. Er sannað með þeim vitnisburði, og með öðrum gögnum málsins, að upplýsingarnar sem lýst er í þessum ákærulið komu fram á fundi samráðshópsins. Þótt engar ákvarðanir hafi verið teknar á fundinum og ekki hafi verið endanlega ljóst hvernig brugðist yrði við fjármálahruni voru upplýsingarnar um að ekki hafi staðið til að bjarga hluthöfum banka færi banki í þrot nægjanlega tilgreindar til að uppfylla skilyrði laganna um innherjaupplýsingar og augljóst að þær voru líklegar til að hafa áhrif á verð hlutabréfa í bankanum yrðu þær opinberar. Með þessu er sannað, gegn neitun ákærða, að upplýsingarnar sem hér um ræðir hafi verið innherjaupplýsingar, sbr. 1. mgr. 120. gr. laga nr. 108/2007.
Ákærði bar að margt hefði orðið þess valdandi að hann seldi hlutabréfin í Landsbankanum 17. og 18. september 2008. Eitt af því hafi verið að hann hafi talið að Landsbankinn og FSA væru að ná samkomulagi varðandi yfirfærsluna. Ekkert kom fram um þetta á fundi samráðshópsins 16. september 2008, daginn fyrir sölu hlutabréfanna. Má um þetta vísa til vitnisburðar þeirra sem sátu fundinn. Enginn vitnisburður styður mat ákærða um þetta. Samkvæmt þessu kom ekkert fram á fundi samráðshópsins 16. september 2008 sem gaf ákærða ástæðu til að draga þá ályktun að lausn væri fyrirsjáanleg í máli Landsbankans og FSA og að ákærði gæti þess vegna selt hlutabréf sín í bankanum. Þvert á móti komu fram á fundinum ákvarðanir ráðherra um að ekki stæði til að bjarga hluthöfum banka kæmi til fjármálaáfalls. Það er mat dómsins að ekkert hafi komið fram á ofangreindum fundi né hafi verið nokkuð fyrir hendi annað sem gaf til kynna að erfiðleikar Landsbankans varðandi yfirfærsluna væru að breytast í átt til lausnar.
Að frátöldum 3. lið ákæru og hluta 2. liðar, sem rakið var, bjó ákærði yfir þeim innherjaupplýsingum sem raktar voru og lýst er í ákærunni er hann seldi hlutabréf sín í Landsbanka Íslands hinn 17. og 18. september 2008 og var hann því innherji í skilningi 3. tl. 121. gr. laga nr. 108/2007. Með sölu hlutabréfanna braut ákærði gegn 1. tl. 1. mgr. 123. gr. laga nr. 108/2007 eins og í ákæru greinir. Auk þessa ber að vísa til 138. gr. almennra hegningarlaga þar sem ákærði framdi brot sín í opinberu starfi sem ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins. Brot ákærða varða allt að 6 ára fangelsi skv. 3. tl. 1. mgr. 146. gr. laga nr. 108/2007.
Til stuðnings sýknukröfu vísar verjandi ákærða til sjónarmiða um lögvillu. Ákærði gjörþekkir þau lagaákvæði sem mál þetta varða og er augljóst að honum er vel ljóst samhengi hluta sem máli skipta. Það er mat dómsins að ekkert af því sem verjandinn tilgreinir né annað komi til álita að virða sem lögvillu og er öllum þeim sjónarmiðum hafnað, en ekki þykir eins og á stendur ástæða til að rekja þau frekar.
Ákærði hefur ekki áður gerst brotlegur við lög. Brot ákærða eru stórfelld og brotaandlag hátt. Með broti sínu misnotaði ákærði stöðu sína sem opinber starfsmaður eins og lýst er í 138. gr. almennra hegningarlaga en þar segir að er þannig stendur á skuli viðkomandi sæta þeirri refsingu sem við broti liggur, en þó svo aukinni að bætt sé við hana allt að helmingi hennar. Að öllu þessu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákvörðuð fangelsi í 2 ár.
Krafist er upptöku á andvirði hinna seldu hlutabréfa að andvirði 192.658.716 krónur. Í ákærunni er vísað til heimildar 2. mgr. 147. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti og til 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga. Samkvæmt 3. tl. 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga má gera upptæka með dómi muni eða ávinning sem aflað hefur verið með broti og enginn á löglegt tilkall til eða fjárhæð sem svarar til slíks ávinnings eða muni sem keyptir eru fyrir ávinninginn. Ef ekki er unnt að færa fullar sönnur á fjárhæð ávinnings er dómara heimilt að áætla fjárhæðina. Samkvæmt 2. mgr. 147. gr. laga nr. 108/2007 er heimilt að gera upptækan með dómi beinan eða óbeinan hagnað sem hlotist hefur af broti gegn ákvæðum laganna er varða sektum eða fangelsi, en eins og rakið var varða brot ákærða allt að 6 ára fangelsi. Í máli þessu nemur brotaandlag þeirri fjárhæð sem krafist er að dæmd verði upptæk eða 192.658.716 krónum, en fjárhæðin hefur verið kyrrsett og sérgreind. Með vísan til 3. tl. 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga er framangreind fjárhæð dæmd upptæk.
Ákærði greiði allan sakarkostnað þar með taldar 4.543.100 krónur í málsvarnarlaun til Karls Axelssonar hæstaréttarlögmanns, en þóknunin er fyrir vinnu verjandans undir rannsókn málsins og við dómsmeðferð og er þóknun verjandans ávörðuð með virðisaukaskatti.
Björn Þorvaldsson saksóknari flutti málið fyrir ákæruvaldið.
Guðjón St. Marteinsson héraðsdómari kveður upp dóminn.
Dómsorð:
Ákærði, Baldur Guðlaugsson, sæti fangelsi í 2 ár.
Upptækar eru dæmdar 192.658.716 krónur sem eru innstæður á bankareikningi ákærða í Arion banka hf., 100.144.000 krónur á reikningi nr. 0301- 22-893 og 92.514.716 krónur á reikningi nr. 0334-18-640932. Fjárhæðirnar voru kyrrsettar 13. nóvember 2009.
Ákærði greiði Karli Axelssyni hæstaréttarlögmanni 4.543.100 krónur í málsvarnarlaun að meðtöldum virðisaukaskatti.
Guðjón St. Marteinsson