Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-530/2007:

Ákæruvaldið

(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)

gegn

Árna Sigurðssyni

(Jón Egilsson hdl)

Ávana- og fíkniefni.

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur á fíkniefnum.

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 3. apríl sl. á hendur Árna Sigurðssyni, kt. [...], Sörlaskjóli 40, Reykjavík, dvst. Njálsgötu 65, Reykjavík, fyrir eftirtalin fíkniefnalagabrot:

I.

Mánudaginn 17. október 2006 í bifreiðinni KU-558 á bílastæði fyrir framan Laugaveg 76 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 0,28 g af marihuana og 1,21 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögregla fann við leit í bifreiðinni.

II.

Miðvikudaginn 18. október 2006 á veitingastaðnum Mónakók, Laugavegi 78 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 7,97 g af hassi, sem ákærði framvísaði við leit lögreglu.

III.

Fimmtudaginn 19. október 2006 í bifreiðinni KU-558 á Laugavegi í Reykjavík, haft í vörslum sínum 4,56 g af amfetamíni, sem lögreglan fann við leit á ákærða.

IV.

Fimmtudaginn 26. október 2006 á veitingastaðnum Mónakók, Laugavegi 78 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 0,92 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem ákærði kastaði frá sér á gólf ofangreinds húsnæðis þegar hann varð lögreglunnar var.

V.

Föstudaginn 27. október 2006 í bifreiðinni KU-558 á móts við Hverfisgötu 42 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 4,62 g af amfetamíni, 12,74 g af hassi og 3,39 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögregla fann við leit í bifreiðinni og á ofangreindum dvalarstað ákærða.

VI.

Sunnudaginn 12. nóvember 2006 í bifreiðinni KU-558 á Vesturlandsvegi, norðan við Úlfarsfell í Mosfellsbæ, haft í vörslum sínum 9,89 g af amfetamíni, sem lögregla fann við leit á ákærða á lögreglustöðinni við Hverfisgötu.

VII.

Þriðjudaginn 14. nóvember 2006 á veitingastaðnum Monte Carlo, Laugavegi 37 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 0,54 g af hassi og 1,06 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögregla fann við leit.

VIII.

Miðvikudaginn 29. nóvember 2006 í bifreiðinni KU-588 á Vitastíg í Reykjavík, haft í vörslum sínum 0,08 g af hassi, sem lögregla fann við leit í bifreiðinni.

IX.

Föstudaginn 8. desember 2006 á veitingastaðnum Mónakó, Laugavegi 78 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 0,73 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem ákærði kastaði frá sér á gólf ofangreinds húsnæðis þegar hann varð lögreglunnar var.

X.

Laugardaginn 9. desember 2006 á veitingastaðnum Monte Carlo, Laugavegi 37 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 1,05 g af amfetamíni, sem lögregla fann við leit á ákærða.

XI.

Mánudaginn 4. desember 2006 fyrir utan veitingastaðinn Mónakó, Laugavegi 78 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 1,08 g af tóbaksblönduðu kannabisefni sem lögreglumenn fundu við leit á ákærða og 1,78 g af hassi sem ákærði framvísaði við húsleit lögreglu á ofangreindum dvalarstað ákærða.

XII.

Föstudaginn 2. febrúar 2007 fyrir utan veitingastaðinn Mónakó, Laugavegi 78, Reykjavík, haft í vörslum sínum 3,82 g af amfetamíni og 9,69 g af hassi, sem ákærði framvísaði við leit lögreglu.

Eru ofangreindir ákæruliðir taldir varða við 2. gr., sbr. 5. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. og 6. gr. sömu laga, að því er varðar meðferð ákærða á marihuana, hassi og tóbaksblönduðu kannabisefni, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og sæti upptöku á samtals 32,8 g af hassi, 23,94 g af amfetamíni, 8,39 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 0,28 g af marihuana, sem lögreglan lagði hald á við rannsókn máls, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í desember 1953. Ákærði á að baki sakaferil allt frá árinu 1973. Ákærði var 10. mars 2006 dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Var honum ekki gerð refsing í dómi 27. mars s.á. fyrir samskonar brot. Loks var hann dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi 22. september 2006 fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Með brotum sínum í þessu máli hefur ákærði rofið skilorð framangreinds refsidóms. Verður dómurinn tekinn upp eftir ákvæðum 60. gr. laga nr. 19/1940 og ákærða ákvörðuð refsing í einu lagi með hliðsjón af þeim brotum og þeim sem um er dæmt í þessu máli, sbr. 77. gr. laga nr. 19/1940. Er refsing hans ákveðin fangelsi í 5 mánuði.

Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 32,8 g af hassi, 23,94 g af amfetamíni, 8,39 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 0,28 g af marihuana, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Jóns Egilssonar héraðs dómslögmanns 62.250 krónur.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Árni Sigurðsson, sæti fangelsi í 5 mánuði.

Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 32,8 g af hassi, 23,94 g af amfetamíni, 8,39 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 0,28 g af marihuana, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Jóns Egilssonar héraðs dómslögmanns 62.250 krónur.

Símon Sigvaldason.