Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-324/2008:

D Ó M U R

máli nr. S-324/2008:

Ákæruvaldið

(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)

gegn

X

Ár 2008,

fimmtudaginn 13. mars, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í

Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur

til dóms í sama þinghaldi.

Málið er höfðað með

ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri  29. febrúar sl. á hendur ákærða, X, kt. [...],

[...], Reykjavík, „fyrir hótanir með því að hafa hótað Z, kt. [...], ofbeldi og

lífláti í eftirgreindum SMS-skeytum sem ákærði sendi í farsíma hennar og voru

til þess fallin að vekja hjá henni ótta um líf, heilbrigði og velferð sína og

sonar síns, Y, kt. [...]:

a) föstudaginn 30.

nóvember 2007, kl. 02:25: „Ég veit hvar tu átt heima og veit             hvar Y er i leikskola. Ef tu rædst á

mig rædst ég á tig.“

b) fimmtudaginn 6.

desember 2007, kl. 03:51: „Hættu ad skemma annara lif,            ed eg brenni barnid titt til dauda.“

Telst þetta varða við

233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Þess er krafist að

ákærði verði dæmdur til refsingar.“

Málavextir

Ákærði hefur

(Erna Sigríður Sigurðardóttir lögmaður)

Hótanir.

Karlmaður dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir að hóta barnsmóður sinni í SMS-skeytum.

X

Ár 2008, fimmtudaginn 13. mars, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 324/2008:  Ákæruvaldið (Erna Sigríður Sigurðardóttir) gegn X, sem tekið var til dóms í sama þinghaldi.

Málið er höfðað með ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri  29. febrúar sl. á hendur ákærða, X, kt. [...], [...], Reykjavík, „fyrir hótanir með því að hafa hótað Z, kt. [...], ofbeldi og lífláti í eftirgreindum SMS-skeytum sem ákærði sendi í farsíma hennar og voru til þess fallin að vekja hjá henni ótta um líf, heilbrigði og velferð sína og sonar síns, Y, kt. [...]:

a) föstudaginn 30. nóvember 2007, kl. 02:25: „Ég veit hvar tu átt heima og veit hvar Y er i leikskola. Ef tu rædst á mig rædst ég á tig.“

b) fimmtudaginn 6. desember 2007, kl. 03:51: „Hættu ad skemma annara lif, ed eg brenni barnid titt til dauda.“

Telst þetta varða við 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

Málavextir

Ákærði hefur skýlaust játað það brot sem hann er saksóttur fyrir.  Hefur hann orðið sekur um athæfi það sem lýst er í ákærunni og réttilega er þar fært til refsiákvæðis. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga.  Rétt er að fresta því að framkvæma refsingu þessa og ákveða að hún falli niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Sakarkostnað leiddi ekki af máli þessu.

DÓMSORÐ:

Ákærði, X sæti fangelsi í  30 daga.  Framkvæmd refsingarinnar er frestað og fellur hún niður að liðnum 3 árum haldi ákærði almennt skilorð.

Pétur Guðgeirsson.