Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 24. október 2006.
Mál nr. S-414/2006:
Ákæruvaldið
(Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari)
gegn
Haraldi Sigurðssyni
Lykilorð
Brot gegn valdstjórninni. Fangelsi. Reynslulausn.
Útdráttur
Ákærði dæmdur í 11 mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni með því að skalla lögreglumann og hóta lögreglumönnum ofbeldi og lífláti. Ákærði rauf skilorð reynslulausnar.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum í Reykjavík 15. mars 2006 á hendur Haraldi Sigurðssyni, Jórufelli 6, Reykjavík fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa, laugardaginn 27. ágúst 2005, í móttöku fangageymslu lögreglunnar í Reykjavík, að Hverfisgötu 113:
- Skallað Hilmi Þór Kolbeins lögregluvarðstjóra í fangamóttöku, sem þar var að sinna skyldustörfum, í hægra gagnauga, með þeim afleiðingum að hann hlaut yfirborðsáverka á andliti og snert af heilahristingi.
- Hótað lögreglumönnunum Hilmi Þór Kolbeins, Sverri Guðmundssyni og Sigfúsi Benóný Harðarsyni og fjölskyldum þeirra, ofbeldi og lífláti.
Þetta er talið varða við 1. mgr., 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr., lög nr. 101/1976 og lög nr. 82/1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur 1980. Samkvæmt fyrirliggjandi sakavottorði var hann fyrst dæmdur 23. janúar 1997 í 60 daga varðhald, skilorðsbundið í 2 ár, auk sektar og sviptingar ökuréttar, fyrir nytjastuld og ölvun- og réttindaleysi við akstur. Hann hlaut tvo aðra skilorðsbundna dóma árið 1997, þann fyrri 4. júlí, fangelsi í 6 mánuði fyrir eignaspjöll, skjalafals, þjófnað, þjófnaðartilraun og brot gegn 217. gr. almennra hegningarlaga, og þann síðari 21. október, fangelsi í 7 mánuði fyrir þjófnað og brot gegn 217. gr. almennra hegningarlaga. Hinn 29. desember 1998 var hann dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir þjófnað og tiltekin brot gegn lögreglusamþykkt nr. 625/1987 og var refsing dómsins frá 21. október 1997 dæmd með. Næst var ákærði dæmdur 7. júní 1999 í fangelsi í 2 mánuði fyrir þjófnað og þjófnaðartilraun. Hinn 9. júní 2000 var hann svo dæmdur fyrir fíkniefnalagabrot og ekki gerð sérstök refsing. Þá var ákærði dæmdur í Hæstarétti hinn 2. október 2003 í 20 mánaða fangelsi fyrir fjársvik og brot gegn 217. og 218. gr. almennra hegningarlaga og var þá dæmd með óafplánuð refsing vegna reynslulausnar sem hann hafði fengið. Loks var ákærði dæmdur til greiðslu 28.000 króna sektar vegna fíkniefnabrots með dómi hinn 14. febrúar 2005. Ákærði hlaut reynslulausn 24. desember 2004, skilorðsbundið í 2 ár, á samtals 200 daga eftirstöðvum refsingar. Fram er komið að hann hefur ekki afplánað þær eftirstöðvar. Með broti sínu nú rauf ákærði skilorð reynslulausnarinnar og þykir ekki verða hjá því komist að dæma upp hinar óafplánuðu eftirstöðvar og ákvarða honum refsingu í einu lagi vegna þeirra og brots hans nú skv. 60. gr. og 42. gr. almennra hegningarlaga.
Að því virtu sem hér hefur verið rakið og að teknu tilliti til þess að ákærði hefur játað brot sitt greiðlega verður hann dæmdur til að sæta fangelsi í 11 mánuði. Frá því dregst gæsluvarðhald sem ákærða var gert að sæta frá 12.-18 október 2006, eða í 6 daga.
Ákærði greiði útlagðan sakarkostnað vegna læknisvottorðs 23.200 krónur en annan kostnað leiddi ekki af málinu.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Haraldur Sigurðsson, sæti fangelsi í 11 mánuði. Til frádráttar komi gæsluvarðhaldsvist hans frá 12.-18. október 2006.
Ákærði greiði 23.200 krónur vegna útlagðs sakarkostnaðar.
Ásgeir Magnússon