Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-342/2008:

S-342/2008:

Ákæruvaldið

(Hulda María Stefánsdóttir fulltrúi)

gegn

Hörður Hákon Jónssyni

Ár 2008,

miðvikudaginn 9. apríl, er dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur háð í Dóm­húsinu við

(Hilmar Ingimundarson hrl)

Karlmaður dæmdur í 9 mánaða fangelsi, þar af 6 mánuði skilorðsbundið, fyrir fíkniefnalaga - og umferðarlagabrot.

Ár 2008, miðvikudaginn 9. apríl, er dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur háð í Dóm húsinu við Lækjartorg af Jónasi Jóhannssyni héraðsdómara og dómur kveðinn upp í máli nr. S-342/2008: Ákæruvaldið gegn Herði Hákoni Jónssyni, sem dómtekið var samdægurs sem játningarmál samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opin berra mála. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu höfðaði málið með ákæru útgefinni 11. mars 2008 á hendur ákærða, Herði Hákoni Jónssyni, kt. 000000-0000, Miðtúni 34, Reykjavík, fyrir eftirgreind fjögur brot á 2. gr., sbr. ýmist 4., 5. eða 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni með áorðnum breytingum og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni með áorðnum breytingum og tvö brot á reglum umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. refsiákvæði 1. mgr. 100. gr. laganna, allt eins og nánar er lýst í ákæru:

  1. Fyrir fíkniefnabrot, með því að hafa, miðvikudaginn 10. október 2007, haft í sínum vörslum 4,3 grömm af hassi og 0,13 grömm af amfetamíni.
  2. Fyrir fíkniefnabrot, með því að hafa, fimmtudaginn 11. sama mánaðar, haft í sínum vörslum 246,84 grömm af hassi, 19,14 grömm af amfetamíni, 9,49 grömm af kannabislaufum, 0,95 grömm af kókaíni og 10 kannabisplöntur.
  3. Fyrir fíkniefnabrot og brot á 1. mgr. 48. gr. umferðarlaganna, með því að hafa, að kvöldi föstudagsins 14. desember 2007, á bifreiðastæði við Norðurbrún 4, Reykjavík, haft í sínum vörslum 16,37 grömm af hassi, 0,97 grömm af amfetamíni og 0,56 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni og fyrir að hafa ekið bifreiðinni OD-042, sviptur ökurétti, frá Brúarvegi að Norðurbrún.
  4. Fyrir brot á 1. og 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaganna með áorðnum breytingum, með því að hafa, að kvöldi mánudagsins 17. desember 2007, ekið sömu bifreið, sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugg lega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna, um Langholtsveg, Álfheima, Suður landsbraut og Laugaveg, uns lögregla stöðvaði för hans við Rauðarárstíg.
  5. Fyrir fíkniefnabrot, með því að hafa, mánudaginn 18. febrúar 2008, haft í sínum vörslum 3,91 gramm af hassi. Auk refsingar er þess krafist að ákærði sæti upptöku á framangreindum fíkniefnum samkvæmt 6. mgr. 5. gr. téðra fíkniefnalaga og 2. mgr. 14. gr. nefndrar reglugerðar. Þá verði hann sviptur ökurétti samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaganna með áorðnum breytingum. Með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í 1.-5. tölulið og þykir hún í öllum tilvikum rétt færð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði er 31 árs. Samkvæmt sakavottorði hlaut hann 14 refsingar á árabilinu 1995-2005, aðallega fyrir hegningarlaga- og fíkniefnalagabrot, áður en hann var 22. júní 2005 dæmdur í 6 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir þjófnað. Ákærði rauf það skilorð og var 18. desember 2006 dæmdur í 8 mánaða fangelsi, þar af 5 mánuði skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir þjófnað, nytjastuld og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Jafnframt var ákærði sviptur ökurétti í eitt ár frá 9. janúar 2007 að telja. Loks var ákærði 11. apríl 2007 dæmdur í 6 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir skjalabrot og nytjastuld í ágúst 2006, en skilorðshluti síðastnefnds dóms var tekinn upp og dæmdur með á grundvelli hegningarauka samkvæmt 78. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með brotum þeim, sem ákærði er nú sakfelldur fyrir, hefur hann rofið skilorð og verður því dómurinn frá 11. apríl 2007 tekinn upp og umrædd 6 mánaða refsing dæmd með máli þessu samkvæmt reglum 60. gr. almennra hegningarlaga. Að því gættu og með hliðsjón af aldri ákærða, sakaferli að öðru leyti og 77. gr. téðra laga þykir refsing hæfilega ákveðin fangelsi í 9 mánuði. Eftir atvikum þykir mega ákveða að fresta fullnustu 6 mánaða af refsingunni þannig að sá hluti falli niður að liðnum þremur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð, eins og í dómsorði greinir. Að kröfu ákæruvaldsins og með vísan til 101. og 102. gr. umferðarlaga með áorðnum breytingum ber að svipta ákærða ökurétti fyrir vímuefnaaksturinn samkvæmt 4. tölulið. Með hliðsjón af dóminum frá 18. desember 2006 þykir sú svipting hæfilega ákveðin 2 ár, frá dómsuppsögu að telja og frestar áfrýjun ekki framkvæmd dóms að því leyti. Þá ber á grundvelli fyrrnefndra lagaraka að gera upptæk til ríkissjóðs þau fíkniefni, sem tilgreind eru í 1.-3. og 5. tölulið. Loks ber samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga um meðferð opinberra mála að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, en til hans telst rannsóknarkostnaður að fjár hæð krónur 145.118 og þóknun skipaðs verjanda, Hilmars Ingimundarsonar hæsta réttarlögmanns. Með hliðsjón af eðli og umfangi máls þykir þóknun hæfilega ákveðin 85.407 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Hulda María Stefánsdóttir fulltrúi lögreglustjóra sótti málið af hálfu ákæruvaldsins.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Hörður Hákon Jónsson, sæti fangelsi í 9 mánuði, en fresta skal fullnustu 6 mánaða af refsingunni og sá hluti hennar falla niður að liðnum þremur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærði er sviptur ökurétti í 2 ár frá dómsuppsögu að telja og frestar áfrýjun ekki framkvæmd dóms að því leyti. Ákærði sæti upptöku á 271,42 grömmum af hassi, 20,24 grömmum af amfetamíni, 9,49 grömmum af kannabislaufum, 0,95 grömmum af kókaíni, 0,56 grömmum af tóbaksblönduðu kannabisefni og 10 kannabisplöntum. Ákærði greiði 230.525 krónur í sakarkostnað, þar með talda 85.407 króna þóknun Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns.

Jónas Jóhannsson