Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 2. mars 2007.
Mál nr. S-1468/2006:
Ákæruvaldið
(Jóhann Svanur Hauksson fulltrúi)
gegn
Gunnar Svavarssyni
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að aka gegn rauðu umferðarljósi.
Mál þetta, sem tekið var til dóms 14. febrúar sl., er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum í Reykjavík 28. ágúst sl. á hendur Gunnari Svavarssyni, kt. [...], Engihjalla 21, Kópavogi, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 6. apríl 2006 ekið bifreiðinni GY-496 með 80 km hraða á klst. vestur Hringbraut í Reykjavík, á vegarkafla við Njarðargötu, þar sem leyfður hámarkshraði var 60 km á klst.
Er háttsemi ákærða talin varða við 1., sbr. 3. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Ákærði neitar sök og krefst sýknu.
Ákærði krafðist þess á fyrri stigum málsins að Egill Stephensen saksóknari og Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn yrðu leiddir fyrir dóminn sem vitni í málinu. Þá krafðist ákærði þess að dómurinn myndi hlutast til um að aflað yrði upplýsinga frá lögreglustjóra um afdrif og gögn í máli nr. A-3082/82. Var kröfum ákærða hafnað með úrskurði 8. desember 2006, sem var staðfestur með dómi Hæstaréttar 12. desember 2006.
Samkvæmt skýrslu lögreglustjórans í Reykjavík frá 11. apríl 2006 var hraði bifreiðar með skráningarnúmerið GY-496 mældur á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu með hraðamyndavél með einkennisnúmerið TPH III-SR (2). Hraði bif reiðarinnar hafi mælst 83 km á klst. Með skýrslunni eru myndir úr hraðamynda vélinni sem sýna bifreiðina GY-496 aka um nefnd gatnamót. Með sektarboði 4. maí 2006 var eiganda bifreiðarinnar gefinn kostur á að ljúka málinu með greiðslu sektar að fjárhæð 10.000 krónur og yrði veittur 25% afsláttur yrði sektin greidd innan 30 daga frá dagsetningu bréfsins. Ákærði sendi lögreglustjóra tölvupóst þar sem hann tilkynnti að hann hafi ekið bifreiðinni um umrædd gatnamót 11. apríl 2006 en þegar blossi hafi komið af ljósastaur er hann hafi ekið um gatnamótin hafi hraði bifreiðar ákærða verið 57 km á klst. Kvaðst ákærði mótmæla hraðamælingunni.
Með bréfi 4. maí 2006 var ákærða tilkynnt að ekki þættu skilyrði fyrir niður fellingu málsins. Ákærða var send ítrekun sektarborðs með bréfi lögreglustjóra 12. júní 2006 og ákæra var gefin út 28. ágúst 2006. Við þingfestingu málsins neitaði ákærði sök og fór aðalmeðferð málsins fram 29. nóvember 2006.
Við aðalmeðferð málsins gáfu skýrslu fyrir dómi Viðar Waage, fyrrverandi lögreglumaður, og Ragnar Þór Árnason lögreglumaður. Viðar kvaðst hafa séð um myndavélar sem notaðar voru við akstursmælingar á árinu 2006. Þá hefði Ragnar Þór verið að læra á myndavélarnar. Viðar kvaðst hafa farið á námskeið um meðferð akstursmælingamyndavéla og kvaðst Ragnar Þór hafa verið fullnuma 11. maí 2006.
Viðar og Ragnar lýstu því hvor í sínu lagi hvernig myndavélar er mældu hraða væru prófaðar þegar þær væru settar upp og þegar þær væru teknar niður. Væri vélin með innbyggðan búnað sem prófaði hvort hún virkaði. Þá væru teknar prufumyndir. Ef ekki væri í lagi með myndavélina við uppsetningu væri hún ekki notuð. Ragnar lýsti því að ef eitthvað væri athugavert við myndavélina þegar hún væri tekin niður væru myndir úr henni ekki framkallaðar.
Ef að myndir kæmu úr framköllun færu lögreglumenn í sektardeild yfir þær til að sannreyna brot gegn umferðarlögum. Ef brot hefðu verið framin væri rituð kæruskýrsla. Skýrslan færi til staðfestingar hjá lögfræðingi deildarinnar og væri hinum kærða næst sent sektarboð. Viðar kvað lögreglumennina sjá um að senda sáttina. Í sektardeildinni hefðu á þeim tíma sem um ræðir unnið tveir ritarar sem hefðu séð um að skrá málin. Einungis starfsmenn sektardeildar kæmu að hverju og einu máli. Færu þau því aldrei út úr sektardeildinni og yfirstjórnin kæmi hvergi nærri.
Ragnar Þór fór yfir færslu í dagbók lögreglu um viðkomandi myndavél, en þar kemur fram að myndavélin hafi umrætt sinn verið uppi í tæpan sólarhring og að mælst hafi 144 brot á þeim tíma. Kvaðst hann ekki vita til þess að neinn annar hefði gert athugasemd við mælinguna á þessum tíma.
Ákærði heldur uppi vörnum í málinu á þeim grundvelli að tilefni ákæru í málinu sé að rekja til eldra máls er ákærði hafi rekið gegn embætti lögreglustjóra og varðar afdrif máls þar sem ákærði varð fyrir líkamsárás. Er það mál lögreglu nr. A-3082/82. Með úrskurði dómsins frá 8. desember 2006 var kveðið á um að gögn í þessu máli hefðu enga þýðingu fyrir úrlausn þess máls sem hér er til meðferðar. Verður vörnum ákærða á þeim grundvelli því hafnað.
Lagt hefur verið fram afrit úr dagbók lögreglu þar sem fram kemur m.a. um hraðamælingu bifreiðar, sem ákærði hefur viðurkennt að hafa ekið. Gögn þessi hafa Viðar Waage og Ragnar Árnason staðfest fyrir dóminum. Er ekkert annað fram komið en að mæling á hraða bifreiðar ákærða hafi verið eðlileg og framkvæmd á réttan hátt. Dómurinn telur þannig, með vísan til rannsóknargagna málsins, sannað að ákærði hafi framið þá háttsemi sem ákært er út af og eru brot ákærða rétt heimfærð til refsiákvæða í ákærunni.
Ákærði er fæddur í september 1953. Hefur hann ekki áður sætt refsingu, svo kunnugt sé. Með hliðsjón af sakarefni málsins er refsing ákærða ákveðin 10.000 krónur í sekt til ríkissjóðs sem honum ber að greiða innan fjögurra vikna frá upp kvaðningu dóms þessa að telja en sæta ella fangelsi í tvo daga.
Engan sakarkostnað leiddi af málinu.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Jóhann Hauksson fulltrúi lögreglustjóra.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Gunnar Svavarsson, greiði 10.000 krónur í sekt í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa, en sæti ella fangelsi í tvo daga.
Símon Sigvaldason.