Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 14. september 2022.
Mál nr. S-1435/2022:
Ákæruvaldið
(Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ahmed Hassan Ahmed
(Elías Kristjánsson lögmaður)
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir misnotkun skjals.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 23. ágúst 2022, höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 5. ágúst 2022 á hendur ákærða, Ahmed Hassan Ahmed, f.d. [...], sómölskum ríkisborgara; „fyrir misnotkun skjals, með því að hafa, sunnudaginn 19. júní 2022, við vegabréfabás nr. 4 í Flugstöð Leifs Eiríkssonar framvísað sem sínu, í blekkingarskyni, við landamæravörð og lögreglumenn sænsku kennivottorð, á nafni X, fd. [...], númer [...], með gildistímanum 16.04.2018 til 16.04.2023.
Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákærði krefst þess í málinu aðallega að honum verði ekki gerð refsing í málinu en til vara að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa. Þá gerir skipaður verjandi kröfu um málsvarnarlaun sér til handa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði mætti við þingfestingu málsins 23. ágúst sl. og játaði brot sitt án undandráttar. Játning hans fær stoð í framlögðum gögnum. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða.
Ákærði er fæddur í júní [...]. Sakavottorð ákærða, sem er sómalskur ríkisborgari, liggur ekki frammi í málinu. Engra gagna nýtur um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Verður við ákvörðun refsingar tekið mið af þeirri staðreynd. Svo sem málið liggur fyrir þykja ekki vera efni til þess að víkja frá fastmótaðri dómvenju í málum sem þessu. Refsing ákærða þykir samkvæmt því réttilega ákveðin fangelsi í 30 daga.
Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað málsins sem er þóknun skipaðs verjanda hans fyrir dómi og á rannsóknarstigi, Elíasar Kristjánssonar lögmanns, 251.100 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og 9.840 krónur í aksturskostnað lögmannsins.
Dóm þennan kveður upp Erna Björt Árnadóttir aðstoðarmaður dómara.
Dómsorð:
Ákærði Ahmed Hassan Ahmed, sæti fangelsi í 30 daga.
Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns Elíasar Kristjánssonar lögmanns 251.100 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og 9.840 krónur í aksturskostnað lögmannsins.
Erna Björt Árnadóttir