Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 16. febrúar 2007.
Mál nr. S-2/2007:
Ákæruvaldið
(Daði Kristjánsson fulltrúi)
gegn
Kristínu Þóru Jónasdóttur
(Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Lykilorð
Hluti refsingar skilorðsbundinn og hluti óskilorðsbundinn. Refsiákvörðun. Ávana- og fíkniefni.
Útdráttur
Kona dæmd til 7 mánaða fangelsisrefsingar, þar af voru 5 mánuðir skilorðsbundnir í 2 ár, fyrir að hafa vörslur á rúmlega 500 g af amfetamíni og um 5 g a f hassi.
Mál þetta var höfðað með ákæru lögreglustjórans í Reykjavík, dagsettri 9. janúar sl., á hendur Kristínu Þóru Jónsdóttur, kt. 000000-0000, Strýtuseli 3, Reykjavík, „fyrir fíkniefnabrot með því að hafa að kvöldi fimmtudagsins 12. október 2006 haft í vörslum sínum samtals 528,53 g af amfetamíni og 4,85 g af hassi, þar af 527,43 g af amfetamíni á heimili sínu, sem lögregla fann við húsleit, og 1,10 g af amfetamíni og framangreint hass sem ákærðia framvísaði að hluta og sem lögregla fann að hluta í bifreiðinni YY-922 á Sæbraut við Dugguvog í Reykjavík.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. og 6. gr. sömu laga, að því er varðar meðferð ákærðu á kannabis, sbr. lög nr. 13/1985, og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og jafnframt að framangreind fíkniefni, sem hald var lagt á, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“
Ákærða hefur játað brot sitt fyrir dóminum. Er játning hennar í samræmi við gögn málsins og verður hún sakfelld fyrir brot sín, en þau eru í ákæru réttilega heimfærð til refsiákvæða.
Ákærða bar fyrir dómi að hún hefði einungis haft vörslur amfetamínsins innan við sólarhring. Staðfesti ákærða framburð þann sem hún gaf hjá lögreglu.
Ákærða hefur samkvæmt sakavottorði aldrei áður gerst sek um refsiverða háttsemi og verður litið til þess við ákvörðun refsingar. Þá verður litið til þess að ákærða játaði brot sitt hreinskilnislega og hefur framvísað vottorði vinnuveitanda, um að hún stundi fulla vinnu. Einnig ber að horfa til magns amfetamíns sem ákærða hafði í vörslum sínum og dómafordæma, þegar um svo mikið magn er að ræða.
Að þessu virtu verður refsing ákærðu ákveðin fangelsi í 7 mánuði. Þar sem ákærða hefur aldrei áður gerst sek um refsiverða háttsemi og stundar vinnu er rétt að fresta fullnustu 5 mánaða af refsingu ákærðu og falli sá hluti refsingarinnar niður, að liðnum 3 árum frá birtingu dóms þesssa, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærða sæti upptöku á 528,53 g af amfetamíni og 4,85 g af hassi.
Ákærða greiði allan sakarkostnað, 275.692 krónur, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns, 159.360 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Daði Kristjánsson fulltrúi lögreglustjóra.
D ó m s o r ð :
Ákærða, Kristín Þóra Jónasdóttir, sæti fangelsi í 7 mánuði, en frestað er fullnustu 5 mánaða af refsingu ákærðu og falli sá hluti refsingarinnar niður, að liðnum 3 árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærða sæti upptöku á 528,53 g af amfetamíni og 4,85 g af hassi.
Ákærða greiði sakarkostnað málsins, 275.692 krónur, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns, 159.360 krónur.
Ingveldur Einarsdóttir.