Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 16. mars 2007.
Mál nr. S-213/2007:
Ákæruvaldið
(Laufey Kristjánsdóttir fulltrúi)
gegn
Elvari Hákoni Má Jóhannssyni
Lykilorð
Útdráttur
Karlmaður dæmdur til greiðslu 40.000 króna sektar fyrir eignaspjöll.
Mál þetta var höfðað með ákæru lögreglustjórans í Reykjavík, dagsettri 20. febrúar sl., á hendur Elvari Hákoni Má Jóhannssyni, kt. 000000-0000, Aðalstræti 37, Patreksfirði, „fyrir eignaspjöll, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 16. september 2006, á bifreiðastæði í Naustunum á móts við veitingahúsið Café Amsterdam í Reykjavík, sparkað í hægri fram- og afturhurð bifreiðarinnar UF-681 svo að dældir komu í hurðirnar.
Telst þetta varða við 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins, þrátt fyrir löglega birt fyrirkall, þar sem þess var getið að fjarvist hans kynni að vera metin til jafns við það að hann játaði brot það sem hann er ákærður fyrir. Var málið því tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu. Dómurinn telur sannað með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti, að ákærði hafi framið þá háttsemi sem ákært er út af og er brot ákærða réttilega heimfært til refsiákvæða í ákærunni.
Samkvæmt sakavottorði ákærða hlaut hann 40 daga fangelsisdóm í Vestre Landsret, Danmörku fyrir brot gegn ,,244, 2.mgr. 56. gr. hgl. (líkamsárás)“. Þá gekkst hann undir greiðslu 50.000 króna sektar, 21. ágúst 2006, fyrir brot gegn 1., sbr. 3. mgr. 37. gr. umferðarlaga 21. ágúst 2006 og var þá sviptur ökurétt í 1 mánuð.
Að þessu virtu verður refsing ákærða ákveðin 40.000 króna sekt sem ákærði greiði til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, en sæti ella fangelsi í 4 daga.
Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Elvar Hákon Már Jóhannsson, greiði 40.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, en sæti ella fangelsi í 4 daga.
Ingveldur Einarsdóttir.