Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-299/2007:

Ákæruvaldið

(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)

gegn

Kristni

S. H. Styrmissyni

Játningarmál. Þjófnaður.

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað.

Mál þetta, sem dómtekið var 28. júní sl., er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 6. mars sl. á hendur Kristni Haukdal Styrmissyni, kt. [...], óstaðsettur í hús í Reykjavík, fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 14. nóvember 2006 í versluninni B-YOUNG, Laugavegi 83, Reykjavík, stolið skyrtu og peysu, samtals að verðmæti kr. 14.980.

Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Málavextir

Ákærði hefur skýlaust játað það brot sem hann er saksóttur fyrir.  Hefur hann orðið sekur um athæfi það sem lýst er í ákærunni og réttilega er þar fært til refsiákvæðis.  Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga.

Kostnað leiddi ekki af málinu.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Kristinn S.H. Styrmisson, kt. [...], sæti fangelsi í 45 daga.

Pétur Guðgeirsson.