Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-47/2007:

Ákæruvaldið

(Einar Laxness fulltrúi)

gegn

Guðlaugi Hannessyni

Þjófnaður.

Karlmaður dæmdur til 30 daga fangelsis, skilorðsbundið í 2 ár fyrir þjófnaðarbrot og fíknilagabrot. Einnig dæmdur til greiðslu skaðabóta og til upptöku á smáræði af fíkniefnum.

Mál þetta var höfðað með ákæru lögreglustjórans í Reykjavík, dagsettri 23. janúar sl., á hendur Guðlaugi Hannessyni, kt. 000000-0000, Veghúsum 23, Reykjavík, „fyrir eftirgreind brot framin í Reykjavík á árinu 2006:

Þjófnað, með því að hafa á tímabilinu frá janúar til 12. febrúar 2006, er hann var starfsmaður hjá Gólfþjónustu Íslands ehf., farið í heimildarleysi inn á skrifstofu forstöðumanns í félags- og þjónustumiðstöð aldraðra að Aflagranda 40, og stolið peningum, samtals kr. 115.385.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Fíkniefnalagabrot, með því að hafa sunnudaginn 12. febrúar, haft í vörslum sínum 0,19 g af amfetamíni, sem lögregla fann við leit á ákærða á lögreglustöðinni við Hverfisgötu.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og jafnframt að gerð verði upptæk 0,19 g af amfetamíni, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Reykjavíkurborg, kt. 000000-0000, krefst bóta að fjárhæð kr. 164.885 auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá lokum tjónstímabils, sem var 12. febrúar, en síðan dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.

Ákærði hefur játað brot sín fyrir dóminum og samþykkt bótakröfu. Er játning hans í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sín, en þau eru í ákæru réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Samkvæmt sakavottorði ákærða gekkst hann undir greiðslu 60.000 króna sektar 21. desember 2003 fyrir brot gegn 45. gr. umferðarlaga og var þá sviptur ökurétti í 6 mánuði. Þá gekkst hann undir greiðslu 60.000 króna sektar 1. október 2004 fyrir brot gegn 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín og er það virt honum til refsimildunar og einnig horfir til refsimildunar að ákærði hefur samþykkt bótakröfu. Til refsiþyngingar horfir að ákærði misnotaði aðstöðu sína sem starfsmaður til að komast yfir féð. Þá verður horft til 77. gr. almennra hegningarlaga við ákvörðun refsingar, þar sem ákærði hefur gerst sekur um fleiri en eitt brot.

Að þessu virtu verður refsing ákærða 30 daga fangelsi en fresta skal fullnustu refsingar og falli hún niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði sæti upptöku á 0,19 g af amfetamíni.

Í málinu liggur frammi framsal bótakröfu Reykjavíkurborgar til Gólfþjónustu Íslands. Því verður ákærði dæmdur til að greiða Gólfþjónustu Íslands ehf., kt. 000000-0000,  164.885 krónur auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 12. febrúar 2006 til 9. mars 2007 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Guðlaugur Hannesson, sæti 30 daga fangelsi en fresta skal fullnustu refsingar ákærða og falli hún niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði sæti upptöku á 0,19 g af amfetamíni.

Ákærði greiði Gólfþjónustu Íslands ehf., kt. 000000-0000, 164.885 krónur auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 12. febrúar 2006 til 9. mars 2007 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Ingveldur Einarsdóttir.