Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 5. desember 2019.
Mál nr. S-1698/2019:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sigurbirni Einarssyni
(Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður)
Lykilorð
Játningarmál. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.
Dómur
Mál þetta, sem var dómtekið 26. nóvember sl., höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 8. október sl. á hendur ákærða Sigurbirni Einarssyni, kt. [...], [...], Reykjavík: „fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, sunnudaginn 13. janúar 2019, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist kókaín 325 ng/ml, amfetamín 90 ng/ml, metýlfenídat 10 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 1,6 ng/ml) um Blöndubakka í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
M: 007-2019-2290
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og [...].“ Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa.
Ákærði hefur játað fyrir dómi að hafa framið þau brot sem honum eru gefin að sök og var farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var málið því tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga. Sannað er með skýlausri játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur [...] og á að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 2009. Brot ákærða var framið 13. janúar 2019, áður en ákærði var dæmdur í fimm mánaða fangelsi með dómi Héraðsdóms Reykjaness 2. apríl 2019 fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna sviptur ökuréttindum og fyrir að framvísa ökuskírteini annars manns. Með vísan til 78. gr. almennra hegningarlaga ber að dæma ákærða hegningarauka sem samsvari þeirri hegningu sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin í einu lagi. Við mat á sakarferli ákærða var horft til þess að með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 29. janúar 2013 var ákærði dæmdur í fimmtán daga fangelsi og ævilöng ökuréttarsvipting hans áréttuð, fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna sviptur ökuréttindum en þessi brot voru dæmd sem hegningarauki við dóm Héraðsdóms Reykjavíkur 7. desember 2012. Með vísan til framgreinds og að brotum hans virtum, sbr. einnig 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og með hliðsjón af skýlausri játningu ákærða er refsing hæfilega ákveðin 60 dagar í fangelsi.
Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til að greiðslu sakarkostnaðar, sem samkvæmt framlögðu yfirliti sækjanda og með stoð í öðrum gögnum, nemur samtals 192.082 krónur. Skipaður verjandi ákærða, Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður, krafðist ekki þóknunar.
Ólafur Egill Jónsson, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Sigurbjörn Einarsson, sæti fangelsi í 60 daga.
Ákærði greiði 192.082 krónur í sakarkostnað.
Ólafur Egill Jónsson