Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-140/2008:

S-140/2008:

Ákæruvaldið

(Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari)

gegn

Grími Frey Kristinssyni

Karlmaður gaf ranga skýrslu hjá lögreglu sem leiddi til þess að saklaus maður var ákærður fyrir ölvunarakstur. Ákærði dró skýrsluna til baka þegar ölvunarakstursmálið var til aðalmeðferðar og var ákærði í því sýknaður. Sá sem gaf röngu skýrsluna var dæmdur í 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi en hann hafði hreint sakavottorð.

Mál þetta var höfðað með ákæru ríkissaksóknara, dagsettri 6. febrúar sl., á hendur Grími Frey Kristinssyni, kt. 000000-0000, Eyktarási 21, Reykjavík, „fyrir rangar sakargiftir, með því að hafa hinn 14. apríl 2006, í skýrslutöku á lögreglustöðinni á Selfossi, með röngum framburði komið því til leiðar að Tómas Sigursteinn Garðarsson var með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 23. október 2007, ákærður fyrir ölvunarakstur.

Þetta telst varða við 148. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 15. gr. laga nr. 101/1976.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.”

Ákærði hefur játað brot sitt fyrir dóminum. Gaf hann þá skýringu á tiltæki sínu að sér hefði verið sagt af lögreglu að upplýsingar hefðu legið fyrir um að annar maður en hann hefði ekið bifreiðinni í umrætt skipti og hefði hann þá gefið upp nafn Tómasar.  Það hefði síðan dregið til baka fyrir dómi. Er játning hans í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sitt, en það er í ákæru réttilega fært til refsiákvæða.

Ákærði hefur ekki áður sætt refsingum svo vitað sé.

Að þessu virtu verður refsing ákærða fangelsi í 4 mánuði en fresta skal fullnustu refsingar og falli hún niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Arngrímur Ísberg héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Grímur Freyr Kristinsson, sæti fangelsi í 4 mánuði en fresta skal fullnustu refsingar og falli hún niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Arngrímur Ísberg.