Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 28. mars 2007.
Mál nr. S-258/2007:
Ákæruvaldið
(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)
gegn
Elvari Þór Sturlusyni
Útdráttur
Sakfellt fyrir vörslur á litlu magni fíkniefna. Sektarrefsing.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu á hendur Elvari Þór Sturlusyni, kt. [...], Núpalind 8, Kópavogi, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 16. júní 2006, í bifreiðinni YZ-959, á Bústaðavegi við Háleitisbraut, Reykjavík, haft í vörslum sínum 0,99 g af tóbaksblönduðu kannabisefni sem lögreglan fann við leit á ákærða.
Þetta er talið varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985, sbr. lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að 0,99 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem hald var lagt á, verði gert upptækt samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Ákærði sótti ekki þing og boðaði ekki forföll en í fyrirkalli, sem var gefið út 7. mars sl. og löglega birt fyrir honum, var tekið fram að yrði ekki sótt þing að forfallalausu gæti hann búist við að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum sbr. 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Dómurinn telur þannig sannað með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti, að ákærði hafi framið þá háttsemi sem ákært er út af og er brot ákærða rétt heimfært til refsiákvæða í ákærunni Ákærði er fæddur í maí 1983. Hann var á árinu 2002 dæmdur í 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Þá var hann 30. janúar 2003 dæmdur í 2ja ára fangelsi fyrir brot gegn 194. gr. laga nr. 19/1940. Loks var hann dæmdur í 3ja mánaða fangelsi 5. september 2003 fyrir líkamsárás. Var honum 26. október 2004 veitt reynslulausn í 2 ár á eftirstöðvum refsingar 270 dögum. Ákærði hefur með broti sínu rofið skilyrði reynslulausnarinnar. Með hliðsjón af brotum ákærða í þessu máli verður hún þó látin halda sér og ákærða ákvörðuð refsing sér í lagi í þessu máli.
Refsing ákærða þykir hæfilega ákveðin 28.000 króna sekt í ríkissjóð sem greiða skal innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa að telja en ella skal ákærði sæta fangelsi í 2 daga. Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 0,99 g af tóbaksblönduðu kannabisefni sem lögreglan lagði hald á við rannsókn málsins.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Elvar Þór Sturluson, greiði 28.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, en sæti ella fangelsi í 2 daga.
Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 0,99 g af tóbaksblönduðu kannabisefni sem lögreglan lagði hald á við rannsókn málsins.
Símon Sigvaldason.