Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-116/2019:

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Victor Yinusa

(Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)

Játningarmál.

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn 157. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í 30 daga fangelsi.

Mál þetta, sem var tekið til dóms 3. apríl sl., höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 18. febrúar 2019, á hendur Victor Yinusa, fæddum [...], nígerískum ríkisborgara; ,,fyrir misnotkun skjals, með því að hafa, sunnudaginn 2. desember 2018, framvísað við landamæragæslu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, í blekkingarskyni, er hann   var   á   leið   til   Montreal,   Kanada,   með   flugi   [...],   bandarísku   vegabréfi, ánöfnuðu [...], fd. 03.09.1973 nr. [...] með gildistíma 20.07.2015 til 19.07.2025. Telst   þessi   háttsemi   ákærða   varða   við   1.   mgr.   157.   gr.   almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“ Af   hálfu   ákærða   er   krafist   vægustu   refsingar   sem   lög   leyfa.   Þá   gerir skipaður   verjandi   kröfu   um   hæfilega   þóknun   sér   til   handa   vegna   starfa   á rannsóknarstigi og fyrir dómi auk ferðakostnaðar.

Við þingfestingu máls þessa játaði ákærði brot sitt án undandráttar. Játning ákærða fær stoð í gögnum málsins. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Sakavottorð ákærða liggur ekki frammi í málinu. Engra gagna nýtur við um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Verður við ákvörðun refsingar tekið mið af þeirri staðreynd, sem og skýlausri játningu ákærða.

Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ákærði geti talist hafa stöðu flóttamanns. Eins og málið liggur fyrir þykja því ekki vera efni til þess að víkja frá fastmótaðri dómvenju í málum sem þessu. Að framangreindu virtu og með hliðsjón af dómaframkvæmd þykir refsing ákærða því réttilega ákveðin fangelsi í 30 daga.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað málsins, sem samkvæmt gögnum málsins er   þóknun   skipaðs   verjanda   hans   á   rannsóknarstigi   og   fyrir   dómi,   Halldóru Aðalsteinsdóttur   lögmanns,   er   hæfilega   þykir   ákveðin   168.640   krónur   að meðtöldum virðisaukaskatti, og ferðakostnað verjanda, 2.016 krónur.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Victor Yinusa, fæddur [...], sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði   greiði   þóknun   skipaðs   verjanda   síns,   Halldóru  Aðalsteinsdóttur lögmanns,   168.640   krónur   að   virðisaukaskatti   meðtöldum   og   ferðakostnað verjanda, 2.016 krónur.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir

Heimildaskrá