Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-193/2007:

Ákæruvaldið

(Einar Laxnes fulltrúi)

gegn

Pétri Inga Halldórssyni

Karlmaður dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir þjófnað.

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 13. febrúar 2007 á hendur Pétri Inga Halldórssyni, kt. 000000-0000, Hraunbergi 11, Reykjavík, fyrir þjófnað, með því að hafa laugardaginn 30. september 2006 í versluninni Útilíf, Kringlunni 6-12, Reykjavík, stolið Adidas bol að verðmæti kr. 2.990.

Þetta er talið varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæðis í ákæru.

Ákærði er fæddur í febrúar 1981. Hann á að baki nokkurn sakaferil allt frá árinu 1998. Hefur hann á því tímabili sex sinnum verið dæmdur fyrir þjófnað og í eitt skipti fyrir tilraun til þjófnaðar. Síðast hlaut hann dóm fyrir þjófnað 23. júlí 2004 en þá var hann dæmdur í 2 mánaða fangelsi fyrir þjófnað, húsbrot og fíkniefnabrot. Síðan þá hefur hann í þrígang verið fundinn sekur um vörslu fíkniefna, síðast með dómi Héraðsdóms Reykjaness 17. október 2005. Ákærði hefur lýst því fyrir dóminum að hann sé nú í fastri vinnu og hafi að mestu haldið sig frá neyslu fíkniefna um nokkurt skeið. Þegar til þessa er litið þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Pétur Ingi Halldórsson, sæti fangelsi í 30 daga.

Ásgeir Magnússon.