Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 7. nóvember 2006.
Útdráttur
Ákærða dæmd í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals, fjársvik og þjófnað.
X
(Brynjar Níelsson hrl.) Mál þetta var höfðað með ákæru lögreglustjórans í Reykjavík, dagsettri 16. maí sl., á hendur X, kt. 000000-0000, [...], Reykjavík, „fyrir eftirgreind brot á almennum hegningarlögum framin í Reykjavík:
I.
Skjalafals, með því að hafa þriðjudaginn 15. ágúst 2005 framvísað í lyfjaversluninni [...], lyfseðli á eyðublaði nr. [...], sem ákærða vissi að hafði verið falsaður með útfyllingu um ávísun á 4 kössum af lyfinu [...] til A, kt. 000000-0000, og stimplun á nafni B, læknis nr. [...], sem útgefanda. M. [...].
Telst þetta varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
II.
Fjársvik, með því að hafa 8. og 9. september 2005 svikið út vörur og þjónustu samtals að andvirði 79.815 kr. með því að framvísa greiðslukorti annars manns og láta skuldfæra andvirðið heimildarlaust á greiðslukortareikning hans hjá Visa Ísland svo sem rakið er:
1) Þann 8. september á [...] vörur að andvirði 11.924 kr. 2) Sama dag hjá leigubifreiðastjóra á leigubifreiðastöðinni [...] andvirði leiguaksturs 1.260 kr. 3) Þann 9. september í [...], vörur að andvirði 18.936 kr. 4) Sama dag á [...] vörur að andvirði alls 47.695 kr. í þremur afgreiðslum að fjárhæð 16.836 kr., 23.894 kr. og 6.945 kr. M. [...]. Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga.
III.
Þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 16. febrúar 2006 stolið 2 bolum samtals að verðmæti 4.980 kr. í versluninni [...]. M. [...] Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga.
Þess er krafist, að ákærða verði dæmd til refsingar.“
Ákærða hefur játað brot sitt fyrir dóminum. Er játning hennar í samræmi við önnur gögn málsins og verður hún sakfelld fyrir brot sín, en þau eru í ákæru réttilega færð til refsiákvæða.
Samkvæmt sakavottorði ákærðu var þremur fíkniefnamálum á hendur henni lokið með sátt árið 2005. Þá var þjófnaðarmáli á hendur henni lokið með 30.000 króna sekt 9. september 2005. Með dómi 15. febrúar 2006 var henni gert að greiða 182.500 króna sekt fyrir brot gegn ávana- og fíkniefnalögum og brot gegn 2. mgr. 44. gr. umferðarlaga. Þá var ákærða svipt ökurétti í 6 mánuði frá 23. febrúar 2006. Síðast hlaut ákærða 1 mánaðar fangelsisdóm, 28. apríl 2006, skilorðsbundinn í 3 ár, fyrir þjófnaðarbrot.
Brot þau sem ákærða er nú sakfelld fyrir eru öll framin fyrir uppkvaðningu síðastgreinds dóms frá febrúar og skilorðsdómsins frá apríl 2006. Ber því með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga að taka upp þann dóm og ákveða refsingu ákærðu í einu lagi, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Ber við ákvörðun refsingar einnig að líta til 77. gr. almennra hegningarlaga, þar sem ákærða hefur gerst sek um fleiri en eitt brot.
Að þessu virtu verður refsing ákærðu ákveðin fangelsi í 2 mánuði, en rétt þykir í ljósi ungs aldurs ákærðu og þess að hún er að reyna að vinna bug á vímuefnaneyslu sinni, að fresta fullnustu refsingar ákærðu og falli hún niður að liðnum 3 árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Brynjars Níelssonar hæstaréttarlögmanns, 24.900 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, en annan sakarkostnað leiddi ekki af málinu.
Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærða, X, sæti fangelsi í 2 mánuði, en frestað er fullnustu refsingar ákærðu og falli hún niður að liðnum 3 árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Brynjars Níelssonar hæstaréttarlögmanns, 24.900 krónur.
Ingveldur Einarsdóttir.