Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 13. mars 2008.
Mál nr. S-243/2008:
Ákæruvaldið
(Óli Ingi Ólason fulltrúi)
gegn
Ólafi
Hauk Atlasyni
(Hilmar Ingimundarson hrl)
Lykilorð
Akstur án ökuréttar. Nytjastuldur. Ölvunarakstur.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir nytjastuld, ölvunar- og réttindaleysisakstur og fíkniefnaakstur. Refsing 30 daga fangelsi.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 11. febrúar 2008 á hendur Ólafi Hauki Atlasyni, kt. […], Mánabraut 12, Kópavogi, fyrir eftirtalin hegningarfíkniefna- og umferðarlagabrot, með því að hafa:
I
Aðfararnótt þriðjudagsins 28. ágúst 2007 tekið bifreiðina TF-815 ófrjálsri hendi á plani bílasölunnar 100 bílar, Funahöfða 1 í Reykjavík og notað hana í heimildarleysi og ekið henni sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 1,23 ‰) frá plani bílasölunnar uns lögregla stöðvaði aksturinn á Vesturlandsvegi við Höfðabakkabrú.
Þetta er talið varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga og 1. sbr. 3. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 48. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
II
Að kvöldi fimmtudagsins 13. september 2007 ekið bifreiðinni UI-135 sviptur ökurétti austur Nýbýlaveg í Kópavogi uns lögregla stöðvaði aksturinn við Skemmuveg.
Þetta er talið varða við 1. mgr. 48. gr. nefndra umferðarlaga.
III
Að kvöldi þriðjudagsins 20. nóvember 2007 ekið bifreiðinni KY-775 sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 2,05 ‰) um götur í Kópavogi uns lögregla stöðvaði aksturinn á bifreiðaplani við Dominos við Nýbýlaveg.
Þetta er talið varða við 1., sbr. 3. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 48. gr. nefndra umferðarlaga.
IV
Aðfararnótt föstudagsins 4. janúar 2008 ekið bifreiðinni TJ-853 sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis og fíkniefna óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega (vínandamagn í blóði 1,81 ‰) austur Miklubraut í Reykjavík uns hann hafnaði utan vegar skammt austan Réttarholtsvegar þar sem lögregla hafði afskipti af honum og í sama skipti haft í vörslum sínum 0, 43 grömm af amfetmíni sem fannst við leit á honum, eftir að hann var færður á lögreglustöð, og lagt var hald á.
Er þetta talið varða við 1. sbr. 3. mgr. 45. gr., 1. og 2. mgr. 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., öll framangreind umferðarlagabrot sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðalaga, sbr. 1. gr. laga nr. 48/1997, og auk þess við 2. gr., sbr. 5. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006. og jafnframt að framangreind fíkniefni, sem hald var lagt á, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í nóvember 1976. Hann á sakaferil að baki allt frá árinu 1998. Frá árinu 2006 hefur hann fimm sinnum verið dæmdur eða gengist undir sáttir vegna ölvunaraksturs. Þá hefur hann á sama tíma fjórum sinnum verið dæmdur eða gengist undir viðurlög vegna réttindaleysisaksturs. Brot ákærða nú eru hegningarauki við dóma frá árinu 2007. Verður refsing því tiltekin eftir 78. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 77. gr. Verður sérstaklega haft í huga í því sambandi að ákærði var með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í júní 2007, sem staðfestur var í Hæstarétti í lok nóvember það ár, dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás. Með hliðsjón af þessu er refsing ákærða ákveðin 30 daga fangelsi. Áréttuð er ævilöng ökuréttarsvipting ákærða.
Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 0,43 g af amfetamíni sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Ákærði greiði 282.813 krónur í sakarkostnað, þar með talda málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, 80.925 krónur.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Ólafur Haukur Atlason sæti 30 daga fangelsi.
Áréttuð er ævilöng ökuréttarsvipting ákærða.
Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 0,43 g af amfetamíni sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Ákærði greiði 282.813 krónur í sakarkostnað, þar með talda málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, 80.925 krónur.
Símon Sigvaldason.