Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1224/2008:

S-1224/2008:

Ákæruvaldið

(Kolbrún Benediktsdóttir fulltrúi)

gegn

Jan Jirícek

Ár

2009, þriðjudaginn 21. apríl, er á dómþingi héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er

Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing.

Ákærði dæmdur til greiðslu sektar fyrir að hafa smánað erlenda þjóð og erlent ríki opinberlega.

Ár 2009, þriðjudaginn 21. apríl, er á dómþingi héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 1224/2008:  Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir) gegn Jan Jiříček (sjálfur) sem tekið var til dóms hinn 15. apríl sl., að lokinni aðalmeðferð.

Málið er höfðað með ákæru ríkissaksóknara, dagsettri 6. apríl sl. á hendur ákærða, Jan Jiříček, kt. 000000-0000, Háteigsvegi 23, Reykjavík, “fyrir að hafa sunnudaginn 16. mars 2008 smánað erlenda þjóð og erlent ríki opinberlega, en til vara valdið skemmdum á sendiráðssvæði, með því að skvetta rauðri málningu yfir tröppur við aðsetur kínverska sendiráðsins og sendiherrans að Víðimel 29 í Reykjavík.

Telst þetta varða við 1. mgr. 95. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 26. gr. laga nr. 82/1998 og 10. gr. laga nr. 101/1976 en til vara við 3. mgr. sömu laga, sbr. 1. gr. laga nr. 56/2002.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.”

Málavextir

Ákærði hefur skýlaust játað þann verknað sem hann er ákærður fyrir.  Hann neitar þó sök og krefst sýknu.  Ber hann það fyrir sig að fyrir honum hafi hvorki vakað að smána kínverska þjóð með verknaðinum né heldur að valda skemmdum eða eignaspjöllum.  Hann leggur áherslu á það að hann hafi afhent fjölmiðlum yfirlýsingu um það sem fyrir honum vakti og ekkert í þeirri henni geti heldur talist vera smánandi fyrir Kína.  Fyrir honum hafi vakað að mótmæla stefnu kínverskra stjórnvalda í Tíbet og víðar.  Athafnir hans megi auk þess réttlæta með tjáningarfrelsi því sem tryggt sé í íslensku stjórnarskránni.  Geti verknaður hans því ekki talist vera brot á 1. mgr. 95. gr. almennra hegningarlaga. Þá leggur hann áherslu á það að enginn sendiráðs-starfsmaður hafi verið á sendiráðströppunum þegar hann sletti málningunni og ekkert tjón hafi heldur hlotist af verknaði hans.

Verknaður ákærða, sem fólst í því að hella talsverðu magni af rauðri málningu á tröppurnar framan við aðalinngang sendiráðs Kína, var til þess fallinn að smána opinberlega erlenda þjóð og ríki.  Ekkert af því sem ákærði hefur borið fyrir sig getur leyst hann undan refsingu fyrir þetta athæfi en það varðar við 1. mgr. 95. gr. almennra hegningarlaga.

Refsing ákærða þykir hæfilega ákveðin 250.000 króna sekt og komi í stað hennar fangelsi í 18 daga, greiðist hún ekki innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu.

Sakarkostnað hefur ekki leitt af málarekstri þessum.

Málsmeðferðin fyrir dómi hefur tafist nokkuð vegna fjarveru ákærða.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Jan Jiříček, greiði 250.000 krónur í sekt og komi fangelsi í 18 daga, greiðist sektin ekki innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu.

Pétur Guðgeirsson