Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 4. júlí 2006.
Mál nr. S-676/2006:
Ákæruvaldið
(Guðmundur H. Gunnarsson fulltrúi)
gegn
Rúnari Árnasyni
Lykilorð
Útdráttur
Karlmaður dæmdur til greiðslu 30.000 króna sektar fyrir eignaspjöll.
Mál þetta var höfðað með ákæru lögreglustjórans í Reykjavík, dagsettri 2. maí sl., á hendur, Rúnari Árnasyni, kt. 000000-0000, Blesugróf 9, Reykjavík „fyrir eignaspjöll, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 17. desember 2005 að Stórholti 17 í Reykjavík sparkað í hurð með þeim afleiðingum að hún skemmdist og hurðarkarmur brotnaði og jafnframt skellt aftur annarri hurð með þeim afleiðingum að póstar og tvær rúður í henni brotnuðu.
Þetta telst varða við 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar. Í málinu krefst Sveinbjörn Rúnar Magnússon kt. 000000-0000, þess að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 55.669.”
Ákærði hefur játað brot sitt fyrir dóminum og samþykkt framkomna bótakröfu. Er játning hans í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sitt, en það er í ákæru réttilega fært til refsiákvæða. Ákærði hefur samkvæmt sakavottorði gengist undir greiðslu 5 sekta vegna brota gegn umferðarlögum og ávana- og fíkniefnalögum. Á árinu 1998 hlaut ákærði dóm, 18.000 króna sekt, fyrir umferðarlagabrot og á árinu 1999 hlaut ákærði 7 mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn í 3 ár vegna brota gegn ávana- og fíkniefnalögum.
Að þessu virtu verður refsing ákærða 30.000 króna sekt í ríkissjóð, en hann sæti ella 4 daga fangelsi verði sektin eigi greidd innan fjögurra vikna frá deginum í dag að telja. Ákærði greiði Sveinbirni Rúnari Magnússyni 55.669 krónur.
Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Rúnar Árnason, greiði 30.000 króna sekt í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa, en sæti ella fangelsi í 4 daga.
Ákærði greiði Sveinbirni Rúnari Magnússyni 55.669 krónur.
Ingveldur Einarsdóttir.