Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 14. maí 2007.
Mál nr. S-306/2007:
Ákæruvaldið
(Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir fulltrúi)
gegn
Dwain John Elroy Prince
Lykilorð
Hluti refsingar skilorðsbundinn og hluti óskilorðsbundinn. Líkamsárás. Miskabætur.
Útdráttur
Karlmaður dæmdur til 4 mánaða fangelsisvistar, en frestað fullnustu tveggja mánaða af refsingu ákærða, skilorðsbundið í 3 ár. Þá var ákærði dæmdur til að greiða tjónþola bætur að fjárhæð 190.000 krónur
Mál þetta, sem dómtekið var 24. apríl sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá 6. mars 2007 á hendur Dwain John Elroy Prince fyrir líkamsárás, með því að hafa að kvöldi laugardagsins 16. september 2006, við veitingastaðinn Eldsmiðjuna, við Bragagötu í Reykjavík, ráðist á Rubin Karl Hackert, kt. 000000-0000, kýlt hann, fellt hann og sparkað í bakið þar sem hann lá í götunni, með þeim afleiðingum að hann hlaut hruflsár á hné, mar á enni, blæðingu í augnhvítu innanvert á hægra auga, eymsli yfir hægra kinnbeini, stirðleika í hálsi og brjóstbaki og vöðvaeymsli vinstra megin í hnakka, hálsi og brjóstbaki.
Telur ákæruvaldið þessa háttsemi varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20/1981 og 110. gr. laga nr. 82/1998.
Krefst ákæruvaldið þess að ákærði verði dæmdur til refsingar. Í málinu gerir Rubin Karl kröfu um skaðabætur að fjárhæð 291.900 krónur.
Ákærði játaði brot sitt fyrir dóminum og var málið tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu, eftir að sækjanda og verjanda hafði verið gefinn kostur á að reifa ákvörðun viðurlaga og lagaatriði.
Samrýmist játning ákærða gögnum málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sitt, en það er í ákæru réttilega fært til refsiákvæða.
Samkvæmt sakavottorði ákærða gekkst hann undir greiðslu 50.000 króna sektar 30. júlí 2002 fyrir brot gegn 2. mgr. 37. gr. umferðarlaga og var þá sviptur ökurétti í 1 mánuð. Hann hlaut 90 daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn í 2 ár, fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. laga nr. 19/1940. Ákærði gekkst undir greiðslu 20.000 króna sektar, með viðurlagaákvörðun 16. júní 2003, fyrir brot gegn 1. og 2. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998. Þá gekkst hann undir greiðslu 60.000 króna sektar með viðurlagaákvörðun 8. október 2003 fyrir brot gegn 2. mgr. 37. gr. umferðarlaga og var þá sviptur ökurétti í 2 mánuði. Ákærði gekkst undir greiðslu 30.000 króna sektar 27. janúar 2004, fyrir brot gegn 2. mgr. 37. gr. umferðarlaga og var þá sviptur ökurétti í 3 mánuði. Þá gekkst hann undir greiðslu 20.000 króna sektar 5. október 2005 fyrir brot gegn 245. gr., sbr. 4. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði gekkst undir greiðslu 80.000 króna sektar 8. maí 2006, fyrir brot gegn 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga og var þá sviptur ökurétti í 8 mánuði frá 19. ágúst 2006. Síðast hlaut ákærði 60 daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn í 3 ár, 13. júní 2006, fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga.
Ákærði hefur samkvæmt framangreindu áður gerst sekur um ofbeldisbrot og verður litið til þess við ákvörðun refsingar. Með broti sínu nú, hefur ákærði rofið skilorð síðastgreinds dóms. Ber því með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga að taka upp 60 daga skilorðsdóminn frá 13. júní 2006 og ákveða refsingu ákærða í einu lagi, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Er refsing ákærða ákveðin með hliðsjón af framangreindu fangelsi í 4 mánuði, en frestað er fullnustu 2 mánaða af refsingu ákærða og falli sá hluti refsingarinnar niður, að liðnum 3 árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Í málinu liggur frammi bótakrafa brotaþola að fjárhæð 291.900 krónur sem sundurliðast svo:
Heimilislæknir kr. 1.900 Miskabætur kr. 250.000 Lögmannsþóknun m.vsk.................. kr. 40.0000 Samtals kr. 291.900 Ekki liggja frammi í málinu gögn varðandi liðinn ,,heimilislæknir“ og verður þeim kröfulið vísað frá dómi.
Ákærði hefur verið sakfelldur fyrir líkamsárás og verður honum gert, með vísan til 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, að greiða brotaþola miskabætur, sem þykja hæfilega ákveðnar 150.000 krónur. Þá verður ákærða gert að greiða brotaþola bætur vegna lögmannsaðstoðar, 40.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Samtals verður ákærði dæmdur til að greiða brotaþola bætur að fjárhæð 190.000 krónur.
Ákærði verður með vísan til 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 dæmdur til að greiða sakarkostnað, samtals 70.260 krónur, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Guðrúnar Sesselju Arnardóttur héraðsdómslögmanns, 64.640 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Einar Laxness, fulltrúi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Dwain John Elroy Prince, sæti fangelsi í 4 mánuði, en frestað er fullnustu 2 mánaða af refsingu ákærða og falli sá hluti refsingarinnar niður, að liðnum 3 árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði greiði Rubin Karl Hackert 190.000 krónur.
Ákærði greiði sakarkostnað málsins, 70.260 krónur, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Guðrúnar Sesselju Arnardóttur héraðsdómslögmanns, 64.640 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ingveldur Einarsdóttir.