Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-22/2022:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Aroni Gunnarssyni

(Skarphéðinn Pétursson lögmaður)

Umferðarlagabrot.

Játningarmál. Ákærði sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum vímuefna og fyrir að aka sviptur ökurétti.

Dómur

Mál þetta sem dómtekið var 18. febrúar sl. höfðaði Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 4. janúar 2022 á hendur ákærða Aroni Gunnarssyni, kt. 270993-2659, Tröllakór 13-15, Kópavogi: „[...].

II.

Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 10. janúar 2021, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökuréttindum ævilangt og undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna (vínandamagn í blóði mældist 1,14‰ og amfetamín í blóði mældist 670 ng/ml) suður Reykjanesbraut, Hafnarfirði. Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 49. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

III.

Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa miðvikudaginn 24. mars 2021, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökuréttindum ævilangt norður Reykjanesbraut, til móts við Ásland, Hafnarfirði. Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar, skv. 101. gr. laga nr. 77/2019 og [...]“ Kröfur ákærða í málinu eru þær að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa. Þá krefst verjandi ákærða hæfilegrar þóknunar sér til handa vegna verjandastarfans. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ákærði hefur játað sakargiftir og var málið tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga. Sannað er með skýlausri játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Samkvæmt framlögðu sakavottorði á ákærði að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 2012. Í framlögðu sakavottorði greinir ranglega að dómur Héraðsdóms Reykjaness frá 16. apríl 2019 hafi varðað akstur án ökuréttinda. Hið rétta er að ákærði ók sviptur ökurétti í umrætt sinn. Við ákvörðun refsingar er miðað við að ákærði hafi ekið í sjötta skipti undir áhrifum áfengis eða vímuefna og í sjöunda skipti sviptur ökurétti. Að þessu virtu og með vísan til 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 345 daga. Með vísan til framangreinds þykir, í samræmi við kröfugerð ákæruvalds og með vísan til 99. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, rétt að árétta ævilanga sviptingu ökuréttar frá birtingu dóms þessa að telja. Samkvæmt úrslitum málsins, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður ákærða gert að greiða allan sakarkostnað. Ákærði dæmist því til að greiða útlagðan kostnað vegna rannsókna á lífsýnum, samtals 87.210 krónur. Ákærði greiði einnig þóknun skipaðs verjanda síns í málinu, Skarphéðins Péturssonar lögmanns, sem hæfilega þykir ákveðin með þeim hætti sem í dómsorði greinir. Ólafur Egill Jónsson aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði Árni Gunnarsson sæti fangelsi í 345 daga. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms að telja. Ákærði þóknun skipaðs verjanda síns, Skarphéðins Péturssonar lögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin 167.400 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum. Ákærði greiði 87.210 krónur í annan sakarkostnað.

Ólafur Egill Jónsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 77. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.1. mgr. 235. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 2. mgr. 49. gr.2. mgr. 50. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.