Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-82/2019:

Ákæruvaldið

(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Sylvíu Lind Ingólfsdóttur Briem

Umferðarlagabrot.

Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot og brot gegn 148. gr. almennra hegningarlaga og dæmd í 75 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.

höfuðborgarsvæðinu   með   ákæru   12.   febrúar   2019,   á   hendur   Sylvíu   Lind Ingólfsdóttur   Briem,   kt.   000000-0000,   [...];   ,,fyrir   eftirtalin   umferðar-   og hegningarlagabrot á árinu 2018 í Reykjavík, nema annað sé tekið fram:

I

Umferðarlagabrot með því að hafa:

  1. Aðfaranótt fimmtudagsins 10. ágúst 2017 í Mosfellsbæ ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti um Vesturlandsveg við Laxatungu uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
  2. Að kvöldi þriðjudagsins 10. apríl ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti um Vallargrund við Esjugrund uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
  3. Aðfaranótt sunnudagsins 22. apríl ekið sömu bifreið svipt ökurétti vestur Skeifuna við Hagkaup uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
  4. Að kvöldi mánudagsins 23. apríl ekið sömu bifreið svipt ökurétti um Vesturlandsveg við Suðurlandsveg uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
  5. Að kvöldi föstudagsins 27. apríl ekið sömu bifreið svipt ökurétti um Vesturlandsveg við Móa á Kjalarnesi uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
  6. Aðfaranótt mánudagsins 18. júní í Garðabæ ekið sömu bifreið svipt ökurétti um Hafnarfjarðarveg við Aktu Taktu uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
  7. Síðdegis sunnudaginn 12. ágúst ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti norður Vesturlandsveg við Sjávarhóla þar sem hún ók aftan á bifreiðina [...], sem hafði hægt á sér vegna umferðar, og aksturinn stöðvaðist síðan utan vegar.

II

Rangar sakargiftir með því að hafa, er lögregla hafði afskipti af henni sbr. liði 1 og 7 í kafla I, gefið lögreglu upp nafnið [...] og kennitölu hennar 000000- 0000 og í fyrra skiptið ritað það nafn undir vettvangsskýrslu lögreglu og með því leitast við að rangur aðili yrði sakaður um umferðarlagabrotið.

Teljast brot í öllum liðum kafla I varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, en brot í kafla II við 1. mgr. 148. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Ákærða sótti ekki þing við þingfestingu málsins 4. apríl 2019 og boðaði ekki forföll en í fyrirkalli sem var ásamt ákæru birt ákærðu 19. mars 2019 var tekið fram að yrði ekki sótt þing af hennar hálfu mætti hún búast við því að fjarvist hennar yrði metin til jafns við það að hún viðurkenndi að hafa framið þau brot sem hún væri ákærð fyrir og að dómur yrði lagður á málið að henni fjarstaddri, sbr. 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti telur dómurinn þannig sannað að ákærða hafi framið þau brot sem ákært er út af og eru brot hennar réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákærunni.

Ákærða er [...] og hefur þrisvar sinnum áður sætt refsingu samkvæmt framlögðu sakavottorði. Ákvörðun refsingar ákærðu vegna brota við 217. og 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var frestað skilorðsbundið í tvö ár með dómi 22. mars 2013. Ákærða gekkst undir sektargerð lögreglustjóra 23. október 2014 þess efnis að ákærða samþykkti greiðslu 150.000 króna sektar og að sæta ökuréttarsviptingu í 12 mánuði fyrir akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með dómi 7. september 2016 var ákærða dæmd til greiðslu 360.000 króna sektar og var gert að sæta sviptingu ökuréttar í tvö ár fyrir akstur undir áhrifum ávana og fíkniefna, akstur svipt ökurétti og þjófnað.

Samkvæmt framangreindu um sakaferli ákærðu og að brotum hennar virtum, sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing hennar hæfilega ákveðin 75 daga fangelsi en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Engan sakarkostnað leiddi af rekstri málsins eða meðferð þess fyrir dómi.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ:

Ákærða, Sylvía Lind Ingólfsdóttir Briem, sæti fangelsi í 75 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir

Heimildaskrá