Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-304/2018:

S-304/2018:

Ákæruvaldið

(Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Sigurði Rúnari Oddssyni

(Páll Kristjánsson lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Játningarmál.

Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og dæmdur í 45 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærða gert að sæta upptöku á fíkniefnum.

Mál þetta, sem var tekið til dóms 9. október 2018, höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 29. maí 2018, á hendur Sigurði Rúnari Oddssyni, kt. 000000-0000, [...]:

,,fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa sunnudaginn 26. nóvember 2017, haft í vörslum sínum samtals 10 stk. kannabisplöntur, sem fundust í þvottahúsi íbúðar ákærða að [...], og hafa um skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur. Auk þess að hafa í vörslum sínum á sama tíma samtals 1,15 g af kannabisefnum sem fundust við leit í íbúð ákærða.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 2., sbr. 4., sbr. 4. gr. a, sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 10/1997 og lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Þá er þess krafist að gerðar verði upptækar, framangreindar 10 kannabisplöntur og 1,15 g af kannabisefnum. Þá er þess jafnframt krafist að ákærði verði dæmdur til að sæta upptöku á viftu, lampa, hitamæli og straumbreyti, sem lögregla lagði hald á og notaðir voru ræktunina samkvæmt heimild í 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 10/1997 og 68/2001, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglug. nr. 233/2001.“

Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá gerir verjandi ákærða kröfu um hæfilega þóknun sér til handa.

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið þau brot sem honum eru gefin að sök og var farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig í stuttu máli um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Sannað er með skýlausri játningu ákærða, sem er í samræmi við framlögð sakargögn, að hann hafi gerst sekur um þau brot sem honum eru gefin að sök og eru þau réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði hefur því unnið sér til refsingar.

Ákærði er fæddur 1983 og á samkvæmt framlögðu sakavottorði að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 2015. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 17. mars 2015 var ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir þjófnað samkvæmt 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með sama dómi var ákærði jafnframt sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot gegn 2. sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, og umferðarlagabrot með því að hafa í þrjú skipti ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna samkvæmt 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. a. umferðarlaga og var gert að greiða 420.000 krónur í sekt og var sviptur ökurétti í tvö ár.   Ákærði   stóðst   skilorð   dómsins.   Ákærði   gekkst   undir   tvær   sektargerðir lögreglustjóra 15. maí 2017 vegna aksturs sviptur ökurétti og samþykkti greiðslu sekta   samtals   að   fjárhæð   120.000   krónur.   Með   sektargerð   lögreglustjóra   22. desember 2017 samþykkti ákærði greiðslu 54.000 króna sektar fyrir brot gegn 2. sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Brot þau sem ákærði er í máli þessu sakfelldur fyrir að hafa framið, framdi hann fyrir afgreiðslu áðurnefndrar sektargerðar frá 22. desember 2017, og ber því nú að gera honum hegningarauka við þá sátt, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með vísan til framangreinds sem og greiðrar játningar ákærða þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með   vísan   til   kröfugerðar   ákæruvaldsins,   gagna   málsins   og   tilgreindra lagaákvæða   í   ákæru   verða   gerðar   upptækar   10   kannabisplöntur,   1,15   g   af kannabisefnum, vifta, lampi, hitamælir og straumbreytir.

Á grundvelli sakfellingar ákærða, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður honum gert að greiða allan sakarkostnað málsins, 86.850 krónur. Þá greiði ákærði þóknun skipaðs verjanda síns, Páls Kristjánssonar lögmanns, sem þykir, með hliðsjón af umfangi málsins, hæfilega ákveðin 126.480 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Sigurður Rúnar Oddsson, sæti fangelsi í 45 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði sæti upptöku á 10 kannabisplöntum, 1,15 g af kannabisefnum, viftu, lampa, hitamæli og straumbreyti.

Ákærði greiði 213.330 krónur í sakarkostnað, þar með talda þóknun skipaðs verjanda síns, Páls Kristjánssonar lögmanns, 126.480 krónur.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir