Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 26. mars 2007.
Mál nr. S-133/2007:
Ákæruvaldið
(Guðjón Magnússon fulltrúi)
gegn
Ingvari Júlíusi Helgasyni
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa sem stjórnarmaður einkahlutafélags dregið félaginu 268.210 krónur af meðlagsgreiðslum starfsmanns.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað samkvæmt ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 30. janúar 2007 sl. á hendur Ingvari Júlíusi Helgasyni, kt. 000000-0000, Álfaborgum 9, Reykjavík, fyrir fjárdrátt með því að hafa, sem stjórnarmaður Ingvars og Arnars ehf., kt. 000000-0000 á tímabilinu frá maí 2002 fram í febrúar 2003, dregið félaginu samtals 268.210 kr. af meðlagsgreiðslum starfsmanns félagsins, Kristins B. Ásmundssonar, kt. 000000- 0000, sem félagið tók mánaðarlega í 11 skipti af starfsmanninum að kröfu Innheimtustofnunar sveitarfélaga samkvæmt 1. tl. 5. gr. laga nr. 54/1971 um Innheimtustofnun sveitarfélaga. Skiptist fjárdrátturinn þannig niður á launatímabil:
Maí 27.000 kr.
Júní 30.150 kr.
Júlí 30.150 kr.
Ágúst 30.150 kr.
September 30.150 kr.
Október 30.152 kr.
Desember 30.152 kr.
Samtals árið 2002 207.906 kr.
Janúar 30.152 kr.
Febrúar 30.152 kr.
Samtals árið 2003 60.304 kr.
Heildarfjárhæð 268.210 kr.
Þetta er talið varða við 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist, að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Í málinu er þess krafist af hálfu Innheimtustofnunar sveitarfélaga, kt. 000000-0000, að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 487.927 kr. sem sundurliðast svo: Höfuðstóll 325.362 kr., áfallnir dráttarvextir til 25. nóvember 2004 111.869 kr., innheimtuþóknun 75.334 kr., fjárnámsbeiðni 6.315 kr., útlagður kostnaður vegna fjárnáms 3.500 kr., kröfulýsing 18.945 kr., vextir af kostnaði 3.163 kr., allt að frádregnum 57.152 kr.
Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði, sem fæddur er í september 1974, hefur ekki áður gerst sekur um refsivert brot. Þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingar og hún falla niður að 2 árum liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærði greiði Innheimtustofnun sveitarfélaga 429.775 krónur.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Ingvar Júlíus Helgason, sæti fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingar og hún falla niður að 2 árum liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði Innheimtustofnun sveitarfélaga 429.775 krónur.
Ásgeir Magnússon