Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 7. nóvember 2006.
Mál nr. S-1720/2006:
Á
kæruvaldið
(Einar Laxness fulltrúi)
gegn
Lan Thi Luu
Útdráttur
Kona dæmd til 30 daga fangelsisvistar, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir þjófnað. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að hún hafði áður gerst sek um auðgunarbrot.
Mál þetta var höfðað með ákæru lögreglustjórans í Reykjavík, dagsettri 10. október sl., á hendur Lan Thi Luu, kt. 000000-0000, Háaleitisbraut 151, Reykjavík, „fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 15. júní í versluninni Aldo, Kringlunni 8- 12, Reykjavík, stolið tösku að verðmæti kr. 3.490.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar.“
Ákærða hefur játað brot sitt fyrir dóminum. Er játning hennar í samræmi við gögn málsins og verður hún sakfelld fyrir brot sitt, en það er í ákæru réttilega heimfært til refsiákvæða.
Samkvæmt sakavottorði ákærðu gekkst hún undir greiðslu sektar 28. mars 2006 fyrir þjófnaðarbrot. Við ákvörðun refsingar verður litið til þess að hún hefur áður gerst sek um auðgunarbrot, en einnig horft til þess að hún játaði brot sitt og verðmæti þau sem ákærða tók komust til skila. Að þessu virtu verður refsing ákærðu ákveðin fangelsi í 30 daga, en rétt þykir að fresta fullnustu refsingar ákærðu og falli hún niður að liðnum 3 árum frá birtingu dómsins að telja, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ekki verður séð að nokkurn kostnað hafi leitt af málinu.
Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærða, Lan Thi Luu sæti fangelsi í 30 daga. Frestað er fullnustu refsingar ákærðu og falli hún niður að liðnum 3 árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ingveldur Einarsdóttir.
---------------------------- ------------------------ ---------------------------- Rétt endurrit staðfestir, Héraðsdómi Reykjavíkur, 7. nóvember 2006.