Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 9. mars 2007.
Mál nr. S-260/2007:
Ákæruvaldið
(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)
gegn
Kristni Jónssyni
Útdráttur
Ákærði var dæmdur til greiðslu 125.000 kr. sektar fyrir fíkniefnalagabrot og gert að sæta upptöku á efnunum. Skilorðsrof en skilorðsdómur var látinn standa.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, á hendur Kristni Jónssyni, [...], Krummahólum 8, Reykjavík, með dvalarstað í Blönduhlíð 27, Reykjavík, fyrir eftirtalin fíkniefnalagabrot:
I.
Með því að hafa fimmtudaginn 23. nóvember 2006, í íbúðinni að Blönduhlíð 27 (efstu hæð), Reykjavík, haft í vörslum sínum 2,49 g af amfetamíni, 8,79 g af hassi, 6,94 g af maríhúana og 36,07 g af sveppum sem innihalda efnið psilocybin sem lögreglan fann við leit á ákærða og í íbúðinni.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
II.
Með því að hafa fimmtudaginn 4. janúar 2007, í íbúðinni að Blönduhlíð 27 (efstu hæð), Reykjavík, haft í vörslum sínum, 2,90 g af hassi og 1,73 g af tóbaksblönduðu kannabisefni sem lögreglan fann við leit á ákærða og í íbúðinni.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að samtals 11,69 g af hassi, 2,49 g af amfetamíni, 36,07 g af sveppum, psilocybin, 6,94 g af maríhúana og 2,49 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem hald var lagt á, verði gert upptækt samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Ákærði sótti ekki þing og boðaði ekki forföll en í fyrirkalli, sem var gefið út 1. mars sl. og löglega birt fyrir honum 8. mars sl., var tekið fram að yrði ekki sótt þing að forfallalausu gæti hann búist við að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum sbr. 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Dómurinn telur þannig sannað með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti, að ákærði hafi framið þá háttsemi sem ákært er út af og eru brot ákærða rétt heimfærð til refsiákvæða í ákærunni.
Ákærði er fæddur í janúar 1987. Hinn 8. júlí 2004 var hann dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir líkamsárás. Hann gekkst undir lögreglustjórasátt fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot í desember 2005. Hinn 22. september 2006 var hann dæmdur til greiðslu sektar fyrir fíkniefnalagabrot. Var skilorðsdómurinn látinn standa. Með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 verður skilorðsdómurinn nú látinn standa. Þykir refsing hans hæfilega ákvörðuð, með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga, 125.000 króna sekt í ríkissjóð og komi tíu daga fangelsi í stað sektarinnar, verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna.
Með vísan til framangreindra laga- og reglugerðarákvæða skal ákærði sæta upptöku á samtals 11,69 grömmum af hassi, 2,49 grömmum af amfetamíni, 36,07 grömmum af sveppum sem innihalda psilocybin, 6,94 grömmum af maríhúana, og 1,72 grömmum af tóbaksblönduðu kannabisefni.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi.
Dóm þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir, settur héraðsdómari.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Kristinn Jónsson, greiði 125.000 sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa, en sæti ella fangelsi í 10 daga.
Ákærði sæti upptöku á samtals 11,69 grömmum af hassi, 2,49 grömmum af amfetamíni, 36,07 grömmum af sveppum sem innihalda psilocybin, 6,94 grömmum af maríhúana, og 1,72 grömmum af tóbaksblönduðu kannabisefni.
Sandra Baldvinsdóttir