Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-2737/2023:

Ákæruvaldið

(Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Isabel Cristina Uzuriaga Caicedo

(Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður)

Fangelsi. Fíkniefnalagabrot. Játningarmál. Sakarskipting.

Ákærða var dæmd í 18 mánaða fangelsi fyrir að flytja inn 896,73 g af kókaíni

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, höfðaði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru útgefinni 17. október 2023, á hendur Isabel Cristina Uzuriaga Caicedo, f.d. […], ríkisborgara […]; „fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa laugardaginn 26. ágúst 2023, staðið að innflutningi á samtals 896,73 g af kókaíni, með styrkleika 51-78%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti ákærða til Íslands sem farþegi með flugi nr. […], frá […] á […] til Keflavíkurflugvallar, falin í innvortis.

Telst brot þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Krafist er upptöku á samtals 896,73 g af kókaíni með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.“

Ákærða mætti við þingfestingu málsins 1. nóvember 2023, játaði brot sitt án undandráttar og samþykkti upptökukröfu. Var því farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Ákærða krefst þess í málinu að henni verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa. Þá krefst verjandi hæfilegrar þóknunar sér til handa úr ríkissjóði.

Með skýlausri játningu ákærðu, sem fær stoð í framlögðum gögnum, þykir sannað að ákærða hafi gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Ákærða er fædd í […]. Sakavottorð ákærðu sem er […] ríkisborgari liggur ekki frammi í málinu. Engra gagna nýtur um að ákærða hafi áður gerst sek um refsiverða háttsemi.

Af rannsóknargögnum málsins verður ekki séð að ákærða hafi verið eigandi fíkniefnanna eða skipuleggjandi innflutningsins en hefur hún samþykkt að flytja efnin til landsins gegn greiðslu. Verður litið til þessara atriða við ákvörðun refsingar sem og samvinnu ákærðu og skýlausrar játningar ákærðu á rannsóknarstigi og fyrir dómi. Á hinn bóginn verður ekki fram hjá því litið að ákærða flutti talsvert magn af kókaíni til landsins ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Aðkoma hennar er ómissandi liður í því ferli að koma efnunum í dreifingu hér á landi. Við ákvörðun refsingar er höfð hliðsjón af dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 209/2017 sem kveðinn var upp 11. maí 2017. Frá uppkvaðningu hans hefur sú eina breyting orðið í þessum málaflokki að tíðni og alvarleiki brota af þessu tagi hefur aukist. Að öllu framangreindu virtu þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í 18 mánuði. Til frádráttar þeirri refsingu komi gæsluvarðhald sem ákærða hefur sætt frá 26. ágúst 2023 að fullri dagatölu, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga.

Þá sæti ákærða upptöku fíkniefna sem haldlögð voru af lögreglu við rannsókn málsins líkt og nánar greinir í dómsorði.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærðu til að greiða allan sakarkostnað, alls 1.335.719 krónur. Um er að ræða kostnað vegna magngreiningar og matsgerðar rannsóknarstofu Háskóla Íslands og þóknun skipaðs verjanda ákærðu á rannsóknarstigi og fyrir dómi, Kristjáns Gunnars Valdimarssonar lögmanns sem þykir hæfilega ákveðin með hliðsjón af eðli og umfangi málsins 650.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Af hálfu ákæruvaldsins fór Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari með málið.

Hrefna Björk Rafnsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ:

Ákærða, Isabel Cristina Uzuriaga Caicedo, sæti fangelsi í 18 mánuði. Til frádráttar þeirri refsingu komi gæsluvarðhald ákærðu frá 26. ágúst 2023 að fullri dagatölu.

Ákærða sæti upptöku á 896,73 g af kókaíni.

Ákærða greiði 1.335.719 krónur í sakarkostnað, þar með talda 650.000 króna þóknun skipaðs verjanda síns, Kristjáns Gunnars Valdimarssonar lögmanns.

Hrefna Björk Rafnsdóttir

Heimildaskrá

Dómaskrá