Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-466/2007:

Ákæruvaldið

(Guðjón Magnússon fulltrúi)

gegn

Gunnari Óla Guðjónssyni

Eignaspjöll.

Ákærði sakfelldur fyrir eignaspjöll með því að valda skemmtum á bifreiðum.

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lög reglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 27. mars 2007 á hendur Gunnari Óla Guðjónssyni, kt. [...], Klettagötu 12, Hafnarfirði, fyrir eignarspjöll með því að hafa, aðfaranótt fimmtudagsins 23. mars 2006, unnið spjöll á tveimur bifreiðum á Hellis götu í Hafnarfirði - brotið hægri hliðarspegil á bifreiðinni AM-108 og vinstri hliðarspegil á bifreiðinni AB-378 og eru skemmdir á fyrri bifreiðinni metnar á 24.520 krónur og þeirri síðar á 33.900 krónur.

Þetta er talið varða við 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Í málinu krefjast eftirgreindir þess að ákærði verði dæmdur til skaðabóta ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga frá 23. mars 2006 en síðan dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröf unnar til greiðsludags.

Hólmfríður St. Björnsdóttir, kt. [...], skaðabóta að fjárhæð 24.530 krónur.

Emil Jón Ragnarsson, kt. [...], skaðabóta að fjárhæð 33.900 krónur.

Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar er lög leyfa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í maí 1984. Hann var dæmdur í sektargreiðslu á árinu 2002 fyrir umferðarlagabrot. Hann var dæmdur í sekt á árinu 2004 fyrir líkamsárás. Þá var hann dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi á árinu 2005 fyrir húsbrot. Var refsing skilorðsbundin til tveggja ára. Loks gekkst hann undir viðurlagaákvörðun á árinu 2006 fyrir brot gegn umferðarlögum. Með brotum sínum í þessu máli hefur ákærði rofið skilyrði refsidómsins frá 2005. Með heimild í 60. gr. laga nr. 19/1940 er þó ákveðið að láta skilorðsdóminn haldast og ákvarða ákærða refsingu sér í lagi fyrir þau brot sem hér er fjallað um. Með vísan til þess er refsing ákærða ákveðin 40.000 króna sekt sem greiðist til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins að telja en sæti ella fangelsi í  4 daga.

Í samræmi við samþykki ákærða greiði hann Hólmfríði St. Björnsdóttur, kt. 100758-2459, 24.530 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga frá 23. mars 2006 til 30. apríl 2006 en dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laganna frá þeim degi til greiðsludags.

Skaðabótakröfu Emils Jóns Ragnarssonar, kt. 100760-5259, er vísað frá dómi, en skaðabótakrafan er vanreifuð.

Engan sakarkostnað hefur leitt af málinu, sem Guðjón Magnússon fulltrúi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu flutti.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Gunnar Óli Guðjónsson, greiði 40.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins að telja en sæti ella fangelsi í  4 daga.

Ákærði greiði Hólmfríði St. Björnsdóttur, kt. [...], 24.530 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga frá 23. mars 2006 til 30. apríl 2006 en dráttar vöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laganna frá þeim degi til greiðsludags.

Skaðabótakröfu Emils Jóns Ragnarssonar, kt. [...], er vísað frá dómi.

Símon Sigvaldason.