Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-529/2007:

S-529/2007:

Ákæruvaldið

(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)

gegn

Pétri Jökli Jónassyni

Ávana- og fíkniefni.

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur á fíkniefnum.

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 3. apríl 2007 á hendur Pétri Jökli Jónssyni, kt. [...],  Hverfisgötu 59, Reykjavík, fyrir eftirtalin fíkniefnalagabrot framin á árinu 2006:

I.

Fimmtudaginn 17. ágúst að Skútuhrauni 9 í Hafnarfirði, haft í vörslum sínum 1 töflu af vímuefninu MDMA, sem lögregla fann við leit á ákærða.

II.

Aðfaranótt laugardagsins 21. október á skemmtistaðnum Pravda, Austurstræti 22 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 0,54 g af amfetamíni, sem lögregla fann við leit á ákærða.

Eru báðir ákæruliðir taldir varða við 2. gr., sbr. 5. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. og 6. gr. sömu laga, að því er varðar meðferð ákærða á vímuefninu MDMA, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og sæti upptöku á 1 töflu af vímuefninu MDMA og 0,54 g af amfetamíni sem lögreglan lagði hald á við rannsókn máls, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Ákærði sótti ekki þing og boðaði ekki forföll en í fyrirkalli, sem var gefið út 27. apríl sl. og löglega birt fyrir honum, var tekið fram að yrði ekki sótt þing að forfallalausu gæti hann búist við að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum sbr. 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Dómurinn telur þannig sannað með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti, að ákærði hafi framið þá háttsemi sem ákært er út af og eru brot ákærða rétt heimfærð til refsiákvæða í ákærunni Ákærði er fæddur í febrúar 1979. Hann hefur ekki áður sætt refsingum svo kunnugt sé. Refsing ákærða þykir hæfilega ákveðin 50.000 króna sekt í ríkissjóð sem greiða skal innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa að telja en ella skal ákærði sæta fangelsi í 4 daga.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru skulu upptæk gerð til ríkissjóðs 1 tafla af vímuefninu MDMA og 0,54 g af amfetamíni sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Sakarkostnað hefur ekki leitt af málinu.

D ó m s o r ð:

Ákærði, Pétur Jökull Jónsson, greiði 50.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, en sæti ella fangelsi í  4 daga.

Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 1 tafla af vímuefninu MDMA og 0,54 g  af amfetamíni sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Símon Sigvaldason.