Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 19. mars 2008.
Mál nr. S-327/2008:
Ákæruvaldið
(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)
gegn
Sigurði Steina Gunnlaugssyni
(Páll Arnór Pálsson hrl)
Lykilorð
Útdráttur
Karlmaður sakfelldur fyrir líkamsárás skv. 218. gr. almennra hegningarlaga og þjófnað.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 29. febrúar sl., á hendur Sigurði Steina Gunnlaugssyni, Krókabyggð 26, Mosfellsbæ,
I.
Fyrir líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 20. maí 2007, inni á bensínsafgreiðslustöð Nl við Ártúnsbrekku í Reykjavík, slegið Snæbjörn Val Lilliendhal hnefahöggi í andlitið, með þeim afleiðingum að hann tvíkjálkabrotnaði og tönn losnaði.
Telst þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981.
II.
Fyrir þjófnað með því að hafa að kvöldi þriðjudagsins 4. september 2007, í félagi við Halldór Þór Svavarsson, stolið úr herbergi á hótelinu Plaza að Aðalstræti 4 í Reykjavík, tösku sem hafði að geyma fartölvu, tímarit og DVD-diska.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði sem fæddur er í maí 1982 á að baki nokkurn sakaferil allt frá árinu 1998. Þannig hefur hann þrisvar sinnum gengist undir að greiða sektir með lögreglustjórasátt vegna umferðarlagabrota og í ellefu skipti hefur hann hlotið dóma vegna umferðarlagabrota, fíkniefnabrota og brota á almennum hegningarlögum, þar af þrívegis vegna þjófnaðar og gripdeildar. Þannig var hann dæmdur 19. desember 2003 til að sæta fangelsi í 5 mánuði, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir þjófnað og 10. maí 2004 var hann dæmdur til að sæta 7 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir gripdeild og skjalafals.
Að því virtu sem hér hefur verið rakið þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 2 mánuði.
Ákærði greiði 94.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, í þóknun til skipaðs verjanda síns, Páls Arnórs Pálssonar hæstaréttarlögmanns við rannsókn málsins og fyrir dómi.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Sigurður Steini Gunnlaugsson, sæti fangelsi í 2 mánuði.
Ákærði greiði 94.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, í þóknun til skipaðs verjanda síns, Páls Arnórs Pálssonar hæstaréttarlögmanns.
Ásgeir Magnússon