Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 2. júlí 2007.
Mál nr. S-501/2007:
Ákæruvaldið
(Sturla Þórðarson yfirlögfræðingur)
gegn
Birgi
Rúnari Benediktssyni
(Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot en ekki gerð sérstök refsing. Dæmdur til greiðslu skaðabóta.
Mál þetta, sem dómtekið var 5. júní sl., er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 26. mars 2007 á hendur Birgi Rúnari Benediktssyni, kt. [...], Básabryggju 51, Reykjavík, fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot, með því að hafa tekið bifreiðina XH-804, að morgni sunnudagsins 6. ágúst 2006, í heimildarleysi frá Miklubraut 62 í Reykjavík, um ýmsar götur og svo óvarlega um Höfðabakkabrú að hann ók utan í vegrið með þeim afleiðingum að bifreiðin valt.
Þetta telst varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 4. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, einnig krefst eigandi bifreiðarinnar XH-804, Dóra Þórdís Albertsdóttir þess að ákærði verði dæmdur til þess að greiða henni skaðabætur að fjárhæð kr. 292.945, sbr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá tjónsdegi, 6. ágúst og síðar dráttarvaxta skv. 1. mgr. 6. gr. og 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Málavextir
Fyrir liggur að ákærði ók umræddum bíl frá Miklubraut 62 í Reykjavík um götur þar í borginni þar til akstrinum lauk með því að ákærði ók utan í vegrið á Höfðabakkabrú og bíllinn valt við það um kl. 06:47, sunnudagsmorguninn 6. ágúst sl., daginn fyrir frídag verslunarmanna. Skemmdir urðu svo miklar á bílnum, að ekki var reynt að gera við hann og var hann seldur til niðurrifs.
Verður nú gerð grein fyrir því sem fram hefur komið í aðalmeðferð málsins.
Ákærði neitar sök. Kveðst hann hafa verið alls gáður og komið í heimsókn til Daníels Pálssonar, kunningja síns, um eittleytið þessa nótt. Kveðst hann hafa verið félaus en þurft að skreppa upp í Breiðholt. Hafi Daníel þá boðið honum bíl móður sinnar að láni og látið hann hafa lyklana um hálftíma eftir að hann kom í heimsókn til hans. Móðir Daníels hafi verið fjarverandi. Hann kveðst hafa vitað að Daníel var 16 ára gamall og hafði ekki ökuréttindi. Aðspurður segir hann að honum hafi ekki fundist óeðlilegt þótt Daníel lánaði bílinn þótt hann ætti hann ekki og væri svo ungur að aldri, enda hefði Daníel sagst mega lána hann. Hafi ekki hvarflað að honum að Daníel hefði ekki mátt lána bílinn. Hann kveðst hafa misst stjórn á bílnum á bakaleiðinni fyrir það að hann var á stórum hjólum og hann lent í vatnspolli. Hafi bíllinn lent upp á vegkant og farið á hliðina. Hafi hann verið á lögleyfðum hraða þegar þetta henti. Hann segir óhappið hafa gerst snemma um nóttina og hafi hann farið heim til Daníels eftir það. Ákærði kveðst ekki gera athugasemd við fjárhæð bótakröfunnar en hann hafi engin ráð til þess að greiða hana.
Dóra Þórdís Albertsdóttir, eigandi bílsins, hefur skýrt frá því að hún hafi hvorki lánað syni sínum bílinn né leyft honum að lána hann öðrum meðan hún var á ferðalagi fyrir norðan. Hún kveðst hafa fengið bílasala í Bílamiðstöðinni til þess að verðmeta bílinn fyrir sig. Hún segir að gleðskapur muni hafa staðið á heimilinu þessa daga og sonur hennar verið við drykkju dögum saman.
Daníel Pálsson hefur kannast við að hafa lánað ákærða bílinn kvöldið áður eða um nóttina en ákærði, sem hafi þá verið gestkomandi, hefði þurft að skreppa eitthvað. Hann hafi svo skilað bílnum aftur hálftíma síðar, eftir ökuferðina. Bíllinn hafi hins vegar horfið seint um nóttina eða um morguninn, en hann segist ekki muna þetta vel vegna mikillar ölvunar og ekki muna hvað þeim ákærða fór á milli. Hann kveðst ekki hafa haft heimild til þess að lána bílinn og hafi hann aðeins lánað ákærða bílinn í þessa einu ferð. Hann segir þá ákærða hafa þekkst um nokkurt skeið og séu þeir kunningjar.
Niðurstaða
Ákærði segir að hann hafi aðeins farið í eina ökuferð á bílnum, snemma um nóttina og að hann hafi velt bílnum í þeirri ferð. Það samrýmist þó ekki framburði Daníels sem segir ákærða hafa komið á bílnum úr fyrri ferðinni en bíllinn horfið síðar um nóttina eða morguninn. Þess er þó að gæta að Daníel mun hafa verið mjög drukkinn þessa nótt. Þá er þetta einnig í ósamræmi við tímasetningu í lögregluskýrslu sem gerð var um bílveltuna. Sú skýrsla er þó óstaðfest. Verður því að leggja til grundvallar framburð ákærða að hann hafi aðeins farið eina ferð á bílnum og velt honum á brúnni í þeirri ferð. Fyrir liggur að Daníel Pálsson heimilaði ákærða að nota bílinn þessa umræddu nótt og eins liggur það fyrir að Daníel átti ekki með að lána ákærða hann. Ber ákærði það fyrir sig að hann hafi haft leyfi til þess að nota bílinn. Þegar gætt er að því að Daníel var 16 ára að aldri og ökuréttindalaus hlaut ákærði að vita það að pilturinn átti ekki með það að lána bíl móður sinnar. Var honum því óheimilt að nota bílinn og braut hann gegn 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga með því að aka honum eins og lýst er í ákærunni. Ákærði hefur lýst því hvernig hann missti stjórn á bílnum svo að hann valt. Telst hann hafa sýnt af sér óvarlegan akstur þarna á brúnni og brotið gegn 1. mgr. 4. gr. umferðarlaga.
Refsing, skaðabætur og sakarkostnaður Á árunum 1997 og 1998 hlaut ákærði fjóra refsidóma fyrir nytjastuld, eignaspjöll, líkamsárás, rán, þjófnað og gripdeild. Á árunum 2000 til 2003 gekkst hann undir fimm lögreglustjórasáttir vegna fíkniefnabrota. Ákærði var dæmdur 13. nóvember 2003 í 45 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár fyrir fíkniefnabrot. Þá hlaut hann 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað með dómi 22. apríl 2005 og annan dóm 5. október 2005 en þá var honum ekki gerð sérstök refsing. Þá var ákærði dæmdur 7. mars 2006 í fangelsi í fjóra mánuði skilorðsbundið í tvö ár fyrir þjófnað, og var dómur frá 22. apríl 2005 þá dæmdur með. Loks var ákærði dæmdur 15. mars 2006 í 90 daga fangelsi skilorðsbundið í þrjú ár vegna þjófnaðar.
Loks var ákærði dæmdur 18. apríl sl. í 8 mánaða fangelsi fyrir margvísleg hegningarlagabrot, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot. Voru þá skilorðsdómarnir tveir dæmdir upp vegna skilorðsrofs. Sýnt þykir að ákærði hefði ekki hlotið frekari refsingu en hann fékk með þeim dómi, hefði þá verið dæmt um þessa sök.
Ákærði gerir ekki athugasemdir við bótakröfu Dóru Þórdísar Albertsdóttur, sem krefst þess að hann verði dæmdur til þess að greiða skaðabætur að fjárhæð 292.945 krónur auk vaxta. Ber að dæma hann til þess að greiða Dóru Þórdísi þá fjárhæð ásamt almennum vöxtum samkvæmt 4. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá 6. ágúst 2006 til dómsuppsögu en eftir það með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laganna til greiðsludags.
Dæma ber ákærða til þess að greiða 150.000 krónur í málsvarnarlaun til Sveins Andra Sveinssonar hrl., og dæmast þau með virðisaukaskatti. Ekki er kunnugt um annan kostnað af málinu.
Dregist hefur að kveða upp dóm vegna mikilla anna dómarans og þess að beðið hefur verið eftir því að dómur gengi í umfangsmiklu sakamáli gegn ákærða í Héraðsdómi Reykjaness.
DÓMSORÐ:
Ákærða, Birgi Rúnari Benediktssyni, er ekki gerð frekari refsing.
Ákærði greiði Dóru Þórdísi Albertsdóttur, 292.945 krónur í skaðabætur ásamt almennum vöxtum frá 6. ágúst 2006 til dómsuppsögu en eftir það með dráttarvöxtum til greiðsludags.
Ákærði greiði 150.000 krónur í málsvarnarlaun til Sveins Andra Sveinssonar hrl. Pétur Guðgeirsson