Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 20. mars 2007.
Mál nr. S-212/2007:
Ákæruvaldið
(Ragna Bjarnadóttir fulltrúi)
gegn
Agnes Ósk Þorgrímsdóttur
Útdráttur
Kona á þrítugsaldri dæmd í skilorðsbundið fangelsi fyrir að veitast með ofbeldi að tveimur lögreglumönnum við rækslu skyldustarfa.
Ár 2007, þriðjudaginn 20. mars, er dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur háð í Dómhúsinu við Lækjartorg af Jónasi Jóhannssyni héraðsdómara og dómur kveðinn upp í málinu nr. S-212/2007: Ákæruvaldið gegn Agnesi Ósk Þorgrímsdóttur, sem dómtekið var á þingfestingardegi 14. mars á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Ríkissaksóknari höfðaði málið með ákæru útgefinni 14. febrúar 2007 á hendur Agnesi Ósk Þorgrímsdóttur, kt. 000000-0000, Hraunbæ 46, Reykjavík og X, [fæddum 1984], til refsingar fyrir brot gegn valdstjórninni samkvæmt 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum, framin við Skólaveg 47, Fáskrúðsfirði, aðfaranótt sunnudagsins 30. júlí 2006, sem hér segir:
- Á hendur ákærðu Agnesi Ósk, fyrir að veitast að lögreglumönnunum Ingólfi Finnssyni og Helga Má Tuliníus, sem þar voru að sinna skyldustörfum, með því að sparka í maga Ingólfs og reyna að bíta í handlegg Helga Más.
- Á hendur ákærða X, fyrir að veitast að Ingólfi, á meðan hann var að handtaka meðákærðu Agnesi Ósk og leitast við að hindra handtökuna með því að taka lögreglumanninn hálstaki.
Ákærði X lést 11. mars síðastliðinn. Hefur málið því verið fellt niður á hendur honum.
Með játningu ákærðu Agnesar Óskar fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er framangreind háttsemi hennar sönnuð og þykir rétt færð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærða var tvítug þegar hún framdi brotið. Samkvæmt sakavottorði hlaut hún 14. október 2005 þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið þrjú ár, fyrir þjófnaði. Voru þá teknir upp tveir eldri skilorðsdómar fyrir sams konar brot og þeir dæmdir með í hinu nýja máli. Í kjölfarið hefur ákærða hlotið þrjá sektardóma fyrir fíkniefnalagabrot, 28. ágúst og 20. desember 2006 og loks 10. janúar 2007. Með broti því, sem hér er til meðferðar, hefur ákærða rofið skilorð dómsins 14. október 2005. Ber því að taka hann upp og dæma með máli þessu samkvæmt reglum 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 77. gr. sömu laga, jafnframt því sem hið nýja brot telst hegningarauki við sektardómana þrjá, sbr. 78. gr. hegningarlaganna. Að þessu gættu og með hliðsjón af greiðri játningu ákærðu, því að óverulegar afleiðingar urðu af sparki hennar í maga Ingólfs Finnssonar og að ekki beit hún starfsbróður hans, þykir refsing hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði. Í ljósi sömu staðreynda og að teknu tilliti til aldurs ákærðu þykir enn mega ákveða að fresta fullnustu refsingar og binda hana almennu skilorði, eins og nánar greinir í dómsorði.
Ragna Bjarnadóttir fulltrúi Ríkissaksóknara sótti málið af hálfu ákæruvaldsins.
DÓMSORÐ:
Ákærða, Agnes Ósk Þorgrímsdóttir, sæti fangelsi í fjóra mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum fimm árum frá dómsuppsögu haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Jónas Jóhannsson