Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 31. október 2018.
Mál nr. S-233/2018:
Ákæruvaldið
(Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X
Lykilorð
Útdráttur
Fíkniefnalagabrot
X
Mál þetta er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 15. maí 2018, á hendur X, kt. 000000-0000, [...] „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 26. janúar 2018, að [...], haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 254 kannabisplöntur, 480,40 g af maríhúana og 2.543,08 g af kannabislaufum og hafa um nokkurt skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Krafist er upptöku á 254 kannabisplöntum, 480,40 g af maríhúana, 2.543,08 g af kannabislaufum, 8 spennubreyta, 2 rafmagnstöflur. 4 LED lampa, 4 fjöltengi, 5 tímarofa, 4 viftur, loftblásara, 11 moldarpoka og 5 tímarofa, samkvæmt 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“
Ákærði kom fyrir dóm og játaði sök samkvæmt ákærunni. Með játningu sinni, sem fær næga stoð stoð í gögnum málsins og ekki þykir ástæða til að draga í efa, er hann sannur að sök og hefur unnið sér til refsingar, en háttsemi hans er rétt færð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði, [...], játaði skýlaust og hefur gert frá upphafi. Verður horft til þess og hreins sakaferils hans. Á hinn bóginn verður að horfa til þess umtalsverða magns sem ákærði hafði í vörzlum sínum og ætlað var til sölu og dreifingar. Þegar á allt er horft verður refsing ákærða ákveðin fangelsi í tólf mánuði en jafnframt ákveðið að fullnustu refsingarinnar skuli frestað og niður falli hún að liðnum þremur árum haldi ákærði almennt skilorð. Fallast ber á gerðar upptökukröfur. Ákærði verður dæmdur til að greiða málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Bjarna Haukssonar lögmanns, 252.960 krónur með virðisaukaskatti og annan sakarkostnað sem samkvæmt yfirliti lögreglustjóra nemur alls 329.108 krónum.
Af hálfu ákæruvaldsins fór Kári Ólafsson saksóknari með málið.
Þorsteinn Davíðsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð
Ákærði, X, sæti fangelsi í tólf mánuði. Fullnustu refsingarinnar skal frestað og niður skal hún falla að liðnum þremur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Upptæk eru gerð 254 kannabisplöntur, 480,40 g af maríhúana, 2.543,08 g af kannabislaufum, átta spennubreytar, tvær rafmagnstöflur, fjórir lampar, fjögur fjöltengi, fimm tímarofar, fjórar viftur, loftblásari, og ellefu moldarpokar.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Bjarna Haukssonar lögmanns, 252.960 krónur og 329.108 króna annan sakarkostnað.
Þorsteinn Davíðsson