Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 2. júlí 2010.
Mál nr. S-446/2010:
Ákæruvaldið
(Guðjón Magnússon fulltrúi)
gegn
X
Útdráttur
Ákærða sakfelld fyrir fjársvik og dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Ákærða játaði sök.
X
(Heiðrún Lind Marteinsdóttir hdl.) Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 15. júní sl., á hendur X, kt. 000000-0000, [...] Reykjavík, fyrir fjársvik framin í Reykjavík 2009:
- Sunnudaginn 27. september í auðgunarskyni blekkt A, kt. 000000-0000, á heimili hans að [...] til að afhenda sér barnavagn undir því yfirskyni að hún ætlaði að kaupa hann á 85.000 kr. og greiða A andvirði vagnsins síðar um daginn og sagt seljanda ranglega að nafn sitt væri B en ákærða seldi barnavagninn þann 29. sama mánaðar á 70.000 kr.
- Þriðjudaginn 6. október í auðgunarskyni blekkt C, kt. 000000-0000, á heimili hennar að [...], til að afhenda sér barnavagn undir því yfirskyni að hún hygðist kaupa hann á 85.000 kr. og greiða andvirði hans síðar um daginn en slegið eign sinni á barnavagninn án þess að greiða kaupverðið.
Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Í málinu krefst D, kt. 000000-0000, þess að ákærða verði dæmd til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 70.000 kr. ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 29. september 2009 en síðan dráttarvöxtum samkvæmt 1. gr. 6. gr., sbr. 9. gr., sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Verjandi ákærðu krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og að skaðabótakröfu verði vísað frá dómi. Þá krefst verjandi þóknunar sér til handa.
Skilyrði voru til að fara með mál þetta í samræmi við 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Var málið tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að ákærða er sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök og eru brot hennar rétt heimfærð til refsákvæða í ákæru.
Ákærða er fædd í [...] 1978 og hefur hún ekki sætt refsingu svo vitað sé. Ákærða hefur skýlaust játað brot sín. Verður refsing ákveðin eftir reglum 77. gr. almennra hegningarlaga. Þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
Ákærða greiði D skaðabætur að fjárhæð 70.000 krónur ásamt vöxtum sem í dómsorði greinir.
Ákærða greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Heiðrúnar Lindar Marteinsdóttur hdl., 112.950 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Guðjón Magnússon, fulltrúi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Ragnheiður Harðardóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærða, X, sæti fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
Ákærða greiði D skaðabætur að fjárhæð 70.000 krónur ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 29. september 2009 til 3. janúar 2010, en dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærða greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Heiðrúnar Lindar Marteinsdóttur hdl., 112.950 krónur.
Ragnheiður Harðardóttir