Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 9. apríl 2008.
Mál nr. S-55/2008:
S-55/2008:
Ákæruvaldið
(Dagmar Ösp Vésteinsdóttir fulltrúi)
gegn
Davíð
Rúnarssyni
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir brot á lögreglusamþykkt.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 15. janúar 2008 á hendur Davíð Rúnarssyni, kt. […], Kárastíg 1, Reykjavík, fyrir lögreglusamþykktarbrot, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 6. október 2007, kastað af sér vatni við veitingastaðinn Pizza Pronto, Bankastræti, Reykjavík.
Þetta er talið varða við 2. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 8. gr., sbr. 30. gr., lögreglu samþykktar fyrir Reykjavíkurborg nr. 506/2004, sbr. 1. gr., a-lið 1. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 6. gr. laga um lögreglusamþykktir nr. 36/1988.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Ákærði sótti ekki þing og boðaði ekki forföll en í fyrirkalli, sem var gefið út 22. febrúar sl. og löglega birt fyrir honum, var tekið fram að yrði ekki sótt þing að forfallalausu gæti hann búist við að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum sbr. 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Dómurinn telur þannig sannað með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti, að ákærði hafi framið þá háttsemi sem ákært er út af og er brot ákærða rétt heimfært til refsiákvæða í ákærunni Ákærði er fæddur árið 1972. Sakaferill hans skiptir ekki máli um ákvörðun refsingar í málinu.
Refsing ákærða þykir hæfilega ákveðin 10.000 króna sekt í ríkissjóð sem greiða skal innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa að telja en ella skal ákærði sæta fangelsi í tvo daga.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Davíð Rúnarsson, greiði 10.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, en sæti ella fangelsi í 2 daga.
Símon Sigvaldason.