Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 14. febrúar 2007.
Mál nr. S-1/2007:
Ákæruvaldið
(Daði Kristjánsson fulltrúi)
gegn
Hjörvari Kjartanssyni
(Brynjar Níelsson hrl)
Lykilorð
Útdráttur
Burðardýr sakfellt fyrir að flytja til landsins 220 MDMA töflur og 148,35 g af amfetamíni frá Kaupmannahöfn. Refsing 18 mánaða fangelsi, sem var í ljósi aðstæðna ákærða skilorðsbundið að hluta.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 9. janúar 2007 á hendur Hjörvari Kjartans syni, kt. [...] Fífuseli 9, Reykjavík, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa að kvöldi sunnudagsins 22. október 2006 flutt hingað til lands frá Kaupmannahöfn 220 töflur með vímuefninu MDMA og 148,35 g af amfetamíni, sem tollverðir fundu við leit í farangri ákærða við komu á Keflavíkurflugvelli.
Þetta er talið varða við 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. og 6. gr. sömu laga, að því er varðar meðferð ákærða á vímuefninu MDMA, sbr. lög nr. 13/1985, sbr. lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að framan greind fíkniefni, sem hald var lagt á, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í júlí 1987. Hann var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi 10. janúar 2005 fyrir þjófnað. Þá var hann dæmdur í 2ja mánaða skilorðs bundið fangelsi 2. september sama ár fyrir þjófnað, fjársvik og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Hann gekkst undir sektargreiðslu 2. nóvember 2006 fyrir fíkni efnalagabrot. Loks var hann dæmdur í 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi til þriggja ára 3. nóvember 2006 fyrir þjófnað, gripdeild og fjársvik. Brot ákærða í þessu máli eru framin fyrir uppsögu refsidómsins frá 3. nóvember 2006 og áður en hann gekkst undir sáttina 2. nóvember 2006. Er brotið því hegningarauki og ber við ákvörðun refsingar að hafa hliðsjón af 78. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 77. gr. Ákærði hefur í þessu máli verið sakfelldur fyrir alvarlegar sakargiftir, en hann varð uppvís að því að flytja nokkuð magn fíkniefna til landsins sem svokallað burðardýr. Ákærði var ungur að árum er hann framdi sín fyrstu brot. Þá verður litið til þess að brot sín í þessu máli hefur hann játað greiðlega. Verður hin skilorðsbundna refsing ákærða samkvæmt dóminum 3. nóvember 2006 felld inn í nýja heildarrefsingu sem ákærða verður gerð í þessu máli. Verður refsing ákærða ákveðin fangelsi í 18 mánuði. Fram kom fyrir dóminum að ákærði er nú komin í fasta vinnu og hefur samið um sínar skuldir. Voru lögð fram í réttinum gögn þar að lútandi. Í þessu ljósi þykir rétt að skilorðsbinda hluta refsingar ákærða, svo sem nánar er mælt fyrir um í dómsorði.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru upptæk gerð til ríkissjóðs 220 töflur með vímuefninu MDMA og 148,35 g af amfetamíni, sem lagt var hald á við rannsókn málsins.
Ákærði greiði sakarkostnað samkvæmt sakarkostnaðaryfirliti og málsvarnar þóknun skipaðs verjanda hans Brynjars Níelssonar hæstaréttarlögmanns, að með töldum virðisaukaskatti, með þeim hætti er í dómsorði greinir.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Hjörvar Kjartansson, sæti fangelsi í 18 mánuði. Fresta skal fullnustu 15 mánaða af refsivistinni og falli sá hluti niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Til frádráttar refsingu komi gæsluvarðhald ákærða frá 23. – 31. október 2006.
Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 220 töflur með vímuefninu MDMA og 148,35 g af amfetamíni, sem lagt var hald á við rannsókn málsins.
Ákærði greiði 417.047 krónur í sakarkostnað, þar með talin málsvarnarþóknun skipaðs verjanda hans Brynjars Níelssonar hæstaréttarlögmanns, 68.475 krónur.
Símon Sigvaldason.