Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 6. október 2010.
Mál nr. S-392/2010:
Ákæruvaldið
(Hulda Elsa Björgvinsdóttir settur saksóknari)
gegn
A
I
Málið, sem
dómtekið var 14. september síðastliðinn, er höfðað með ákæru ríkissaksóknara,
útgefinni 10. maí 2010 á hendur „A, kennitala 000000-0000, …, fyrir
kynferðisbrot með því að hafa þann 13. nóvember 2009 greitt 15.000 krónur fyrir
vændi að … Reykjavík.
Telst þetta
varða við 1. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist
að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákærði neitar sök og krefst
sýknu. Þess er krafist að
sakarkostnaður, þar með talin málsvarnarlaun, verði greiddur úr
ríkissjóði.
II
Málavextir eru þeir að lögreglan fékk á sínum tíma
heimild til að hlera síma, en rökstuddur grunur lék á að notandi hans ræki
vændisstarfsemi. Ákærði hringdi í þennan
Útdráttur
Ákærði sýknður af ákæru um vændiskaup.
I
Málið, sem dómtekið var 14. september síðastliðinn, er höfðað með ákæru ríkissaksóknara, útgefinni 10. maí 2010 á hendur „A, kennitala 000000-0000, …, fyrir kynferðisbrot með því að hafa þann 13. nóvember 2009 greitt 15.000 krónur fyrir vændi að … Reykjavík.
Telst þetta varða við 1. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákærði neitar sök og krefst sýknu. Þess er krafist að sakarkostnaður, þar með talin málsvarnarlaun, verði greiddur úr ríkissjóði.
II
Málavextir eru þeir að lögreglan fékk á sínum tíma heimild til að hlera síma, en rökstuddur grunur lék á að notandi hans ræki vændisstarfsemi. Ákærði hringdi í þennan síma framangreindan dag og talaði þar við stúlku. Hann spurðist fyrir um hvort hún tæki í nudd og játaði hún því. Hann spurði þá hvort eitthvað meira en nudd væri í þessu og hún játti því og sagði að þetta væri hefðbundið. Hann svaraði þá að það væri þá bara allt saman. Ákærði spurði um verð og hún sagði það kosta tuttugu þúsund og hann gæti komið núna, hún væri í miðbæ Reykjavíkur. Þau ræddu síðan saman um hvar hún væri og hún sagði honum að næg bílastæði væru í nágrenninu og leiðbeindi honum um hvert hann ætti að fara, en hún væri í húsinu sem tilgreint er í ákæru. Ákærði hringdi síðan aftur í stúlkuna og spurði hvort hann gæti lagt á tilteknum stað. Aftur hringdi ákærði og sagðist vera fyrir utan húsið og kvaðst hún þá myndu opna fyrir honum.
Við lögregluyfirheyrslu kannaðist ákærði við að hafa farið í framangreint hús umræddan dag og þar hafi stúlka nuddað hann. Þetta hafi verið nudd og ekkert kynferðislegt við það. Hann kvaðst hafa greitt fimmtán þúsund krónur fyrir nuddið.
Stúlka, sem vann sem vændiskona í umræddu húsi, skoðaði myndir af ákærða hjá lögreglu og bar að hann hefði komið og fengið kynlífsþjónustu en ekki mundi hún hvort hún hefði veitt hana eða einhver önnur.
III
Við aðalmeðferð bar ákærði að hann hefði farið að nefndu húsi umræddan dag. Hann kvaðst stundum vera slæmur af verkjum og hafa farið í nudd, en ekki oft. Hann kvaðst hafa séð auglýst gott nudd í blaði og hringt í símanúmerið sem gefið var upp í auglýsingunni. Hann kvaðst hafa spurt hvar nuddið væri og hvort tími væri til fyrir hann. Ákærði kvaðst svo hafa farið á staðinn og inn í húsið, en hann kvaðst ókunnugur í Reykjavík og ekki vita annað en húsið væri einhvers staðar í Vesturbænum. Á móti honum hafi tekið ung kona, sem talaði íslensku, og hafi hún farið með hann inn í herbergi þar sem hafi verið einhvers konar nuddbekkur. Hann kvaðst ekki hafa séð aðra í húsinu. Nuddið kvað hann hafa verið hefðbundið handanudd með volgri olíu og hafi hann verið nakinn, en þó með lak yfir sér á viðkvæmustu stöðum eins og hann orðaði það. Konan hafi verið í nærbuxum en ekki kvaðst hann muna hvort hún hafi verið í brjóstahaldara. Konan hafi nuddað alla vöðva hans með höndunum en ekki snert kynfæri hans og þetta hafi ekki á nokkurn hátt verið kynferðislegt. Fyrir þetta kvaðst hann hafa greitt fimmtán þúsund krónur og hann gert það að loknu nuddi. Undir ákærða var borið það sem haft var eftir vændiskonunni hjá lögreglu og ítrekaði hann að hann hefði ekki fengið kynferðislega þjónustu í húsinu.
Stúlka, sem vann sem vændiskona í nefndu húsi á þessum tíma, bar að þær hefðu verið þrjár sem unnu þarna sem vændiskonur í nóvember 2009 og hefði ekki önnur starfsemi verið stunduð þar. Hún kvað starfsemina hafa verið auglýsta sem nudd í blöðum og á vefsíðu, en nudd hafi ekki verið í boði heldur kynlífsþjónusta og hefðu allir, sem sóttu í þetta, skilið það. Hún kvaðst muna eftir að ákærði hefði komið í húsið á umræddum tíma en kvaðst ekki muna hvort hún hefði þjónustað hann. Þá kvaðst hún ekki geta upplýst hvort önnur stúlka hafi þjónustað ákærða. Á þessum tíma hefðu stúlkurnar, sem unnu með henni, ekki talað íslensku. Önnur hefði getað talað smávegis ensku en hin ekkert.
Upptaka af símhleruninni var spiluð og kannaðist stúlkan við að þetta væri rödd sín. Hún kvaðst hins vegar ekki muna eftir að hafa opnað fyrir ákærða, en sú sem opnar fyrir viðskiptavini þjónusti hann. Þá kvaðst hún ekki geta borið um hvaða þjónustu ákærði fékk.
IV
Ákærði hefur neitað sök og borið að hafa greitt fyrir nudd en ekki vændi eins og rakið var. Stúlkan, sem ræddi við ákærða í síma og starfaði sem vændiskona í nefndu húsi, kvaðst ekki muna eftir að hafa þjónustað hann og ekki geta borið um hvaða þjónustu hann fékk. Þá bar stúlkan að ekki hafi verið boðið upp á nudd í húsinu heldur hafi þjónustan verið auglýst sem nudd, en allir hafi skilið að verið var að auglýsa vændi. Þetta fær stuðning í öðrum gögnum sem hafa verið lögð fyrir dóminn svo og þeim dómum sem gengið hafa um sams konar sakarefni. Þrátt fyrir þetta verður þó ekki fram hjá því litið að ákærði er einn til frásagnar um þá þjónustu sem hann fékk. Gegn eindreginni neitun hans er því óvarlegt að telja sannað að hann hafi keypt vændi eins og hann er ákærður fyrir og verður hann því sýknaður.
Málsvarnarlaun verjanda ákærða skulu greidd úr ríkissjóði eins og nánar greinir í dómsorði.
Arngrímur Ísberg héraðsdómari kvað upp dóminn.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, A, er sýknaður af kröfu ákæruvaldsins.
Málsvarnarlaun verjanda ákærða, Brynjólfs Eyvindssonar hdl., 150.600 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, skulu greidd úr ríkissjóði.
Arngrímur Ísberg.