Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 15. apríl 2008.
Mál nr. S-472/2008:
S-472/2008:
Ákæruvaldið
(Dagmar Ösp Vésteinsdóttir fulltrúi)
gegn
Emanuelis Kukanauskas
Útdráttur
Erlendur karlmaður var á árinu 2005 dæmdur í þriggja ára fangelsi og vísað úr landi í árslok 2006 eftir að hafa fengið reynslulausn, kom hann til landsins í janúar sl. og hefur dvalið hér síðan. Hann var dæmdur í 19 mánaða fangelsi fyrir brot gegn lögum um útlendinga.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 10. apríl sl., á hendur Emanuelis Kukanauskas, fæddum 26. maí 1978, „fyrir brot gegn lögum um útlendinga, með því að hafa í janúar 2008 komið til Íslands með óþekktu farþegaflugi og dvalið hér á landi fram til mánudagsins 7. apríl er lögregla handtók ákærða við verslun Bónus video á Nýbýlavegi, Kópavogi, og með því brotið gegn ákvörðun Útlendingastofnunar frá 8. desember 2006, um brottvísun ákærða af Íslandi og endurkomubann til landsins fyrir fullt og allt.
Telst þetta varða við a. lið 1. mgr. 57. gr., sbr. 43. gr., laga um útlendinga nr. 96/2002.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.”
Ákærði hefur játað brot sitt fyrir dóminum. Er játning hans í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sitt, en það er í ákæru réttilega fært til refsiákvæða. Ákærði gaf þá skýringu á komu sinni til landsins að hann hefði heyrt á skotspónum í Litháen að ekkert væri að marka brottvísunina og gæti hann því komið aftur til landsins.
Samkvæmt sakavottorði var ákærði dæmdur í 3 ára fangelsi 18. nóvember 2005. Honum var veitt reynslulausn í 2 ár 22. desember 2006 á eftirstöðvum refsingar, 540 dögum. Í tengslum við reynslulausnina tók Útlendingastofnun ákvörðun um að vísa ákærða úr landi og banna honum að koma aftur fyrir fullt og allt.
Með broti sínu hefur ákærði rofið skilorð reynslulausnarinnar og samkvæmt 1. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsinga, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga, verður reynslulausnin dæmd með þessu máli. Að þessu virtu og með vísun til 77. gr. almennra hegningarlaga verður refsing ákærða ákveðin fangelsi í 19 mánuði.
Arngrímur Ísberg héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Emanuelis Kukanauskas, sæti fangelsi í 19 mánuði.
Arngrímur Ísberg.