Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 14. mars 2007.
Mál nr. S-194/2007:
Ákæruvaldið
(Einar Laxness fulltrúi)
gegn
Loi Ngoc Nguyen
Útdráttur
Karlmaður dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir hnupl á leðurjakka.
Ár 2007, miðvikudaginn 14. mars, er dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur háð í Dóm húsinu við Lækjartorg af Jónasi Jóhannssyni héraðsdómara og dómur kveðinn upp í málinu nr. S-194/2007: Ákæruvaldið gegn Loi Ngoc Nguyen, sem dómtekið var samdægurs sem játningarmál samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opin berra mála.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu höfðaði málið með ákæru útgefinni 13. febrúar 2007 á hendur ákærða, Loi Ngoc Nguyen, kt. 000000-0000, Gnoðarvogi 24, Reykjavík, til refsingr fyrir þjófanð samkvæmt 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa, miðvikudaginn 24. maí 2006, stolið leðurjakka að andvirði 24.990 krónur úr verslun Companys í verslunarmiðstöðinni Kringlunni í Reykjavík.
Með játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er framangreind hátti seönnuð og þykir hún rétt færð til refsiákvæða í ákæru. Samkvæmt sakavotorði ákærða hefur hann tvívegis áður hlotið refsingu fyrir þjófnaði, annars vegar 2. apríl 2004 og hins vegar 28. maí sama ár, en báðum málum var lokið með sektargerð lögreglustjóra. Að þessu gættu og með hliðsjón af andlagi þess brots, sem ákærði er nú sakfelldur fyrir, þykir refsing hæfilega ákveðin fangelsi í einn mánuð, sem eftir atvikum þykir mega skilorðsbinda, eins og nánar greinir í dómsorði.
Einar E. Laxness fulltrúi lögreglustjóra sótti málið af hálfu ákæruvaldsins.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Loi Ngoc Nguyen, sæti fangelsi í einn mánuð, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum þremur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Jónas Jóhannsson