Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 7. júní 2007.
Mál nr. S-528/2007:
Ákæruvaldið
(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)
gegn
Guðmundi
Víði Gíslasyni
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir vörslur á fíkniefnum.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 3. apríl 2007 á hendur Guðmundi Víði Gíslasyni, kt. [...], Flétturima 31, Reykjavík, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 7. nóvember 2006, í íbúðinni að Flétturima 31, Reykjavík, haft í vörslum sínum samtals 24,68 g af amfetamíni, 15 töflur af vímuefninu MDMA og 2,05 g af maríhúana sem lögreglan fann við leit á ákærða og í íbúðinni.
Þetta er talið varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985, sbr. lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að 24,68 g af amfetamíni, 15 töflur af vímuefninu MDMA og 2,05 g af maríhúana, sem hald var lagt á, verði gert upptækt samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar er lög leyfa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í ágúst 1973. Hann hefur samtals hlotið 13 refsidóma, aðallega fyrir umferðarlagabrot en einnig auðgunarbrot og líkamsárás. Samkvæmt sakavottorði hans verða ákveðin kaflaskil árið 1996 en eftir það hefur hann aðeins sætt refsingu fyrir umferðarlagabrot. Nánar tiltekið var hann dæmdur í 3 mánaða fangelsi fyrir ölvunar- og sviptingarakstur árið 1996. Honum var veitt reynslulausn 13. janúar 1997 í 1 ár á 90 daga eftirstöðvum refsingar og stóðst hann það skilorð. Næst var hann dæmdur árið 2000 í 4 mánaða fangelsi fyrir sviptingarakstur og var refsingin fullnustuð með samfélagsþjónustu. Þá var hann dæmdur árið 2005 til greiðslu 50.000 króna sektar fyrir hraðakstur. Loks var hann 1. febrúar 2007 dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot. Brot það sem hér er til meðferðar er hegningarauki við síðastgreinda dóminn. Ber því að ákvarða refsingu eftir 78. gr. laga nr. 19/1940. Verður ákærða nú gerð ný heildarrefsing í málinu, með hliðsjón af dóminum frá 1. febrúar sl. Samkvæmt því sæti ákærði fangelsi í 4 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá 1. febrúar 2007 haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 24,68 g af amfetamíni, 15 töflur af vímuefninu MDMA og 2,05 g af marihuana, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Ákærði greiði 74.002 krónur í sakarkostnað og 56.025 krónur í störf verjanda á rannsóknarstigi, Þormóð Skorra Steingrímssonar héraðsdómslögmanns.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Guðmundur Víðir Gíslason, sæti fangelsi í 4 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá 1. febrúar 2007 haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 24,68 g af amfetamíni, 15 töflur af vímuefninu MDMA og 2,05 g af marihuana, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Ákærði greiði 74.002 krónur í sakarkostnað og 56.025 krónur í störf verjanda á rannsóknarstigi, Þormóð Skorra Steingrímssonar héraðsdómslögmanns.
Símon Sigvaldason.