Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 23. febrúar 2006.
Mál nr. E-1298/2006:
M.Sig ehf
gegn
Powerboss Ísland ehf Lárus Þór Guðmundssyni
Lykilorð
Útdráttur
Samþykkjandi víxils dæmdur til greiðslu, en framseljendur sýknaðir þar sem krafa á hendur þeim var fyrnd.
Mál þetta höfðaði M. Sig ehf., Smiðshöfða 13, Reykjavík, með stefnu birtri 23. febrúar 2006 á hendur Powerboss Ísland ehf., Bæjargili 98, Garðabæ, Lárusi Þór Guðmundssyni, Bæjargili 98, Garðabæ og Ragnari Guðmundssyni, Ásgarði 77, Reykjavík. Málið var dómtekið 11. september sl. Stefnandi krefst greiðslu á 747.273 krónum með dráttarvöxtum skv. III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001 frá 23. september 2005 til greiðsludags. Hann krefst vaxtareiknings samkvæmt 12. gr. sömu laga. Loks krefst stefnandi málskostnaðar.
Stefndi, Lárus Þór Guðmundsson, krefst sýknu af öllum kröfum stefnanda. Þá krefst hann málskostnaðar að mati dómsins að viðbættum virðisaukaskatti.
Stefndu, Powerboss Ísland ehf. og Ragnar Guðmundsson, hafa ekki sótt þing.
Í stefnu segir að um sé að ræða innlausnarkröfu vegna víxils. Víxillinn hafi verið að fjárhæð 750.000 krónur, útgefinn 29. apríl 2004 af stefnda, Lárusi, samþykktur til greiðslu af stefnda, Powerboss Ísland, og ábektur af stefnda, Ragnari. Þá hafi hann verið framseldur af stefnanda. Stefnandi kveðst hafa innleyst víxilinn með greiðslu á samtals 925.455 krónum. Stefndi, Powerboss Ísland, hafi endurgreitt 178.182 krónur af þeirri fjárhæð og nemi eftirstöðvar kröfunnar því stefnufjárhæðinni. Í stefnu segir ekki neitt um gjalddaga víxilsins, en á hann er skráður gjalddaginn 29. maí 2004.
Stefnandi krefst vaxta frá innlausnardegi, 23. september 2005. Hann vísar til víxillaga nr. 93/1933. Þá kveðst hann reka málið samkvæmt XVII. kafla laga nr. 91/1991.
Stefndi, Lárus, byggir vörn sína á því að krafa á hendur öðrum en samþykkjanda víxilsins hafi verið fyrnd þegar stefnandi leysti til sín víxilinn. Samkvæmt 2. mgr. 70. gr víxillaga fyrnist krafa á hendur framseljanda og útgefanda á einu ári frá afsögn eða gjalddaga víxils. Þá kveðst stefndi byggja á því að framsalshafi geti ekki öðlast meiri rétt á hendur sér en framseljandinn hafi átt. Kröfur á hendur sér séu fyrndar. Þá bendir stefndi á að kröfur á hendur meðstefnda Ragnari séu einnig fyrndar.
Forsendur og niðurstaða.
Við upphaf aðalmeðferðar lagði stefnandi fram afrit stefnu þar sem honum einum var stefnt af handhafa víxilsins til greiðslu hans. Stefnan hafði verið birt 29. mars 2005 og lauk málinu með réttarsátt 31. mars 2005. Fyrningu var ekki slitið gagnvart stefndu í þessu máli með birtingu þessarar stefnu og stefnandi birti þeim ekki tilkynningu samkvæmt 2. málslið 1. mgr. 71. gr. víxillaga nr. 93/1933.
Umræddur víxill er með gjalddaga 29. maí 2004. Hinn 23. september 2005 var krafa samkvæmt honum fyrnd á hendur stefndu, Lárusi Þór og Ragnari Guðmundssonum, sbr. 2. mgr. 70. gr. víxillaga. Innlausn stefnanda á víxlinum breytir þessu ekki og 3. mgr. 70. gr. laganna kemur ekki til skoðunar þar sem víxilkrafan var fyrnd á hendur þessum aðilum. Verður því að sýkna stefndu, Lárus og Ragnar, af kröfum stefnanda.
Stefndi, Powerboss Ísland, hefur ekki haldið uppi vörnum. Krafa á hendur honum er í samræmi við framlagðan víxil og málsútlistun stefnanda. Verður hann dæmdur til greiðslu stefnukröfuna svo sem nánar greinir í dómsorði.
Stefndi, Powerboss Ísland, verður dæmdur til að greiða stefnanda 160.000 krónur í málskostnað. Að öðru leyti fellur málskostnaður niður.
Jón Finnbjörnsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð
Stefndi, Powerboss Ísland ehf., greiði stefnanda, M. Sig. ehf., 747.273 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga nr. 38/2001 frá 23. september 2005 til greiðsludags.
Stefndu, Lárus Þór Guðmundsson og Ragnar Guðmundsson, eru sýknaðir af kröfum stefnanda.
Stefndi, Powerboss Ísland ehf., greiði stefnanda 160.000 krónur í málskostnað. Að öðru leyti fellur málskostnaður niður.