Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-2622/2009:

Nýi Kaupþing banki hf.

(Karl Óttar Pétursson hdl)

gegn

Iðunni ehf., verslun,

Njáli Þorsteinssyni og

Helga Njálssyni

(Stefán Karl Kristjánsson hdl)

Sjálfskuldarábyrgð.

Stefndu, sem voru sjálfskuldarábyrgðaraðilar, dæmdir til greiðslu yfirdráttarskuldar hjá stefnanda.

Stefndu eru Iðunn ehf., verslun, Laugavegi 51, Reykjavík, Helgi Njálsson, Heiðargerði 64, Reykjavík og Njáll Þorsteinsson, Rjúpnasölum 12, Kópavogi. Í þinghaldi 7. október sl., féll stefnandi frá kröfu á hendur Iðunni ehf. verslun, þar sem bú félagsins hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.

Stefnandi krefst þess að stefndu, Helgi og Njáll, verði in solidum dæmdir til að greiða stefnanda skuld að fjárhæð 599.815 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 af kr. 599.815 frá 10. nóvember 2008 til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar að mati dómsins.

Stefndu krefjast sýknu af kröfum stefnanda og málskostnaðar úr hendi hans.

Málsatvik

Krafa stefnanda er byggð á tékkareikningi og ábyrgðaryfirlýsingu vegna tékkareiknings. Í stefnu segir að stefnandi hafi samþykkt umsókn stefnda, Iðunnar ehf., um stofnun tékkareiknings í útibúi stefnanda nr. 0311, 10. nóvember 2008. Við munnlegan málflutning kom fram að um misritun í stefnu er að ræða og var umsókn stefnda, Iðunnar ehf., um stofnun tékkareiknings í útibúi stefnanda samþykkt 11. ágúst 2006 eins og fram kemur í öðrum gögnum málsins. Tékkareikningur var númer 189. Stefndu, Helgi Njálsson og Njáll Þorsteinsson, undirrituðu yfirlýsingu 11. ágúst 2006 um sjálfskuldarábyrgð vegna yfirdráttarheimildar á framangreindum reikningi að fjárhæð 8.000.000 króna. Í yfirlýsingunni kemur fram að ábyrgðaraðilar ábyrgist sem sjálfskuldarábyrgðaraðilar, in solidum greiðslu yfirdráttar á tékkareikningnum í samræmi við skilmála yfirlýsingarinnar. Í 2. lið skilmálanna kemur fram að ef yfirdráttarskuld sé ekki greidd við lok gildistíma sjálfskuldarábyrgðarinnar, reikningseigandi fari upp fyrir heimild sína eða brjóti á annan hátt gegn skilmálum bankans um yfirdráttarheimildir, debetkort og tékkareikninga, sé Kaupþingi banka hf. heimilt að innheimta hjá sjálfskuldarábyrgðaraðilum þá fjárhæð sem yfirdráttarskuldinni nemi við niðurfellingu heimildar eða lokun reikningsins, en þó aldrei hærri fjárhæð en framangreind hámarksfjárhæð yfirdráttar segi til um, að viðbættum bankakostnaði o.fl. Stefnandi lokaði reikningi stefndu 10. nóvember 2008 og nam þá yfirdráttur á reikningnum stefnufjárhæð.

Stefndi krafðist frávísunar málsins vegna vanreifunar, en með úrskurði dómsins frá 23. september 2009 var frávísunarkröfu hafnað.

Málsástæður og lagarök stefnanda

Stefnandi kveður að stefndi hafi gerst brotlegur við reglur um reikningsviðskipti. Tékkareikningi stefnda hafi því verið lokað 10. nóvember 2008 og hafi þá uppsafnaður yfirdráttur stefnanda numið samtals 599.815 krónum. Þrátt fyrir innheimtutilraunir hafi skuldin ekki fengist greidd af stefndu og hafi því málshöfðun verið nauðsynleg.

Málsástæður og lagarök stefnda

Stefndi kveður að opnun tékkareikningsviðskipta milli aðila hafi grundvallast á samningi. Stefndu, Helgi og Njáll, hafi tekist á hendur ábyrgð á efndum stefndu, Iðunnar ehf., samkvæmt þeim samningi, með undirritun sjálfskuldarábyrgðar. Samningurinn hafi verið í fullu gildi og heimildin hafi verið endurnýjuð með gildistíma til 27. desember 2008. Þá hafi stefnandi fellt niður samninginn einhliða og án heimildar, með vísan til þess að stefndu hafi gerst brotleg við reglur um reikningsviðskipti. Stefndu mótmæli því harðlega, sem vísvitandi röngum staðhæfingum í málatilbúnaði stefnanda, að þeir hafi brotið gegn samningi. Stefnandi sé ekki í góðri trú þegar hann fari fram með þennan málatilbúnað. Það sé ómögulegt að sjá í hverju brot stefnda sé fólgið. Með því að fella samninginn úr gildi með ólögmætum hætti valdi stefnandi tjóni, sem stefndu áskilji sér rétt til að sækja á hendur stefnanda. Enn fremur leiði þessi gerningur stefnanda til þess að hann einn brjóti gegn upphaflegum samningi milli aðila.

Niðurstaða

Stefndu, Njáll Þorsteinsson og Helgi Njálsson, tókust á hendur sjálfskuldarábyrgð vegna yfirdráttarheimildar á reikningi nr. 189 í útibúi stefnanda 11. ágúst 2006. Nam ábyrgðin 8.000.000 króna. Átti ábyrgð þeirra að tryggja efndir á skuldbindingum reikningseiganda, stefndu, Iðunnar ehf. Í yfirlýsingu um sjálfskuldarábyrgð kemur fram að ábyrgðaraðila sé skylt að greiða skuldina við vanskil, ef bankinn krefjist þess, þótt bankinn hafi ekki gert tilraunir til að fá hana greidda hjá reikningseiganda. Stefnandi lokaði reikningi stefnda, Iðunnar ehf., 10. nóvember 2008 og nam þá yfirdráttarskuld stefnufjárhæð, 599.815 krónum.

Eins og greinir í stefnu reisir stefnandi málatilbúnað sinn á því að stefndi hafi gerst brotlegur við reglur um reikningsviðskipti. Stefndi kveður hins vegar að yfirdráttarheimild hafi verið endurnýjuð til 27. desember 2008 og að stefnandi hafi fellt niður samning aðila án heimildar.

Óumdeilt er að yfirdráttarskuld stefnda, Iðunnar ehf., sem nemur stefnufjárhæð málsins, hefur ekki fengist greidd og að bú stefnda, Iðunnar ehf., hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Er því fallist á með stefnanda að fyrir hendi séu atvik sem heimila honum að innheimta hjá stefndu þá fjárhæð sem nemur yfirdráttarskuld, sbr. 2. tl. í skilmálum sjálfskuldarábyrgðaryfirlýsingar. Samkvæmt framangreindu er fallist á kröfur stefnanda í málinu og verða stefndu, Njáll og Helgi, dæmdir in solidum til greiðslu stefnufjárhæðar, 599.815 króna ásamt dráttarvöxtum eins og nánar greinir í dómsorði.

Þá verða stefndu, Njáll og Helgi, dæmdir in solidum til að greiða stefnanda málskostnað, sem þykir hæfilega ákveðinn 200.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti á málflutningsþóknun. Við ákvörðun málskostnaðar var tekið mið af því að fram fór munnlegur málflutningur um frávísunarkröfu stefndu.

Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari kveður upp þennan dóm.

D ó m s o r ð:

Stefndu, Njáll Þorsteinsson og Helgi Njálsson, greiði stefnanda, Nýja Kaupþing banka hf., in solidum 599.815 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 af 599.815 krónum frá 10. nóvember 2008 til greiðsludags.

Stefndu greiði stefnanda in solidum 200.000 krónur í málskostnað.

Ingveldur Einarsdóttir ---------------------- ---------------------- ---------------------- Rétt endurrit staðfestir, Héraðsdómi Reykjavíkur, 22. október 2009.

Gjald kr. 750.

Greitt: