Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 13. september 2006.
Mál nr. S-1118/2006:
Ákæruvaldið
(Daði Kristjánsson fulltrúi)
gegn
Amy Ósk Ómarsdóttur
Lykilorð
Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing.
Útdráttur
Kona dæmd til greiðslu 34.000 króna sektar fyrir vörslur á 2,60 g af hassi.
Mál þetta var höfðað með ákæru Lögreglustjórans í Reykjavík, 4. júlí sl., á hendur Amy Ósk Ómarsdóttur, kt. 000000-0000, Bankastræti 8, Skagaströnd, Höfðahreppi. Málið var dómtekið fyrr í dag.
Sakarefni er lýst svo: ,,fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa mánudaginn 24. apríl 2006 flutt hingað til lands frá Kaupmannahöfn 2,60 g af hassi, sem tollverðir fundu við leit á ákærðu við komu hennar til Keflavíkur.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985, sbr. lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og jafnframt að framangreint fíkniefni, sem hald var lagt á, verði gert upptækt samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“
Ákærðu var birt fyrirkall sem hafði að geyma viðvörun samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um áhrif útivistar. Þrátt fyrir þetta sótti ákærða ekki þing.
Ákærða játaði brot sitt við yfirheyrslu hjá lögreglu.
Með gögnum og útivist ákærðu eins og áður segir hefur verið færð fram næg sönnun um sekt hennar. Verður hún sakfelld í samræmi við ákæru.
Ákærða hefur ekki áður gerst sek um refsiverða háttsemi svo vitað sé.
Verður refsing hennar ákveðin 34.000 króna sekt, en vararefsing skal vera fangelsi í 4 daga.
Ákærða sæti upptöku á 2,60 g af hassi.
Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð
Ákærða, Amy Ósk Ómarsdóttir, greiði 34.000 króna sekt í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa, en sæti ella fangelsi í 4 daga.
Ákærða sæti upptöku á 2,60 gr af hassi.
Ingveldur Einarsdóttir.