Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-514/2006:

Ákæruvaldið

(Sigurður Tómas Magnússon settur ríkissaksóknari)

gegn

Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Tryggva Jónssyni

Jón Gerald Sullenberger

Með ákæru 31. mars sl. höfðaði settur ríkissaksóknari opinbert mál á hendur ákærðu, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Tryggva Jónssyni og Jóni Gerald Sullenberger.  Eru þeim gefin að sök brot gegn almennum hegningarlögum og lögum um bókhald, auk þess sem ákærðu, Jóni Ásgeiri og Tryggva, eru gefin að sök brot gegn lögum um hlutafélög.

Vanhæfi.

Hafnað kröfu um að dómari sé vanhæfur

Með ákæru 31. mars sl. höfðaði settur ríkissaksóknari opinbert mál á hendur ákærðu, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Tryggva Jónssyni og Jóni Gerald Sullenberger. Eru þeim gefin að sök brot gegn almennum hegningarlögum og lögum um bókhald, auk þess sem ákærðu, Jóni Ásgeiri og Tryggva, eru gefin að sök brot gegn lögum um hlutafélög.

Málið var þingfest fyrr í dag og krafðist ákærði, Jón Gerald, þess að dómari málsins viki sæti.  Aðrir ákærðu lýstu því yfir að þeir tækju ekki undir kröfuna.  Af hálfu ákæruvaldsins var því lýst yfir að það tæki ekki undir kröfu ákærða, Jóns Geralds, um að dómarinn viki sæti.  Settur ríkissaksóknari benti þó dómaranum á að afstaða hans til túlkunar á 104. gr. hlutafélagalaga í málinu nr. S-1026/2005 kynni að leiða til vanhæfis hans.

Kröfu sína um að dómarinn víki sæti byggir ákærði á því að hann telji dómarann vanhæfan til að fara með málið þar sem hann hafi verið einn dómara sem kvað upp dóm 15. mars 2006 í sakamálinu nr. S-1026/2005 en meðákærðu í málinu voru einnig ákærðir í því máli.

Ákærði telur að dómarinn hafi í framangreindu máli tekið afstöðu til trúverðugleika framburðar hans sem vitnis með þeim hætti að draga megi óhlutdrægni hans í máli þessu í efa.  Um kröfuna vísar ákærði til g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991, 6. gr. sömu laga og 6. gr. laga nr. 19/1991.

Í 5. gr. laga nr. 91/1991 segir í g-lið að dómari sé vanhæfur til að fara með mál ef fyrir hendi eru atvik eða aðstæður sem fallin eru til þess að draga óhlutdrægni hans með réttu í efa.  Dómari málsins var einn þriggja dómara sem dæmdi framangreint mál 15. mars sl.  Ákærði, Jón Gerald, var vitni í því máli og lagði dómurinn mat á sönnunargildi framburðar hans eins og dómurum ber að gera þá þeir dæma mál. Niðurstaða dómara í einu máli, hvort sem hún byggist á mati á sönnunargildi fram burðar eða túlkun laga, veldur ekki því að hann sé vanhæfur til að dæma annað mál þar sem reynir á mat á framburði sömu vitna og ákærðra manna eða túlkun á ákvæðum sömu laga.  Kröfu ákærða um að dómarinn víki sæti er því hafnað.  Af sömu ástæðum eru engin efni til að dómarinn víki sæti af sjálfsdáðum vegna ábend inga setts ríkissaksóknara.

Úrskurðarorð.

Arngrímur Ísberg héraðsdómari víkur ekki sæti í málinu.

Arngrímur Ísberg