Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 9. mars 2007.
Mál nr. S-40/2007:
Ákæruvaldið
(Daði Kristjánsson fulltrúi)
gegn
Sævari Geir Hallvarðssyni
(Jón Egilsson hdl)
Útdráttur
Karlmaður dæmdur í 45 daga fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár, fyrir fíkniefnalagabrot. Ákærði dæmdur til að sæta upptöku á fíkniefnum.
Mál þetta var höfðað með ákæru lögreglustjórans í Reykjavík, dagsettri 16. janúar sl., á hendur Sævari Geir Hallvarðssyni, kt. 000000-0000, Þorláksgeisla 49, Reykjavík, „fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa þriðjudaginn 28. nóvember 2006 að Lágholti 15 í Mosfellsbæ haft í vörslum sínum 1,26 g af amfetamíni, 198,22 g af marihuana, 19,74 g af kannabislaufum og 47 kannabisplöntugræðlinga, og jafnframt að hafa um nokkurt skeið fram til umrædds dags ræktað í umræddu húsnæði téða græðlinga, en lögreglan fann og lagði hald á fíkniefnin og græðlingana við húsleit.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985, og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að framangreind fíkniefni og kannabisplöntugræðlingar verði gert upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001“.
Ákærði hefur játað brot sitt fyrir dóminum. Er játning hans í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sitt, en það er í ákæru réttilega heimfært til refsiákvæða.
Samkvæmt sakavottorði ákærða gekkst hann undir greiðslu 250.000 króna sektar með viðurlagaákvörðun 29. mars 2006, fyrir brot gegn ávana -og fíkniefnalögum.
Að þessu virtu verður refsing ákærða ákveðin 45 daga fangelsi en fresta skal fullnustu refsingar og falli hún niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 sæti ákærði upptöku á 1,26 g af amfetamíni, 198,22 g af marihuana, 19,74 g af kannabislaufum og 47 kannabisplöntugræðlingum.
Þá skal ákærði með vísan til 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 greiða málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Jóns Egilssonar héraðsdómslögmanns, 60.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Sævar Geir Hallvarðsson, sæti fangelsi í 45 daga en frestað er fullnustu refsingar ákærða og falli hún niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Upptæk eru gerð 1,26 g af amfetamíni, 198,22 g af marihuana, 19,74 g af kannabislaufum og 47 kannabisplöntugræðlingar.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Jóns Egilssonar héraðsdómslögmanns, 60.000 krónur.
Ingveldur Einarsdóttir