Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 5. mars 2019.
Mál nr. S-50/2019:
Ákæruvaldið
(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ingimar
Páli Róbertssyni
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir umferðarlagabrot.
Mál þetta, sem þingfest var 4. mars 2019 og dómtekið sama dag, höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 28. janúar 2019 á hendur Ingimar Páli Róbertssyni, kt. 000000-0000, Nýbýlavegi 30 Kópavogi, „fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 17. febrúar 2018 ekið bifreiðinni [...] suður Sandgerðisveg, Sandgerði, sviptur ökuréttindum. Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og boðaði ekki forföll, en í fyrirkalli sem var ásamt ákæru löglega birt honum 27. febrúar 2019, var tekið fram að yrði ekki sótt þing af hans hálfu mætti hann búast við því að fjarvist hans yrði metin til jafns við það að hann viðurkenndi að hafa framið það brot sem hann væri ákærður fyrir og að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti telur dómurinn þannig sannað að ákærði hafi framið það brot sem hann er sakaður um í ákæru og er háttsemin þar rétt heimfærð til refsiákvæða. Ákærði er fæddur í [...] og hefur samkvæmt sakavottorði alls fjórum sinn frá árinu 2009 verið gerð refsing fyrir að aka sviptur ökurétti, síðast með dómi Héraðsdóms Reykjaness 22. júní 2017, en þá var hann dæmdur í tveggja mánaða fangelsi. Í ljósi sakaferils ákærða, sbr. 5. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, svo og með hliðsjón af dómaframkvæmd, þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði. Ekki eru efni til að skilorðsbinda þá refsingu. Engan sakarkostnað hefur leitt af meðferð málsins. Ingimundur Einarsson héraðsdómari kvað upp dóminn.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Ingimar Páll Róbertsson, sæti fangelsi í þrjá mánuði.
Ingimundur Einarsson