Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-300/2007:

S-300/2007:

Ákæruvaldið

(Einar Laxness fulltrúi)

gegn

Matthildi Eiðsdóttur

Mál

Þjófnaður.

Sakfellt fyrir þjófnað

Mál þetta sem dómtekið var 30. maí sl., er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 6. mars 2007 á hendur Matthildi Eiðsdóttur, kt. [...], Miklubraut 66, Reykjavík, fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 17. ágúst 2006 í versluninni Nóatún, Nóatúni 17, Reykjavík, stolið léttmjólk, súkkulaði, rjóma, vanillustöngum, púðursykri, grisjuklútum og mintpakka, samtals að verðmæti kr. 1.632 Þetta er talið varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar.

Málavextir.

Ákærða hefur skýlaust játað það brot sem hún er saksótt fyrir.  Hefur hún orðið sek um athæfi það sem lýst er í ákærunni og réttilega er þar fært til refsiákvæða.  Ákærða fékk skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir þjófnað árið 2003 og stóðst skilorðið.  Brot hennar nú er smáræði eitt.  Þykir refsingin fyrir það hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga.  Rétt er að fresta því að framkvæma refsingu þessa og ákveða að hún falli niður að liðnum 3 árum frá dómsbirtingu að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Kostnað leiddi ekki af málinu.

DÓMSORÐ:

Ákærða, Matthildur Eiðsdóttir, sæti fangelsi í 30 daga. Framkvæmd refsingarinnar er frestað og fellur hún niður að liðnum 3 árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærða almennt skilorð.

Pétur Guðgeirsson.