Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 5. júlí 2007.
Mál nr. S-627/2007:
Ákæruvaldið
(Óli Ingi Ólason fulltrúi)
gegn
Eyþóri Helga Guðmundssyni
Lykilorð
Útdráttur
Karlmaður dæmdur í 30 daga fangelsi og til að greiða 210.000 króna sekt til ríkissjóðs fyrir nytjastuld, ölvunarakstur o.fl. Þá var hann sviptur ökurétti í 3 ár og 6 mánuði frá uppkvaðningu dómsins.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 23. apríl 2007, á hendur Eyþóri Helga Guðmundssyni, -, Skarðshlíð 38b, Akureyri, fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot, með því að hafa, aðfaranótt föstudagsins 23. febrúar 2007, tekið bifreiðina JN-969 í heimildarleysi frá Mótel Venusi, við Borgarnes, og ekið henni þaðan undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 1,55‰) og án gilds ökuskírteinis áleiðis til Reykjavíkur og svo óvarlega um Vesturlandsveg á móts við Vallá á Kjalarnesi, að hann ók á umferðarmerki og síðan út af veginum og ofan í skurð. Þetta er talið varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 1. mgr. 4. gr., 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. gr. laga nr. 48/1997.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993, 2. gr. laga nr. 23/1998, 8. gr. laga nr. 84/2004 og 18. gr. laga nr. 66/2006.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu.
Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Um málavexti vísast til ákæru.
Ákærði er fæddur í október 1984. Samkvæmt sakavottorði ákærða gekkst hann undir sátt 16. ágúst 2002 fyrir umferðarlagabrot. Ákærði var dæmdur 25. mars 2003 til að greiða 120.000 króna sekt og vera sviptur ökurétti í eitt ár fyrir ölvunarakstur. Þá var hann dæmdur 13. janúar 2004 í fimm mánaða fangelsi skilorðsbundið í þrjú ár og 28.000 króna sekt fyrir fíkniefnalagabrot, þjófnað, fjársvik, eignaspjöll og nytjastuld. Með dómi 14. maí sama ár var ákærða ekki gerð frekari refsing en með síðastgreindum dómi fyrir þjófnað og fíkniefnalagabrot. Þá var hann dæmdur til að greiða 28.000 króna sekt fyrir fíkniefnalagabrot 20. ágúst 2004. Hinn 13. október sama ár var hann dæmdur fyrir þjófnað og dómur frá 13. janúar 2004 dæmdur með þar sem ákærði hafði rofið skilorð þess dóms með þjófnaðarbrotum sínum. Refsing var ákveðin sex mánaða fangelsi en þar af voru þrír mánuðir skilorðsbundnir í þrjú ár. Ákærði var dæmdur 25. febrúar 2005 í sex mánaða fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot, þjófnað, tilraun til þjófnaðar og hylmingu. Var refsingin hegningarauki að hluta og skilorðshluti dóms frá 13. október 2004 einnig dæmdur með. Ákærði var dæmdur í sjö mánaða fangelsi 2. júní 2006 fyrir líkamsárás, hylmingu og fíkniefnalagabrot og var reynslulausn sem veitt hafði verið vegna tveggja síðast talinna dóma dæmd upp. Ákærði var 18. október 2006 dæmdur til að greiða 30.000 króna sekt fyrir fíkniefnalagabrot, refsingin var hegningarauki. Þá var ákærða dæmdur hegningarauki 23. maí 2007, tveggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás. Hefur dómnum verið áfrýjað. Loks var ákærði dæmdur 22. júní sl. í sex mánaða fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot, um var að ræða hegningarauka, en reynslulausn sem veitt hafði verið úr fangelsi samkvæmt dómi 2. júní 2006, var einnig dæmd upp. Ákærði hefur samkvæmt því sem að framan greinir ítrekað gerst sekur um hegningarlagabrot. Þá hefur hann einu sinni áður verið fundinn sekur um ölvunarakstur þannig að áhrif hafi á refsingu nú. Brot ákærða var framið fyrir síðastgreinda tvo dóma, frá 23. maí og 22. júní sl., og verður refsing hans því ákveðin sem hegningarauki, skv. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þegar allt framangreint er virt og litið er til 77. gr. almennra hegningarlaga, verður refsing ákærða ákveðin fangelsi í 30 daga og 210.000 króna sekt til ríkissjóðs. Ákærða ber að greiða sektina innan fjögurra vikna en sæta ella fangelsi í 16 daga.
Ákærði er með vísan til 101. og 102. gr. umferðarlaga sviptur ökurétti í þrjú ár og sex mánuði frá uppkvaðningu dómsins að telja.
Ákærði greiði útlagðan sakarkostnað, 56.861 krónu.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Eyþór Helgi Guðmundsson, sæti fangelsi í 30 daga.
Ákærði greiði 210.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna en sæti ella fangelsi í 16 daga.
Ákærði er sviptur ökurétti 3 ár og 6 mánuði frá uppkvaðningu dómsins.
Ákærði greiði útlagðan sakarkostnað, 56.861 króna.
Ásgeir Magnússon.